Stjarnan - 01.08.1950, Side 2

Stjarnan - 01.08.1950, Side 2
58 ST J ARN A Isi inn maður, sem gleðst við fegurð jarðar- innar, kann bezt að meta hana, því að hann sér, að hún er verk föðursins og verður var við kærleika hans í hverju blómi, hverjum runni og hverju tré. Eng- inn getur skilið til fulls þýðingu hæðanna og dalanna, fljótanna og vatnanna nema því að eins að hann sjái, að þar lýsir sér kærleikur guðs til mannanna. Guð talar til vor með stjórn forsjónar sinnar og hann talar til vor með áhrifum anda síns á hjartað. Vér getum fengið marga dýrmæta fræðslu af kjörum vorum og annara og þeim breytingum, sem dag- lega eiga sér stað allt í kringum oss, ef vér viljum aðeins gefa gaum að þeim. Svo segir sálmaskáldið hebreska, er hann hug- leiðir verk guðs forsjónar: „Jörðin er full af hans náð.“ „Hver hygginn er, hann sér þetta og tekur eptir drottins miskunsemd- um.“ Guð talar til vor í orði sínu. Þar er vera hans, stjórn hans á mönnunum og hið mikla endurlausnarverk enn þá greinileg- ar opinberað. Þar er oss sögð saga forfeðr- anna, spámannanna og annara helgra manna, er lifðu í fornöld. Þeir voru líkir oss að breyskleika. Vér sjáum að þeir áttu við sömu erfiðleika og vér að stríða, sjáum að þeir féllu fyrir freistingum eins og vér, fengu þó hugrekki á ný og unnu sigar fyrir guðs náð. Þegar vér lesum þetta, þá verður oss það til uppörfunar í kappkostun vorri eptir réttlætinu. Þegar vér lesum um þá dýrmætu reynslu, sem þeir fengu, um það ljós, kærleika og blessun, sem þeir áttu að fagna, og um það starf, sem guðs náð veitti þeim þrek til að vinna, þá vekur sá andi, sem ríkti í þeim, heilaga keppni í hjörtum vorum og löngun til þess að líkast þeim í hugarfari og ganga á guðs vegum eins og þeir. Jesús sagði um bækur gamla testa- mentisins (og hversu miklu fremur á það við um hið nýja?): „Þær eru það, sem vitna um mig“. Þær vitna um endurlausn- arann, sem öll von vor um eilíft líf er byggð á. Öll biblían vitnar um Krist. í henni lesum vér um verk hans og hlýðum á hans röddu, frá hinni fyrstu frásögn um sköpunina, (því án hans „er ekkert til orð- ið, sem til er“) allt til hins síðasta fyrir- heitis: „Já ég kem skjótt“. Ef þú vilt kynn- ast- frelsara þínum, þá skaltu rannsaka heilaga ritningu. Lát hjarta þitt fyllast guðs orði. Það er hið lifandi vatn, sem slekkur hinn brennandi þorsta þinn. Það er hið lifandi brauð frá himnum. Jesús segir; „Ef þér ekki etið hold mannsins sonar og drekkið ekki hans blóð, hafið þér ekki lífið í yður“. Og hann skýrir orð sín þannig: „Þau orð, sem ég tala til yðar, eru andi og líf.“ Líkamir vorir myndast af því, er vér etum og drekkum, og eins og þessu er þannig varið að því er hið náttúrlega líf vort snertir, svo er það einnig í andlegum efn- um. Það, sem vér höfum hugann við, gefur voru andlega eðli stefnu og styrk. —E.G.W. ------------☆------------ XV. Grundvallarlög Guðs ríkis I. Guð hefir stjórn. 1. Hann er konungur. „Enginn er þinn líki, Drottinn. Mikill ert þú og mikið er nafn þitt sakir máttar þíns. Hver skyldi eigi óttast þig, konungur þjóð- anna?“ Jer. 10:6-7. 2. Hásœti hans er á himnum. „Drottinn hefir reist hásæti sitt á himnum, konungdómur hans drotnar yfir al- heimi.“ Sálm. 103:19. II. Engin stjórn getur staðist án þess að hafa lög. 1. Drengir geta ekki farið í leiki án þess að hafa reglur. 2. Menn geta ekki haft viðskifti án þess að fýlgja settum reglum í mæii, vigt, o.s.frv. 3. Leikir, viðskifti í félagslífi, siðferðis lífi og andlegu lífi útheimtar lög eða reglur. III. Guðs stjórn hefir lög, heilög og rétt- lát, bygð á kœrleika. 1. „Réttlæti er grundvöllur hásætis þíns.“ Sálm. 89:15. 2. „Réttir og sannir eru vegir þínir konungur aldanna.“ Sálm. 15:3. 3. „Þannig er þá lögmálið heilagt, og boðorðið heilagt og réttlátt og gott.“ Róm. 7:12. 4. Kærleiki til Guðs og manna leiðir til hlýðni við kærleikans lögmál. „Þú skalt elska Drottinn Guð þinn af öllu hjarta þínu. „Þú skalt elska ná- unga þinn eins og sjálfan þig. Á

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.