Stjarnan - 01.08.1950, Side 4

Stjarnan - 01.08.1950, Side 4
60 STJARNAN 5. Það er fyrir Guðs börn á síðustu dögum. (a) Þau munu halda það gegn um erfiðleika. „Drekinn reiddist konunni og fór burt til þess að heyja stríð við hina aðra afkomendur hennar, þá er varðveita boð Guðs og hafa Jesú vitnisburð“. Op. 12:17. (b) Þeir varðveita boð Guðs. „Hér reynir á þolgæði hinna heilögu, þeir er varðveita boð Guðs og trúna á Jesúm.“ Op. 14:12. VI. Það er almenn uppreisn gegn lög- máli Guðs í heiminum. „Hyggja holdins er fjandskapur gegn Guði, með því að hún lýtur ekki lögmáli Guðs, enda getur hún það ekki.“ Róm. 8:7. . 1. Menn alment lítilsvirða lögmál Guðs, árangurinn er að glæpir fara í vöxt. 2. Fráfallin kirkja hafði í hyggju að breyta Guðs lögmáli. „Hann mun orð mæla gegn hinum hæðsta, kúga hina heilögu hins hæðsta og hafa í hyggju að umbreyta helgitíðum og ]ögum.“ Dan. 7:25. 3. Margir prestar og þeir sem kalla sig kristna eru í uppreisn gegn lög- máli Guðs og fótum troða það. 4. Drekinn, sem er djöfull eða satan er þar í broddi fylkingar. „Varpað var niður drekanum mikla, hinum gamla höggtormi, sem heitir djöfull og satan.“ „Drekinn reiddist kon- unni og fór burt til þess að heyja stríð við hina aðra afkomendur hennar, þá er varðveita boð Guðs.“ Op. 12:9-17. 5. Guð mun láta til sín taka þegar hans tími kemur. „Tími er komin fyrir Drottinn að taka í taumana. Þeir hafa rofið lögmál þitt.“ Sálm. 119:126. VII. Hlýðni öðlast dýrðlegt endurgjald. 1. „Gnótt friðar hafa þeir er elska lög- mál þitt og þeim er við engri hrös- un hætt.“ Sálm 119:165. 2. „Æ að þú vildir gefa gaum að boð- orðum mínum, þá mundi heill þín verða sem fljót og.Jaamingja þín sem bylgjur sjávarins.“ Jes. 48:18. 3. Öryggi í stormum og stríði lífsins. „Sá, sem heyrir mín orð og breytir eftir þeim, honum má líkja við hygginn mann, sem bygði hús sitt á bjargi og steypiregn kom ofan og beljandi lækir komu, og stormar blésu og skullu á því húsi, en það féll ekki því það var grundvallað á bjargi.“ Matt. 7:24-25. 4. Vegabréf til himnaríkis. „Ekki mun hver sá er við mig segir: Herra, herra, ganga inn í himnaríki, Held- ur sá er gjörir vilja jöður míns sem er í himnunum. Margir munu segja við mig á þeim degi: Herra, herra, höfum vér ekki spáð með þínu nafni og höfum vér ekki rekið út illa anda með þínu nafni og höfum vér ekki gjört mörg kraftaverk með þínu nafni. Og þá mun ég segja þeim afdráttarlaust: „Aldrei þekti ég yður, farið frá mér þér, sem fremjið lögmálsbrot.“ Matt 7:21-23. „Sælir eru þeir sem breyta eftir hans boðorðum, svo þeir nái að kom- ast að lífstrénu, og megi inn ganga um borgarhliðin inn í borgina.“ Op. 22:14. (Eldri þýðingin). ----------------------------- Fjársjóður fyrir dimma daga „Eg geymi orð þín í hjarta mínu, til þess að ég skuli. eigi syndga gegn þér.“ Sálm. 119:11. Verslunarmaður einn, sem læknirinn hafði sagt að hann yrði bráðum blindur, losaði sig við verslun sína og bjó sig til að taka langt frí uppi í fjöllunum. Hann sagði: „Eg ætla að horfa á alt sem er ynd- islegt og fagurt meðan ég ennþá hef sjón- ina. Svo flyt ég endurminning um fegurð- ina inn í dimmu dagana.“ Hann horfði á bláu fjöllin, tæru stöðuvötnin, sem spegl- uðu fegurð himinsins, skógarins og klett- anna, hina glóandi sólar uppkomu og hið gullna sólarlag, yndisleik blómanna og gleðisvip barnanna þegar þau voru að leika sér. Hann hafði svo margt að taka með sér að blindan hans varð ekki myrk eftir altsaman. Sama hugmyndin lýsti sér hjá drengn- um, sem í janúar, þegar alt var hvítt af snjó, leit yfir blómagarðinn og sagði: „Mamma, ég j*et séð rósir“. „Sonur, það eru engar rósir þar nú,“ sagði móðir hans.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.