Stjarnan - 01.12.1950, Qupperneq 2

Stjarnan - 01.12.1950, Qupperneq 2
90 STJARNAjN mannanna börn.“ Guðræknisiðkanir vorar eiga ekki eingöngu að vera fólgnar í því að biðja og þiggja. Látum oss eigi sí og æ hugsa um skort vorn; látum oss einnig minnast þeirrar blessunar, er vér öðlumst. Vér biðjum ekki of mikið, en vér erum of sparir á þakkargjörð vorri. Vér njótum stöðugt náðar guðs, en hversu lítið þakk- læti látum vér í ljósi, hversu lítið lofum vér hann fyrir allt það, er hann hefur gjört fyrir oss! Drottinn sagði forðum, þegar fsraels- menn söfnuðuðust saman til þess að halda guðsþjónustu: „Og þar skuluð þér frammi fyrir drottni, yðar guði, halda máltíð og gieðja yður ásamt heimilisfólki yðar, af öilum yðar útvegi, því að drottinn, yðar guð, mun blessa þig.“ Það, sem gjört er drottni til dýrðar, á að gjöra með gleði, lofsöng og þakkargjörð, ekki með hryggð og þunglyndi. Vor guð er viðkvæmur, náðugur faðir. Það á ekki að líta svo á, sem þjónusta hans sé þung og erfið. Það á að vera oss ánægja að dýrka drottin og taka þátt í verkum hans. Guð vill ekki að börn hans, sem hann hefur unnið svo mikið frelsi, breyti svo sem væri hann strangur og kröfuharður verkstjóri. Hann er bezti vinur þeirra, og hann mun vera með þeim, er þau tilbiðja hann, blessa þau og hugga og fylla hjörtu þeirra gleði og kærleika. Drottinn vill að börn sín hafi gleði af því að þjóna sér og hafi meiri ánægju en erfiði af því að vinna hans verk. Hann vill að þeir, sem koma til þess að tilbiðja hann, fari frá sér með dýrmætar hugsanir um umhyggju hans og kærleika, að þeir fái daglega uppörfun við öll störf lífsins og náð til að breyta heiðarlega og hreinskilnislega í öllum greinum. Vér verðum að fylkja oss um krossínn. Kristur hinn krossfesti á að vera efni allra hugleiðinga vorra; um hann eigum vér að tala og hann á að vera stærsta gleði hjartna vorra. Vér eigum að geyma í huga sérhverja blessun, sem vér þiggjum af guði, og þegar vér íhugum hinn mikla kærleika hans, þá eigum vér fúslega að íela allt á vald honum, sem negldur var á krossinn fyrir oss. Sálin getur nálgazt himininn á vængj- um lofsöngvanna. Guð er dýrkaður með söng og hljóðfæraleik í sölum himnanna, og þegar vér tjáum honum þakklæti hjarta vors, þá tökum vér þátt í dýrkun hinna himnesku herskara. „Hver, sem framber þakkargjörð, sá heiðrar mig,“ segir drott- inn. Látum oss ganga fyrir skapara vorn með lotningu og gleði, með „lofgjörð og fagnaðarraust.“ —E.G.W. ----------☆---------- # XIX. Hver breytti helgihaldinu frá laugardegi til sunnudags? Sunnudagurinn er fyrsti dagur vikunn- ar, laugardagurinn sá sjöundi. I. Ef breytingin var lögmæt, hvar ætti hún þá að finnast? 1. I heilagri Ritningu. „Sælir eru þeir sem heyra Guðs orð og varðveita það.“ 2. „Gætið lærdómsins og vitnisburðar- arins, ef þeir tala ekki samkvæmt honum, þá vitið að fólkið hefir enga birtu.“ II. Hefir Guð breytt lögmáli sínu? 1. „Eg komst að raun um að alt sem Guð gjörir stendur að eilífu.“ Préd. 3:14. 2. „Eg Drottinn hef ekki breytt mér. Mal. 3:6. 3. „Hjá honum er hvorki umbreyting né umbreytingarskuggi.“ Jak. 1:17. 4. Tíu boðorðin eru sáttmáli Guðs. „Þá birti hann yður sáttmála sinn sem hann bauð yður að halda, tíu boð- orðin og hann reit þau á tvær stein- töflur.“ 5 Mós. 4:13. 5. „Eg vil eigi vanhelga sáttmála minn, s og eigi breyta því sem mér hefir af vörum liðið.“ Sálm. 89:35. 6. „Hinn trúfasti Guð heldur sáttmál- ann og miskunsemina í þúsund ættliðu við þá sem elska hann og varðveita hans boðorð.“ 5. Mós. 7:9. III. Breytti Jesús lögmálinu og hvildar- deginum? 1. Jesús sagði: „Eg 'og Faðirin erum eitt.“ „Faðirinn er í mér og ég í föðurnum.“ Jóh. 10:30-38. 2. Jesús framkvœmir áform föðursins. „Þá er þó ekki til fyrir oss nema einn Guð, faðirinn sem allir hlutir eru frá, og líf vort stefnir til, og einn Drottinn Jesús Kristur, sem all-

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.