Stjarnan - 01.12.1950, Blaðsíða 4

Stjarnan - 01.12.1950, Blaðsíða 4
92 STJARNAN Hvíldardagurinn var bygður á sér- stöku, guðdómlegu boðorði. Vér getum ekki bent á neitt slíkt boðorð til að halda sunnudaginn.“ „Tíu boðorðin“ bls. 106 og 107 eftir Dr. R. W. Dale (Congregationalist.) „Biblían nefnir hvergi fyrsta dag vikunnar sem hvíldardag. Það er engin ritningargrein því til stuðn- ings.“ „Watchman“ (baptist). 3. Neander, nafnkunnur sagnaritari segir: „Sunnudagshelgi eins og allar aðrar hátíðar var aðeins tilskipanir manna. Það var Íangt frá tilgangi postulanna að stofna guðlegt boð- orð þessu viðvíkjandi, og langt frá því að hin fyrsta kristna kirkja * flytti hvíldardags boðorðið yfir á sunnudaginn.“ „History of the Christian Religion and Church“, bls. 186, translation by Henry Rose. VI. Gaf Guð spádóm um tilraun manna að breyta lögmáli hans? Litla horn- ið, eða páfavaldið mundi „hafa í hyggju að umbreyta helgitíðum og lögum.“ 1. „Hann mun orð mæla gegn hinum hæðsta, kúga hina heilögu hins hæð- sta og hafa í hyggju að umbreyta helgitíðum og lögum.“ Dan. 25. 2. Páfavaldið sleppir öðru boðorðinu úr barnalærdómsbókum sínum, boð- orðið sem bannar tilbúning og til- beiðslu líkneskja og mynda. 3. Páfavaldið skifti í tvent tíunda boð- orðinu. (til að halda við töluna tíu.) 4. Páfavaldið skipaði sunnudagshelgi- hald í stað hvíldardagshalds. 5. Páll spáði fyrir um mann sem mundi upphefja sig sem Guð. „Því að ekki kemur hann nema frá- hvarfið komi fyrst og maður synd- arinnar birtist, glötunarsonurinn, hann sem setur sig á móti og rís gegn öllu því, sem kallast Guð eða helgurdómur, svo að hann sest í Guðs musteri og kemur fram eins og hann væri Guð.“ 2 Þess. 2:3-4. VII. Kannast katólska kirkjan við að hafa gjört breytinguna? Hún stærir sig af því. „Getur þú með nokkru móti sannað að kirkjan hafi vald til að skipa há- tíðisdaga með lögum? Svar: Ef hún hefði ekki slíkt vald hefði hún ekki getað gjört það, sem allir nútíðar trjújátendur eru sam- þykkir henni í, hún gæti ekki hafa komið á sunnudags helgihaldinu, helgihaldi fyrsta dags vikunnar, í stað helgihalds laugardagsins, sjö- unda dagsins, breyting er Ritningin veitir enga heimild til“ Doctrinal Catechism bls. 174. VIII. Hefir Guð spáð fyrir um endurreisn hvíldardagsins? „Því að eins og hinn nýi himin og hin nýja jörð, sem ég skapa munu standa stöðug fyrir mínu augliti, segir Drottinn, eins mun afsprengi yðar og nafn standa stöðugt. Og á mánuði hverjum tunglkomudaginn og á viku hverri hvíldardaginn skal alt hold koma og tilbiðja frammi fyrir mér, segir Drottinn.“ Jes. 66:22-23. ■-----------■☆■---------- Eg trúi á eilíft líf „Eg trúi á . . . upprisu holdsins og eilíft líf.“ Þetta eru fyrstu og síðustu orðin í trúarjátningunni sem miljónir manna endurtaka og játa. Er eilíft líf veruleg- leiki? Eða er vort núverandi líf sem varir frá lítilli stundu og upp í hundrað ár, eina lífið sem til er? Blindandi birta í Hiroshima slökti líf 100 þúsund manna. Er það endir tilveru þeirra. Stríðið sem gekk yfir heiminn or- sakaði dauða 12 miljón manna auk kvenna og barna. Var það þeirra síðasta? Á hverj- um 24 klukkustundum kveðja 100 þúsundir manna þennan heim. Er það endir lífsins? Hvað segir Biblían um þetta? Ef vér eigum að fá rétta þekkingu á þessu verðum vér að fá hana frá Guðs orði. Hvað menn- ina snertir þá er það eins og verið hefur um þúsundir ára, að dauðinn er sem lokað- ar dyr þar sem þögnin ríkir. Hvað er svarið upp á spurningu Jobs: „Þegar maðurinn deyr lifnar hann þá aftur?“ Hvað segir Heilög Ritning? Er eilíft líf til? Hvað segir Guðs orð um þetta mál sem vér verðum að vita fyr eða seinna. Lesum Sálm 8:5. „Þú lést hann lítið ávanta við Guð.“ Þar næst les Lúk. 20:35- 36. vers. um framtíð Guðs barna. „En þeir sem álítast verðir að fá hlutdeild í hinni

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.