Stjarnan - 01.07.1951, Side 3

Stjarnan - 01.07.1951, Side 3
STJARNAN 51 búinn að mæta honum þegar hann, kon- ungur konunganna og Drottinn drotnanna kemur í dýrð sinni og allir englarnir með honum? A. R. C. ---------it--------- XXV. Kraftaverkalækningar og hollir lifnaðarhættir Guð skapaði manninn hraustan og full- kominn. Lífsins tré var nauðsynlegt til að viðhalda endalausu lífi. lMós. 3:22.—23. Jafnvel þó Adam væri útilokaður frá lífs- ins tré þá lifði hann 930 ár. Syndin hafði í för með sér sjúkdóm, þjáning og dauða. Synd, sjúkdómur og dauði er alt veruleiki en engin ímyndun. I. HvaSa meðal er til við bölvun synd- arinnar? 1. Jesús frelsaði oss frá henni. „Kristur keypti oss undan bölvun lögmálsins, með því að verða bölv- un fyrir oss, því að ritað er: „Bölv- aður er hver sá, sem á tré hangir“. Gal. 3:13. 2. Oss er veití náð og kraftur til að lifa nýju lífi. „Vitið þér ekki að allir vér sem skírðir erum til Krists Jesú, erum skírðir til dauða hans. Vér erum því greftraðir með honum fyrir skírn- ina til dauðans, til þess eins og að Kristur er uppvakinn frá dauðum fyrir dýrð föðursins, svo skulum við ganga í endurnýjungu lífsins“. Róm. 6:1.—4. II. Hvaða hjálp veitti Guð móti dauð- anum? 1. Guð auðsýnir kærleika sinn til vor þar sem Kristur er fyrir oss dáinn meðan vér enn vorum í syndum vorum“. Róm. 5:8. 2. Allir deyja náttúrlegum dauða. „Því að eins og allir deyja fyrir samband sitt við Adam, svo munu allir lífgaðir verða fyrir Krist“. 3. Fagnaðareríndið frelsar oss ekki frá náttúrlegum dauða, heldur frá hinum öðrum, eða eilífa dauða. „Sæll og heilagur er sá, sem á hlut í fyrri upprisunni, yfir þeim hefir hinn annar dauði ekki vald“. Op. 20:6. III. Hvaða hjálp veiiir Guð gegn sjúk- dómum? ] Guð vill vér njótum góðrar heilsu. „Ég bið þess minn elskaði að þér vegni vel í öllum hlutum, og að þú sért heill heilsu eins og sál þinni líður vel“. 3 Jóh. 2. 3. Stundum læknar Guð með krafta- verki. „En Pétur sagði . . . . í nafni Jesú Krists frá Nazaret þá gakk þú. Og hann tók í hægri hönd hans og reisti hann á fætur. En jafnskjótt urðu fætur hans og öklar styrkir og hann .... gekk um kring og hljóp og lofaði Guð“. Post. 3:1.—8. 4. Náttúrlegar lækningar eru líka náð- argjöf Guðs. IV. Læknar Guð öll börn sín ef þau verða sjúk? 1. Jesús læknaði tengdamóður Péturs. „Og er Jesús kom í hús Péturs sá hann tengdamóður hans sem lá með sótthita. Hann snart hönd hennar og sótthitinn fór úr henni, og hún reis á fætur og gekk honum fyrir beina“. Matt. 8:14.-15. 2. Páll fékk ekki lækningu. „Og til þess ég skuli ekki hrokast upp af hinum miklu opinberunum, er mér gefinn fleinn í holdið, satans engill til að slá mig . . . um hann hefi ég þrisvar beðið Drottinn þess að hann færi frá mér. Og hann hefir svarað mér: Náð mín nægir þér því að mátturinn fullkomnast í veikleika“. 2 Kor. 12:7,—9. 3. Sjúkdómur er als ekki vottur um veika trú. „Vert þú ekki lengur að drekka vatn, heldur skalt þú neita lítils eins af víni vegna maga þíns og veikinda þinna, sem eru svo tíð“, 1 Tím. 5:23. V. Eru kraftaverk merki upp á sannan kristindóm? 1. „Og margir komu til hans (Jesú) og þeir sögðu: Jóhannes gjörði að sönnu ekkert tákn, en alt sem Jóhannes sagði um hann var satt“. Jóh. 10:41. 2. Það eru ekki margar frásagnir um að postularnir hafi læknað. 3. Jesús læknaði konu sem hafði verið krept í 18 ár. 4. Jesús varar við falskennendum, sem gjöra tákn og undur. „Upp munu rísa falskristar og falsspá- menn, og þeir munu gjöra stór tákn

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.