Stjarnan - 01.09.1951, Síða 3

Stjarnan - 01.09.1951, Síða 3
STJARNAN 67 nokkurs og konu hans og sonar. Litli drengurinn bar sig aS eins og hann hefði aldrei fyr séð föður sinn. Konan stóð þarna, horði á mann sinn og fór að gráta, svo faðmaði hún hann að sér og hló. Litli drengurinn hélt annari hendi í pils móður sinnar en hinni í buxnaskálm föður síns og horfði undrandi á þau. Hann skildi ekkert hvernig á þessu stóð. Eg verð að kannast við að ég gat ekki tára bundist er ég horfði á þau. Mér kom til hugar fagnaðardagurinn þegar Guðs börn sameinast hvort öðru og mæta frels- ara sínum sem dó fyrir þau. Þegar þau sjá naglaförin á höndum hans og örin á cnninu eftir þyrnikórónuna. Ó hvílíkur fagnaðarfundur það verður. Nú komum vér að fjórða atriðinu. „Eg kem aflur og mun taka yður fil mín, svo að þér séuð og þar sem ég er." það er dýrð- leg von að geta hlakkað til að Jesús kemur aftur. Hann var hér fyrir löngu síðan og hann kemur aftur. Þegar vér athugum ástandið í heiminum, stríð, hungursneyð, veikindi, stjórnleysi, glæpi og sorg, og hvernig margra hjörtu eru yfirbuguð af kvíða og áhyggjum, og menn deyja af angistarfullri eftirvænting þess sem yfir heiminn mun koma, þá minnumst vér þess að Biblían sagði fyrir að þannig mundi það verða á síðusfu dögum. Einmitt þegar þetta á sér stað segir Jesús: „Hjörtu yðar skelfist ekki.“ Og hvers vegna ekki? Af því Jesús kemur aftur. „Þegar þetta tekur að koma fram þá lítið upp og lyftið upp höfðum yðar, því lausn yðar er í nánd.“ ;,Þá munu þeir sjá manns soninn komandi í skýjum með makt og mikilli dýrð“. Nú sjáið þér hversvegna vér ættum ávalt að líta upp til föðursins og sonarins til himins, væntandi endurkomu frelsar- ans. Verið hughraustir. Treystið Guði og frelsara vorum. Reiðið yður á loforð hans. Þetta nægir til að hrekja burtu áhyggjur og kvíða. Ef þú ert kristinn bið ég að Guð gefi þér nýjan kraft og hugrekki. Ef þú ert ekki kristinn þá snúðu þér tafarlaust til Drottins og meðtak Jesúm sem frelsara þinn, þá verður byrði þinni létt og þú getur hughraustur gengið lífsferil þinn. Gef Guði hjarta þitt. Treystu honum. Væntu Guðs sonar frá himni. Lítið upp. Lausn yðar er 1 nánd. —U.S.S. XXVII. Innsigli Gu'ðs og merki dýrsins Lesið 13. og 14. kapítula Opinberunar- bókarinnar. I. Pardusdýrið eða páfavaldið í Op. 13. kap. 1. Það kom upp úr hafinu. „Vötnin sem þú sást þar sem skækjan situr eru lýðir, fólk, þjóðir og tungur.“ Op. 17:15. 2. Það líkist hinum mikla rauða dreka, í því að það hefir 7 höfuð og 10 horn. Op. 12:3 og 13:1. 3. Það hafði bjarnarfætur. Munnurinn var eins og á ljóni. Pardusdýrið hafði þannig einkenni Babýlonar, Medíu-Persíu og Grikklands, sem tákn mynduð voru með ljóni, bjarn- dýri og Pardusdýri. Þar sem dýr þetta hafði 7 höfuð og 10 horn bend- ir það á Róm. Þannig er páfavaldið í Rómaborg samsteypa af Babýlon, Medíu-Persíu, Grikklandi og heiðna Rómavaldi. 4. Drekinn, heiðna Rómaveldi gaf páfavaldinu mátt sinn, eða yfirráð- in, og hásæti sitt. 5. Öll jörðin fylgdi dýrinu með undr- un og þeir tilbáðu drekann af því hann hafði gefið dýrinu vald sitt, og þeir tilbáðu dýrið og sögðu: Hver jafnast við dýrið og hver getur bar- ist við það. Og því var leyft að heyja' stríð við hina heilögu og sigra þá, og því var gefið vald yfir sérhverri kynkvísl og lýð, tungu og þjóð, og allir þeir sem á jörðunni búa munu tilbiðja það, hver og einn sá er eigi hefir nafn sitt ritað í lífsbók lambsins er slátrað var frá grund- völlum veraldar." Op. 13:3. 4. 7. 8. 6. Dýrið talaði guðlöstunarorð. Páfinn kveðst vera staðgöngumaður Guðs Sonar og lætur eins og hann væri Guð. 7. Þetta átti að halda áfram í 42 mán- uði eða 1260 ár. Páfinn hafði yfir- ráð frá 538 til 1798 eftir Krist. 8. Það háði stríð við hina heilögu, of- sótti Guðs börn sem ekki vildu beyg- ja sig undir vald þess. 9. Eitt höfuð þess átti að verða sært dauðlegu sári. Op. 13:3-10.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.