Stjarnan - 01.09.1951, Side 6

Stjarnan - 01.09.1951, Side 6
70 STJARNAN Þessar bænir og hvíldarstundir líktust því sem hann hefði farið heim til himins, svo kom hann til fólksins, sem beið hans og færði því nýja von og nýtt líf. Vér þurfum líka fyrir bæn að lifa í samfélagi við Guð, til þess vér getum komist sigrandi gegn um þessa annríkis tíma. Vér höfum svo mikið að sýsla í heim- inum, að vér þurfum að losa oss við það með köflum, til að byggja upp vort and- lega sjálfstæði, annars er oss hætt við að bugast. í návist Guðs finnum vér hvíld og frið. Fjarri hávaða heimsins getum vér séð alt í bjartara ljósi, og verið hugrakkari og sterkari þegar vér göngum aftur að störfum vorum. Þannig var það með Enok. Hann þráði nánara samfélag við Guð, og komst í æ innilegra samband við hann, þar til að lokum Guð tók hann til sín. Hann stóð við takmörk annars heims, að- eins fótmál á milli. Svo tók Guð hann. Lengi hafði hann gengið með Guði hér á jörðinni, og hélt nú áfram göngu sinni gegn um hlíð hinnar heilögu borgar — sá fyrsti jarðneskra manna að fá inngöngu þar. Vér megum ekki leyfa annríki þessa lífs að taka upp allan tíma vorn og hugsun. „Aldrei þekta ég yður. Farið frá mér,“ mun hann að lokum segja við þá sem hér áttu of annríkt til að leita hans og þjóna honum. Frelsari vor býður oss að koma til sín og lifa í samfélagi við hann eins og hann er í stöðugu samfélagi við föðurinn. Hann býður oss þá hvíld og þann frið, sem vér getum aðeins öðlast 1 návíst hans, svo hann geti lifað sínu lífi í oss, og líf vort verið endurskin af hans heilaga lífi. —INEZ BRASIER ----------☆---------- Californíans ætla sér að verða við öllu búnir, svo þeir auglýsa eftir hálfri fjórðu miljón manna til að læra „hjálp í viðlög- um“, og þar að auki 350 þúsundir til að vera varðmenn gegn loftárásum. Áfo'rm þeirra er að hafa að minsta kosti einn í hverri fjölskyldu sem veitt geti hjálp í viðlögum, og að varðmenn loftárása verði tilbúnir að læra strax þegar Samband- stjórnin gefur út kenslubækur í því efni. —U.S.S. Clarence byggir hús Ungur maður sem ásetti sér að verða byggingameistari giftist stúlku sem átti ríka foreldra. Tengdafaðir hans kallaði hann inn á skrifstofu sína og sagði: „Clar- ence, viltu byggja hús fyrir mig. Það mundi hjálpa til að koma þér á stað. Get- ur þú bygt fyrir mig hús af bestu tegund?“ Clarence var þakklátur fyrir þetta tæki- færi og sagði: „Eg get bygt eins gott hús eins og hægt er að byggja.“ Tengdafaðir hans fékk honum nú upp- drátt af húsinu og sagði honum að kaupa efni aðeins af bestu tegund, því hann vildi húsið yrði hið fullkomnasta, svo komu þeir sér saman um vinnu verðið. Þegar ungi maðurinn fór að byggja freistaðist hann til að kaupa ódýrara efni og stakk svo mismuninum á verðinu í vasa sinn. Hann notaði meira af sandi en minna af steinlími heldur en vera átti í undir- stöðurnar, og keypti svo lélegan við al- staðar sem hann sæist ekki utaná. Vinnan var óvönduð og efnið lélegt. Eitt kvöld þegar byggingunni var lok- ið kallaði tengdafaðirinn hann og dóttur sína inn til sín og spurði: „Er húsið hið fullkomnasta sem þú gast bygt fyrir mig?“ „Já, herra minn,“ svaraði ungi maður- inn. „Það er gott sonur. Við mamma komum okkur saman um að gefa ykkur húsið. Hér eru lyklarnir." Foreldrarnir og unga konan vissu ekki hvernig Clarence leið innan brjósts. Hann vissi sjálfur hvernig hann hafði bygt, en ungu hjónin fluttu strax inn í húsið. Eftir nokkra mánuði fór steinsteypan í kjall- aranum að springa, og plásturinn fór að bila innan í herbergjunum. Svo einn dag- inn kom stór rigning og vatn lak gegn um þakið ofan á fallega póleraða borðið þeir- ra. Þegar konan kom þangað inn sat Clar- ence þar grátandi með hendurnar fyrir andlitinu. „Hvað gengur að þér elskan mín?“ spurði hún. „Helen, hefði ég vitað að við ættum að búa hér, þá hefði ég bygt betra hús.“ Hann hafði ekki gjört sitt besta og varð nú sjálfur að líða skömmina og skaðan. —C. L. PADDOCK

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.