Stjarnan - 01.09.1951, Síða 5

Stjarnan - 01.09.1951, Síða 5
STJARNAN 69 tilbiðja líkneski dýrsins . . . og kem- ur því til leiðar að enginn geti keypt eða selt nema hann hafi merkið, nafn dýrsins eða tölu nafns þess.“ Op. 13:15-17. Mörg ríki hafa nú þegar sunnudaga- lög. V. Guð varar menn við því að iaka merki dýrsins, „Og annar engill kom á eft- ir þeim og sagði hárri röddu: Ef einhver tilbiður dýrið og líkneski þess og fær merki á enni sitt eða hönd sína, þá skal sá hinn sami drekka af reiðivíni Guðs, sem byrl- að er óblandað í reiðibikar hans og hann mun kvalinn verða í eldi og brennisteini í augsýn heilagra engla og í augsýn lambsins." Op. 14:9-10. Guð aðvarar bæði móti líkneskinu og merkinu, og sendir aðvörunar- boðskapinn til yztu endimarka jarð- ar. - VI. Vér kjósum hverjum vér viljum fylgja? Vér stöndum annaðhvort með Guði oða með mönnum á móti- Guði. Guðrækni vor er einkisverð ef vér fylgjum manna boðum. „Og til ein- kis dýrka þeir mig, er þeir kenna lærdóma sem eru manna boðorð.“ Mark 7:7. Maðurinn ber ábyrgð á að fylgja því ljósi sem hann hefir. „Jesús sagði við þá: Ef þér væruð blindir væri ekki um synd að ræða hjá yður, en nú segið þér. Vér erum sjáandi. Synd yðar helst við.“ Jóh. 9:41. VII. Guðs fólk hefir viss einkenni. 1. Guðs börn flytja boðskapinn til endimarka heimsins. Op. 14:6-10. 2. Þau „varðveita boðorð Guðs og trúna á Jesúm.“ Op. 14:12. 3. Sem þjónar Guðs verða þau innsigl- uð. Op. 7:1-3. 4. Satan mun berjast móti þeim. Op. 12:17. 5. Þau vænta eftir og bíða komu Krists. Öruggur vegur til að forðast merki dýrsins er að varðveita boðorð Guðs öll hans boðorð, og hafa Jesú trú. Trúmenska vor við Krist og lögmál Guðs, er það sem um verður deilt. Og hvíldardagshaldið er prófið. Annríkisdagar „En orðrómurinn um hann útbreiddist því meir og mikill mannfjöldi kom saman til að hlýða á hann, og til þess að fá lækn- ing við sjúkleikum sínum. En sjálfur dró hann sig út úr til óbygðra staða og var þar á bæn“. Lúk. 5:15. Fjöldinn fylgdi honum til að geta heyrt orð hans. Hinir sjúku, höltu og líkþráu réttu út hendur sínar til að geta snert hann. Engum var vísað í burtu sem leitaði hjálpar til hans. Þegar kvöld var komið var hann svo þreyttur að lærisveinarnir voru hræddir um líf hans. í dagslokin fór Jesús burt í kyrþey til að vera einn með Guði. Hann dró sig út úr . . . og bað. Þv'í fjölmennara sem var umhverfis hann, því tilfinnanlegri var þörf hans á að vera einn þar sem hann gat hvílt í samveru við föðurinn. Líf Krists var fullkomlega helgað þörf annara, og hann fann nauðsyn að leita einveru í bæn til föðursins. þegar fólks- fjöldinn fór sína leið þá fór Jesús upp á fjallið til að vera einn með Guði og út- hella hjarta sínu fyrir honum, í bæn fyrir veikum, syndugum, þurfap.di mönnum. Það var ekki fyrir sjálfan hann heldur fyrir aðra sem hann lifði, vann og bað. Eftir langar nætur með Guði kom hann á morgnana til að veita mönnum lífsins ljós. Daglega fékk hann á ný fyllingu heil- ags anda. Orð hans voru endurlífgandi dögg frá himni, sem hann talaði til hinna þreyttu og undirokuðu. Það var einungis einn vegur til að halda við slíku lífi. Jesús lifði í stöðugu samfélagi við Guð. Menn flýja við og við til hins hæðsta og leita athvarfs undir skugga hins almáttuga, þeir hvíla þar um stund, og líf þeirra ber vott um hinn bless- unarríka árangur, en svo veikist trú þeir- ra, bænalífið fellur í mola og starf þeirra og áhrif líða við það. En líf Krists var ó- bifanlegt traust og stöðugt samfélag við Guð, þess vegna var starf hans svo áhrifa- mikið og fullkomið. Sem maður baðst hann fyrir þar til hans mannlega líf var svo fylt himneskum krafti sem sameinaði hið mannlega og hið guðdómlega. Hann öðlaðist líf frá Guði og veitti mönnum það.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.