Stjarnan - 01.08.1953, Side 3

Stjarnan - 01.08.1953, Side 3
STJARNAN 59 vorra er nær því eins rótgróin í eðli manna eins og það að vernda líf sitt. Vér höldum við sjálfsálit vort og hégómaskap eins og það gæti veitt oss eilíf gæði. En sjálfsálit og hroki draga fremur á eftir sér órósemi, óánægju og öfund, held- ur en að afla mönnum nokkurs góðs. Hroki þjakar, blindar og óvirðir manninn. Löng- un eftir að vera í góðu áliti hjá öðrum leiðir menn til að hafa alt eins fullkomið og nágrannarnir jafnvel þó efnin leyfi það ekki. Fatnaðurinn verður að fylgja nýjustu tízku. Heimilið og húsgögnin verða að vera af dýrustu og nýjustu tegund, og veitingar fyrir gestina hinar fullkomnustu. Vér verðum að fylgjast með, segja menn. Sjálfsálit skerðir skilning vorn á lífinu og skyldum þess, og hindrar sannar fram- farir. Því hrifnari sem vér erum af sjálf- um oss, því blindari verðum vér fyrir fegurðinni umhverfis. Hinn hrokafulli metur alt einskis virði nema sjálfan sig. Auðmýktin er alveg gagnstæð þessu. Vera má vér höfum orðið svo hrifnir af fegurð náttúrunnar að vér alveg gleymd- um sjálfum oss. Eða að vér yrðum svo frá oss numdir, er vér virtum fyrir oss dýrð hins fjölstirnda himins. Þegar vér lítum á sjálfa oss í samanburði við hinn óteljandi hnattafjölda, sem Guð hefir skapað, þá verðum vér hrifnir af mikilleik skaparans og hans handaverka og finnum þá um leið til þess að vér erum aðeins sem ryk á metaskálinni. Þá hverfur sjálfs álit vort og eftirsóknin eftir að sýnast fyrir öðrum. Ef vér lítum á ástand heimsins, neyð fólksins, sorg og erfiðleika þess, og hversu fjöldinn er blindur fyrir því eina nauð- synlega, þá dofnar hroki vor og sjálfsálit. Hvað erum vér í samanburði við lífið og fegurðina umhverfis oss? Því meira sem vér getum aflað oss frá uppsprettu þekkingarinnar, því lítilfj örlegri verðum vér í vorum eigin augum. Það er ekki ástæðulaust að sönn mikilmenni heimsins eru ætíð auðmjúkir, lausir við hroka og sjálfsálit. Sönn mikilmenska er laus við allan hroka. Það er einkennilegt að sú þekking, sem hrekur burt sjálfsálit vort, veitir oss einnig skilning á voru sanna verðmæti. Þó vér séum svo lítilfj örlegir sem vér erum, þá tilheyrum vér Guðs dýrðlega alheimi. Þótt staða vor sé lág, þá hefir líf vort verulega þýðingu. Guð hefir sett oss þar sem vér erum og falið oss þær skyldur sem á oss hvíla. Þegar vér minnumst þess, þá leys- um vér af hendi sem bezt vér getum hin lítilmótlegu skylduverk, vinnum þau eins og fyrir Guð, en ekki fyrir menn. Hvað getur losað oss við þetta sjálfs álit og eftirsókn eftir viðurkenning ann- ara sem er svo inngróið eðli voru? Hrifning yfir fegurð og dýrð náttúr- unnar dofnar eftir nokkra stund og getur ekki ummyndað oss eða breytt eðli voru. Að líta til Jesú og hafa hann stöðugt í huga og fyrir augum það getur frelsað oss frá hinu blindandi töfravaldi sjálfsálits og hroka. Drottinn hersveitanna gaf oss fyrir- mynd í sannri auðmýkt, er hann lagði af sér konungskrúða himinsins og kom hing- að til jarðar sem hjálparlaust barn, og fæddist í jötu. í Betlehem líktist sú nótt hverri annari nótt. En hirðarnir heyrðu englana syngja, og þrír vitringar frá Aust- urlöndum sáu stjörnu hans og komu til að veita honum lotningu. Jesús lítillækkaði sig vor vegna, og hann einn getur kent oss lexíu sannrar auðmýktar. Ef vér leyfum honum að sýna oss hvernig vér erum í raun og veru, þá mun hann hjálpa oss til að vinna sigur á sjálfsáliti voru og hroka. Staðan sem vér sóttumst eftir verður ef til vill gefin öðr- um, svo Jesús segir við oss: „Ég vil þú þjónir mér í þessari lægstu stöðu, svo þú getir lært af mér.“ Vera má hann láti oss finna til hinnar miklu ábyrgðar, er á oss hvílir, þegar hann gefur oss vandasama stöðu, svo vér finnum alls ekki til sjálfsálits, heldur hve ófull- komnir og óverðugir vér erum til að leysa af hendi það, sem oss er falið. Þegar vér sjáum hvað hroki og sjálfs- álit er ástæðulaust og heimskulegt, þá komum vér til Jesú að fá lækningu við því meini. Þegar vér auðmýkjum oss fyrir Guði þá opinfoerar hann sig fyrir oss í dýrð sinni. Þegar vér horfum á hann þá finnum vér ekki lengur til sársaukans, sem vér liðum, þegar snert var við sjálfs- áliti voru. Vér keppum ekki lengur eftir hrósi heimsins, því hjörtum vorum er full- nægt fyrir elsku hans til vor. Þegar vér höfum séð konunginn, Drott-

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.