Stjarnan - 01.08.1953, Blaðsíða 7
STJARNAN
63
Jesús sagði: „Alt vald er mér gefið á
himni og jörðu.“ Og 'hann býður þér og
mér: „Komið til mín, allir þér sem erfiðið
og þunga eruð 'hlaðnir, og ég mun veita
yður hvíld. Takið á yður mitt ok og lærið
af mér, því að ég er hógvær og af hjarta
lítillátur, og þá skuluð þér finna sálum
yðar hvíld, því mitt ok er indælt og byrði
mín létt.“ Matt. 11:28.-30.
„Sæll er sá er situr í skjóli hins hæsta,
sá er gistir í skugga hins almáttuga, sá
er segir við Drottinn: Hæli mitt og há-
borg, Guð minn, er ég trúi á, því hann
frelsar þig úr snöru fuglarans, frá drep-
sótt glötunarinnar. Hann skýlir þér með
fjöðrum sínum, undir vængjum hans mátt
þú hælis leita. Eigi þarft þú að óttast ógnir
næturinnar, eða örina sem flýgur um
daga, drepsóttina er reikar um í dimm-
unni eða sýkina sem geysar um hádegið.
Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund
þér til hægri handar, þá nær það ekki til
þín.“ Sálm. 91:1.—7.
„Verið öruggir og hughraustir, allir þér
er vonið á Drottinn." Sálm. 31:21.
☆ ☆ ☆
Treystum Guði af öllu hjarta
„Mínir sauðir heyra mína raust, ég
þekki þá og þeir fylgja mér, ég gef þeim
eilíft líf, og þeir skulu aldrei að eilífu
glatast, og enginn skal slíta þá úr minni
hendi.“ Jóh. 10:27.-28.
„Guð er trúr sem ekki mun leyfa að
þér freistist yfir megn fram, heldur mun
hann ásamt freistingunni einnig sjá um
að þér komist út úr henni og fáið staðist.“
lKor. 10:13.
„Náð mín nægir þér, því að mátturinn
* fullkomnast í veikleika, því vil ég gjarna
þess framar hrósa mér í veikleika mínum,
til þess að kraftur Krists megi taka sér
bústað hjá mér.“ 2Kor. 12:9.
„Guð minn mun uppfylla sérhverja
þörf yðar, eftir auðlegð sinni með dýrð
fyrir samfélag yðar við Krist Jesúm.“
Fil. 4:19.
☆ ☆ ☆ ■
Reynumst Guði trúir ali til enda
„Sá sem stöðugur stendur alt til enda,
hann mun hólpinn verða.“ Matt. 24:13.
„Vertu trúr alt til dauðans, og ég mun
gefa þér lífsins kórónu.“ Op. 2:10.
Sagt er frá því, að í síðasta stríðinu
var ein af trúsystrum vorum matarlaus í
þrjá daga, og var orðin mjög svöng. Hún
var nú á leið til kirkjunnar og mætti konu,
sem bauð henni heim til sín, því hún hefði
mat, en konan kvaðst vera á leið til kirkju
og þakkaði fyrir ef hún mætti koma eftir
að guðsþjónustunni væri lokið. Seinna um
daginn, er hún var á leið til vinkonu sinn-
ar, fann hún ekki húsið, heldur aðeins
rústirnar, þar sem það hafði staðið. Hún
mat meira að fara til guðsþjónustu heldur
en seðja hungur sitt. Guð verndaði líf
hennar og uppfylti þarfir hennar á annan
hátt. Ef vér leitum fyrst Guðs ríkis, játum
syndir vorar og fáum þær fyrirgefnar, þá
getum vér öruggir treyst Guði og fengið
reynslu fyrir varðveizlu hans og trúfesti.
„Sælir eru þeir, sem afbrotin eru fyrir-
gefin og syndir þeirra huldar.“ Róm. 4:7.
„Ákalla mig á degi neyðarinnar: ég
mun frelsa þig, og þú skalt vegsama mig.“
Sálm. 50:15.
--------☆---------
Trúboði nokkur sat á þilfari skipsins,
sem var að flytja hann til trúboðsstöðv-
anna og las í Biblíunni. Fjöldi fólks var
með skipinu, þar á meðal vantrúarmaður
einn, sem ætlaði að sýna fyndni sína og
gjöra spaug að trúboðanum í áheyrn fé-
laga sinna. Hann spurði hvar þessi Guð
hans væri, tók svo upp sjónauka sinn,
horfði upp í himininn og sagði: „Ég sé
Guð ekki svo að hann getur ekki verið
þar.“ Hann beindi sjónaukanum að hafinu,
ekki sá hann Guð þar. Svo horfði hann í
allar áttir gegn um sjónaukann, en sá ekki
Guð, svo hann fullyrti að enginn Guð væri
til. Trúboðinn svaraði engu en fletti upp í
Biblíu sinni og lás upphátt: „Sælir eru
hreinhjartaðir, því þeir munu Guð sjá.“
Matt. 5:5.
☆ ☆ ☆
Þegar Bandaríkin voru að reyna kjarn-
orkusprengjuna á eyjunni Bikini, þá var
meðal áhorfendanna læknir einn, sem
seinna skrifaði bók um þennan atburð. Það
sem vakti mesta eftirtekt var nafn bókar-
innar: „Enginn felustaður.“ En þar hafði
hann rangt fyrir sér, því Guðs óbrigðula
orð fullvissar oss um varðveizlu. „Því að