Stjarnan - 01.08.1953, Side 4

Stjarnan - 01.08.1953, Side 4
60 STJARNAN inn hersveitanna í dýrð hans, þá munum vér ekki lengur keppa eftir upp'hefð og áliþi manna, og ekki verða sárir yfir því, að aðrir eru teknir fram yfir oss. Frjálsræði og sjálfstæði fylgir sannri auðmýkt. Engin öfundar tilfinning særir hjarta þess, sem hefir lært af Jesús að vera auðmjúkur og lítlilátur. Upphafning og álit annara gleður og hughreystir þá. Hinir auðmjúku munu landið erfa. Það voru hirðarnir sem stóðu yfir hjörð sinni, en ekki embættismennirnir við hirðina, sem heyrðu englasönginn. Vér skulúm því gefa Jesú hjörtu vor, svo hann geti um- myndað þau og kent oss lexíu sannrar auðmýktar. —EDITH PETERSON -------☆-------- „Hafið hugann á því himneska" Vér skiljum ekki þá möguleika, sem Guð hefir gefið oss í sjáifum oss og hugsanalífi voru. Það sorglega er að synd- ugur maður lætur huga sinn dvelja við nær því alt annað heldur en skapara sinn og Drottinn, eða hafa samfélag við hann. Maðurinn reynir sjaldan að brúa djúpið milli himins og jarðar með því að hugsa um hið eilífa og ósýnilega og að biðja til Guðs. Hugsanir hans snúast venjulega um hið jarðneska. Á þennan hátt hefir hann ekkert samband við hásæti Guðs, og Guð er sjaldan í huga hans eða honum fyrir hugskotssjónum. Hann fær betri skilning á því sem hugur hans dvelur við, sem er viðfangsefni viðskiftamanna, félagsmál, skemtanir eða eitt'hvað sem verra er. Það er engin furða þó Guð og hans ríki sé ekki veruleiki fyrir fjöldanum af fólki. Engir trúarbragðasiðir eða kirkjuganga einu sinni í viku getur breytt þessu og alt í einu snúið hug og hjarta mannsins til Guðs, svo hann geti notið dýrðlegs fagnaðar í samfélaginu við hann. Það væri of mikið að vænta þess. Það sem maðurinn er með lífi og sál 6 daga vik- unnar, það er hann líklegastur til að vera þann sjöunda. Ef hugsanir hans snúast stöðugt um jarðneska hluti hvenær sem hann er vakandi alla virku daga vikunnar, þá væri það blátt áfram kraftaverk, ef allar hugsanir hans snerust um himneska hluti á helgidegi hans. Ef nálægð Guðs á að verða veruleiki fyrir oss, þá þurfum vér alla daga vikunnar að leita hans og hugsa um hvað honum er þóknanlegt. Margir sem bera kristið nafn kannast við að Guð og hans ríki sé ekki skýr veru- leikihjá þeim. Það er alvarlegt ástand, því tilgangur kristindómsins er fremur öllu öðru, að veita oss þekking á Guði, og undir- búa oss undir borgararétt á himni. Jesús segir: „Þetta er hið eilífa lífið, að þeir þekki þig hinn eina sanna Guð og þann sem þú sendir Jesúm Krist.“ Jóh. 17:3. Hann segir ennfremur: „I húsi föður míns eru mörg híbýli, væri ekki svo mundi ég þá hafa sagt yður að ég færi burt að búa yður stað, og þegar ég er farinn burt og hefi búið yður stað, kem ég aftur og mun taka yður til mín, til þess að þér séuð þar sem ég er.“ Jóh. 14:2.—-3. Ef Guð og himnaríki er ekki veruleiki í huga vorum, þá eru trúarbrögð vor ekki veruleiki, hversu myndarleg sem kirkju- byggingin er eða fjölmennur söfnuðurinn. Tilgangurinn að sækja kirkju er ekki það að sjá skrautlega kirkjubyggingu eða mæta skemtilegu fólki, 'heldur að mæta Guði og búa sig undir að dvelja hjá honum eilíflega. En ef Guð og himnaríki er að- eins óskýr, þokukend hugmynd hjá oss, hvernig getum vér þá haft stöðugan og vaxandi áhuga fyrir því að lifa samkvæmt trúarjátning vorri og undirbúa oss undir himnaríki? Nú vaknar spurningin: Hvernig getur Guð og hans ríki orðið veruleiki fyrir oss? Framför vors andlega lífs er undir þessu svari komin. Enginn hefir ánægju af að lifa í þoku og sjá menn eins og tré í hreyf- ingu. Vitnisburður helgra manna gegn um aldirnar bendir á að það er mögulegt að Guð og hans dýrðarríki verði æ verulegra eftir því sem árin líða. En vér verðum að lifa samkvæmt trúarjátning vorri, eins og þessir Guðs menn gjörðu ef vér viljum njóta sömu trúarfullvissu og þeir höfðu. Til eru safnaðarmenn sem vænta að á einhvern yfirnáttúrulegan hátt muni Guð og himnaríki verða opinberað fyrir þeim, án þess þeir eigi nokkurn þátt í því sjálfir. Þeir munu verða fyrir vonbrigð- um. Það hefir verið aðeins örsjaldan að Guði hafi þóknast að opna augu dauðlegra manna, svo þeir gætu séð komandi heim, og oftast hefir þetta verið opinberað að-

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.