Stjarnan - 01.01.1954, Page 1

Stjarnan - 01.01.1954, Page 1
cZ<95 S+i STJARNAN JANÚAR, 1954 LUNDAR, MANITOBA Gleðiiegt nýár 1954 Nýr náðardagur, nýtt náðarár, er enn- þá upprunnið yfir oss. Öll Guðs dýrmætu fyrirheit eru jafn áreiðanleg nú eins og þegar þau voru gefin fyrir þúsundum ára. Það er meira en þess vert að rifja þau upp og gefa gaum að þeim, svo vér getum fengið eigin reynslu fyrir trúfesti Guðs. Nú skulum vér athuga nokkur þessara loforða eða tilboða Guðs til vor. Allir þrá öryggi, frið og hamingju. Jesús, sem hefir alt vald á himni og jörðu, býður oss: „Komið til mín, allir þér, sem erfiði og þunga eruð hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld.“ Þetta er fyrsta skilyrðið fyrir hamingju, að koma til Jesú, trúa á hann og hlýða honum. Það er alment um þennan tíma árs að foreldrar og aðrir, sem geta, gefa börnum sínum og ástvin- um gjafir, en Jesús segir: „Ef nú þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar ^gjafir, hversu miklu fremur mun þá faðirinn á himni gefa þeim' heilag- an anda, sem hann biðja“. Lúk. 11:13. Skilyrði fyrir þessari himnesku gjöf er hlýðni við Guðs orð. Post. 5:32. Meir að segja, ef vér mætum því skilyrði þá geium vér fengið hvað sem vér biðjum um. „Hvað sem vér biðjum um fáum vér hjá honum af því að vér höldum boðorð hans og gjörum það, sem honum er þóknan- legt“. 1. Jóh. 3:22. „Sérhvað það, er þér beiðist í bæninni trúaðir munuð þér öðlast“. Matt. 21:22. „Hvað sem þér biðjið um í mínu nafni, það mun ég gjöra, svo faðirinn verði veg- samlegur í syninum“. Jóh. 14:13. Af þessu sjáum vér, að það eru engin takmörk fyrir því, sem vér getum beðið um og fengið, ef vér aðeins hlýðum Guðs orði og gjörum hans vilja af öllu hjarta. Þá þurfum vér ekki að óttast skort, því Guð mun uppfylla sérhverja þörf vora. Fil. 4:19. Enginn þarf að kvíða fyrir sjúk- dómi, því Drottinn vor er læknir allra meina. Vér getum með gleði horft fram á elliárin, því Drottinn hefir sjálfur sagt: „Ég mun- alls ekki sleppa þér og eigi heldur yfirgefa þig“. Hebr. 13:5. í hættu og erfiðleikum býður hann oss: „Ákalla mig í neyðinni, ég mun frelsa þig og þú skalt vegsama mig“. Sálm. 50:15. Jesús, sem elskaði okkur svo mikið, að hann var fús til að líða dauðahegninguna, sem vér höfðum verðskuldað með synd- um vorum og boðorðabrotum, hann segir til ástvina og lærisveina sinna: „Sjá, ég er með yður alla daga, alt til enda ver- aldarinnar". Matt. 28:20. Nú þegar vér vitum þetta og höfum uppfylt skilyrðin, þá getum vér frá djúpi hjartans sagt: „Þa3 er himneskt að lifa og bíða þess að Jesús komi innan skams til að taka okkur heim til sín og gefa okkur ríkið með sér“. Guð gefi ykkur öllum gleðilegt og sann- farsælt nýár, í Jesú nafni, vinir mínir. (UHDSBÓKASAFM tAI '05 558 —S. JOHNSON

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.