Stjarnan - 01.01.1954, Qupperneq 3

Stjarnan - 01.01.1954, Qupperneq 3
STJARNAN 3 það skal aldrei undir lok líða, og hans ríki aldrei til grunna ganga“. Dan. 7:9.—13. Hvílík dýrðarsjón, sem spámaðurinn sá. Hve alvarlegt á að líta. Það er samkvæmt því, sem ritað er í bækurnar sem menn verða dæmdir. „Ég sá þá dauðu, smáa og stóra, standa frammi fyrir hásætinu, og bókunum var lokið upp. þá var annari bók lokið upp, það var lífs- ins bók, og voru þeir dauðu dæmdir eftir þeirra verkum, sem skrifuð voru í bók- unum“. Op. 20:12. Syndarans eina von um sáluhjálp er að nota sér tilboð Drottins, játa syndir sínar og fá þær fyrirgefnar áður en dómurinn er settur. Einungis með því að viðurkenna syndir sínar, iðrast þeirra og tileinka sér í trú kærleiksfórn Krists á krossinum fyrir oss, getum vér öðlast sáluhjálp. Það þarf ekki að trufla rósemi vora, þó vér vitum að vér verðum að mæta fyrir rétti, heldur er hitt mesta aívöru- efnið, hvort við séum undirbúnir þann dag og þá stund. Ef vér höfum Jesúm fyrir talsmann vorn og málafærslumann, þá þurfum vér ekki að óttast. Sá sem hefir Jesúm fyrir talsmann sinn verður ekki dæmdur sekur. Hann hefir nafn sitt skráð í lífsbók Lambsins og öðlast eilíft líf. „Sá sem sigrar skal skrýðast hvítum bún- ingi, og hans nafn skal ég ekki afmá af lífsbókinni, ég skal kannast við hans nafn fyrir mínum Föður og fyrir hans englum“. Op. 3:5. Þá verður uppfylt loforðið, sem gefið er bæði í Nýja og Gamla Testament- inu. „Á þeim tíma munu landsmenn þínir frelsaðir verða, allir þeir sem skráðir finn- ast í bókinni“. Dan. 12:1. Vor eilífa velferð er undir þessu komin. Vér verðum að mæta fyrir rétti, það er óhjákvæmilegt. Meðtak þú Jesúm sem frelsara þinn og leiðtoga hvern dag og hverja stund lífs þíns, þá mun hann taka að sér mál þitt frammi fyrir hæsta rétti himinsins. Sú stund kemur að dóminum er lokið og hið guðdómlega ákvæði verður gefið út: „Sá rangláti haldi áfram að gjöra rangt, sá saurlífi haldi áfram saurlifnaðinum, sá réttláti haldi áfram í réttlætinu, sá heilagi haldi áfram í heilagleikanum“. Op. 22:11. Eitthvert hið einkennilegasta glæpa- mál, sem fyrir hefir komið í Bandaríkjun- um, var mál George Wilsons. Hann var dæmdur til dauða fyrir að ræna póstvagn nálægt Reading, Pennsylvania, árið 1829. Fjórtánda júní 1830 veitti Jackson forseti honum náð og fyrirgefningu, en hinn dauðadæmdi maður hafði eitthvað á móti forsetanum, svo hann afþakkaði náðunar- bréfið. Nú vissu dómstólarnir ekki hvað gjöra skyldi. Hér var maður, sem hafði fengið glæp fyrirgefinn, en vildi ekki þiggja fyrirgefningu. Átti að neyða upp á hann fyrirgefningunni? Hæsti réttur Bandaríkjanna tók málið til meðferðar. Ákvæði þeirra var, að til þess að fyrirgefn- ing næði tilgangi sínum, þá yrði að af- henda hana þeim sem ætti að njóta henn- ar, ef hann vildi ekki þiggja hana, þá fundu þeir ekki að réttvísin hefði vald til að neyða manninn til að taka á móti henni. George Wilson misti líf sitt af því hann hafnaði fyrirgefningu forsetans. Þetta virðist bæði ótrúlegt og heimskulegt, en hversu margir hafna daglega með líferni sínu þeirri einu hjálp, sem getur frelsað þá á hinum mikla degi dómsins. Gefum Jesú líf vort, meðtökum hann og fylgjum honum, þá getum vér glaðst af að vita, að syndir vorar eru fyrirgefnar fyrir hans nafn og sakir. 1. Jóh. 2:12. —M. K. ECKENROTH ----------.•&.------- Er endurkoma Krists nauðsynieg? Vér þurfum hjálp. Miljónir manna kalla eftir leiðtoga, sem geti leitt þá út frá þeim glundroða í stjórnmálum, félags- málum og andlegum efnum, sem vér erum flæktir í. Þegar leiðtogi var kosinn fyrir allar sameinuðu þjóðirnar, þá gengu allir sem elskuðu frið undir merki hans til að hlýða skilyrðislaust öllum skipunum þans. Hví- lík ábyrgð. Mikilmenni liðinna tíma, hershöfðingj- ar og sigurvegarar, hafa mætt kröfu síns tíma, en samt erum vér ennþá staddir í samskonar vandræðum. Þeir héldu þeir hefðu ráðið fram úr vandamálunum, frelsað mannkynið og hafið menn upp yfir stríðshættuna. Nú sjáum vér að þeim

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.