Stjarnan - 01.03.1954, Síða 2

Stjarnan - 01.03.1954, Síða 2
18 STJARNAN svo þeir geti ekki skilið eða vilji gefa gaum að áformi Guðs. Spádómar heilagrar Ritningar benda á bæði hið táldræga á- form og Guðs óbrigðula áform með frið- sæla stjórn heimsins. Uppástunga um al- heimsstjórn, sem mun reynast tál stendur hjá Jes. 2:3.—4. „Og margar þjóðir munu búast til ferðar og segja: Komið, förum upp á fjall Drottins til húss Jakobs Guðs, svo hann kenni oss sína vegu, og vér megum ganga á hans stigum; því frá Zíon mun kenning út ganga og orð Drottins frá Jerúsalem. Og hann mun dæma meðal heiðingjanna og skera úr málum margra þjóða, og þær munu smíða plógjárn úr sverðum sínum og sniðla úr spjótum sín- um. Engin þjóð skal sverð reiða að annari þjóð og ekki skulu þeir temja sér hernað framar.“ Undir slíkri stjórn munu alheims trúarbrögð verða grundvallarlög heimsins. Þetta verður tilraun manna til að umvenda heiminum og stofna veraldlegt þúsund ára friðarríki. Guð gefur oss alvarlega áminning um að reiða oss ekki á mennina. „Þér skuluð ekki kalla heilagt alt sem þetta fólk kallar heilagt, og ekki óttast það sem það óttast og eigi skelfast. Herklæðist, þér skuluð samt láta hugfallast. Takið saman ráð yðar, þau skulu að engu verða. Mælið málum yðar, þau skulu engan framgang fá, því Guð er með oss.“ Jes. 8:12., 9., 10. Vér þurfum að skilja Guðs orð þessu efni viðvíkjandi. Áform satans með al- heimsstjórn mun enda með skelfingu eyði- leggingarinnar. Áform Guðs með stjórn heimsins mun ná tilgangi sínum og fram- leiða stöðugan frið og eilífa sáluhjálp fyrir þjóna hans. Vér ættum að gefa gaum að spádómum • Biblíunnar eins og ljósi sem skín á myrk- um stað. Gæti yður komið til hugar að keyra bíl að nóttu til á alfaravegi án þess að snúa ljósunum á til að sýna veginn framundan? Vissulega ekki. Það er eins nauðsynlegt fyrir þig að rannsaka spádóma Biblíunnar eins og að hafa ljósin á bílnum að nóttu til. í Dan. öðrum kap. er áform Guðs með stöðuga, réttláta alheimsstjórn sem bráðum verður stofnsett. Hver einasti maður hefir tækifæri til að verða borgari þessa eilífa friðarríkis. Guð gefi að vér verðum reiðubúnir, og þess verðugir að fá þarinngöngu. —J. L. SHULER Lesið „Leyndardóm framtíðarinnar“ í febrúarblaði Stjörnunnar. —S. J. -☆- Er ekki nóg að Sumir halda því fram, að það skifti engu hverju maður trúir ef hann er ein- lægur í trú sinni. Þeir segja öll trúarbrögð séu aðeins mismunandi leiðir, sem allar stefni að sama takmarki, og séum vér ein- lægir í trú vorri, þá gildi einu hver trúar- atriðin eru. Er þetta sannleikur? Nei, og aftur nei. Fyrir nokk’rum árum, er ég keyrði frá Iowa til Florida gegn um Wabash dalinn í Indíana, þá varð ég þess var að ég hafði vilst. Ég fór heim á bændabýli og fékk þar ieiðbeiningu, hélt svo af stað eins og mér hafði verið sagt til vegar. Nú var ég viss um að vera á réttri leið og keyrði hratt. Hugsið yður undrun mína og gremju, er ég sneri inn á næstu hliðarbraut, að sjá þá rétt fram undan, ekki aðalveginn sem ég vænti eftir, heldur beljandi strauminn í Wabash ánni. Einlægni mín í þeirri trú, vera einlægur? að ég væri á réttri leið, nægði ekki í þetta skifti. Ég var á rangri leið og einlægni mín að fara inn á hana hjálpaði mér alls ekk- ert. Hér var ekkert um að velja. Ég varð að snúa aftur. Hið sama á sér stað í vorri andlegu reynslu. Einlægni er dygð, en hún getur ekki komið í stað þekkingar á Guðs vilja og hlýðni við orð hans. Guð hefir séð um að vér getum öðlast þekkingu á sannleik- anum, hann krefst þess af oss að vér leit- um hans og fylgjum honum, að vér gjörum Guðs vilja af hjarta. Jesús er hinn eini áreiðanlegi vegur. Hann sagði: „Ég er vegurinn, sannleikur- inn og lífið, enginn kemur til föðursins nema fyrir mig.“ Jóh. 14:6. Af þessu sjáum vér ljóst að það eru ekki margar leiðir til himins. Það er aðeins einn vegur, sá sem ekki fylgir þeim eina vegi nær aldrei

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.