Stjarnan - 01.03.1954, Qupperneq 4
20
STJARNAN
Ávalt síðan hafa íbúar heimsins liðið sorg,
þjáningar og dauða.
Áform Guðs með þennan heim hefir alls
ekki breyst. Hann elskar heiminn og alla
íbúa hans. Hann elskaði heiminn svo mikið,
að „hann gaf sinn eingetinn son til þess
að hver sem á hann trúir ekki glatist
heldur hafi eilíft líf.“ Jóh.-3:16. Dauði
Krists á krossinum var lausnargjald fyrir
alt sem tapað var vegna syndarinnar. Þessi
endurlausn nær yfir jörðina sjálfa og hvert
einasta mannsbarn er meðtekur Jesúm sem
frelsara sinn.
Það virðist sem syndin hafi haft yfir-
höndina í heiminum þessi 6000 ár. Þjáning-
ar, sorg og volæði hefir verið hlutskifti
mannkynsins. Ranglætið hefir orsakað alls
kyns neyð og vandræði fyrir íbúa jarðar-
innar.
Alt í gegnum aldirnar hefir Guð þó
opinberað börnum sínum áform sitt með
fullkominn heim bygðan hamingjusömu
fólki. Hann lofaði Abraham að af hans sæði
skyldu allar þjóðir jarðarinnar blessun
hljóta. Fyrir hér um bil 2700 árum sagði
Guð við spámanninn Jesajas: „Því sjá, ég
skapa nýjan himin og nýja jörð, og hins
fyrra skal ekki minst verða og það ssal
engum í hug koma.“ Jes. 65:17.
í uppreisn sinni gegn Guði hefir mað-
urinn farið svo langt sem hann kemst,
og ef hann væri látinn sjálfráður mundi
hann brátt eyðileggja alt líf á jörðinni.
Með atomsprengjur, gerla og önnur eyði-
leggingar verkfæri í höndum óguðlegra
manna virðist sem þessi heimur sé kominn
að enda tilveru sinnar. En Guð hefir önnur
áform. Hann mun skyndilega stöðva allar
eyðileggingartilraunir manna. Hans fyrir-
ætlun er að endurskapa jörðina til fegurðar
og friðar Eden aldingarðs.
Viðvíkjandi þessu áformi Guðs er oss
sagt í Biblíunni að: „Ekki er Drottinn
seinn á sér með fyrirheitið, þótt sumir
álíti það seinlæti, heldur er hann lang-
lyndur við yður, þar eð hann vill ekki að
neinir glatist heldur að allir komist til
iðrunar. En dagur Drottins mun koma sem
þjófur á nóttu, þá munu himnarnir með
miklum gný líða undir lok, frumefnin
sundurleysast í brennandi hita, og jörðin
og þau verk sem á henni eru uppbrenna.
Þar eð alt þetta ferst þannig, hversu ber
yður þá að framganga í heilagri breytni
og guðrækni, þannig að þér væntið eftir
og flýtið fyrir komu Guðs dags, en vegna
hans munu himnarnir sundurleysast í eldi
og frumefnin bráðna af brennandi hita.
En vér væntum eftir fyrirheiti hans nýs
himins og nýrrar jarðar þar sem réttlæti
býr.“ 2 Pét. 3:9.—13.
Jóhannes postuli minnist á þetta er
hann segir: „Sá, sem í hásætinu sat sagði:
Sjá, ég gjöri alla hluti nýja.“ Op. 21:5.
Það felst í þessari hugsun að efnið í
gömlu jörðinni, eftir að það er hreinsað
með eldi verður notað til að mynda hina
nýju jörð.
Á þessari hreinsuðu, ummynduðu nýju
jörð mun synd eða sorg aldrei eiga sér
stað. Þar verður hin nýja Jerúsalem höfuð-
borg ríkisins. Hún „Kemur niður af himni
frá Guði búin sem brúður er skartar fyrir
manni sínum.“ Veggir borgarinnar verða
úr gagnsæjum gimsteini, og göturnar af
skíru gulli. Eilífðar heimili hinna frelsuðu
verður verulegur bústaður þar sem inn-
byggjendurnir munu hafa starf fyrir hendi,
sem er í fullu samræmi við fegurð og full-
komleika heimilis þeirra. „Þeir munu reisa
hús og búa í þeim, og þeir munu planta
víngarða og eta ávöxtu þeirra. Eigi munu
þeir reisa og aðrir í búa, eigi munu þeir
planta og aðrir eta, því aldur fólks míns
mun vera sem aldur trjánna, og mínir út-
völdu skulu sjálfir njóta handaverka
sinna.“ Jes. 65:21.—22.
Það verður ekki einungis fegurð borg-
arinnar sem mun gleðja fólkið og auka
hamingju þess, heldur verða fyrir utan
borgina hæðir og hólar, hægt rennandi
fljót, blómareitir, jurtagarðar og aldin-
garðar, sem veita öllum innbyggjendum
næga vinnu, og þeir verða aldrei þreyttir
né óhreinir við vinnuna. Þeir munu byggja
sín eigin heimili og búa í þeim við full-
sælu eilíflega.
í þessu dýrðlega landi mun Guð sjálfur
dvelja meðal vor. Op. 21:3. Þar verður
enginn veikur. Jes. 33:24. Þjáningar sorg
og dauði þekkjast þar ekki. Op. 21:4.
Þar verður hvorki stríð né fjárþröng. Nóg
pláss fyrir alla, og allir njóta þess sem
hjarta þeirra girnist. Synd, sorg og stríð
endaði í eldinum sem hreinsaði jörðina.
Enginn þjóðarígur eða afbrýðissemi finst