Stjarnan - 01.03.1954, Síða 8

Stjarnan - 01.03.1954, Síða 8
24 STJARNAN STJARNAN Authorized as seeond class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa Ontario. Ritstjórn og afgreitislu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar, Man. Can. breyting á hjarta mannsins". Þetta er rétt ályktað, en til þess að öðlast nýtt hjarta verður maðurinn að meðtaka fagnaðar- erindi Krists og fylgja lífsstefnu hans, skilja hvaða kröfur eru gjörðar til borgara Guðs ríkis og vera þeim fullkomlega sam- þykkur. Vér getum ekki skilið leyndar- dóm Guðs náðar ríkis fyr en vér erum endurfæddir, en vér getum skilið nóg til þess að vér þráum og sækjumst eftir borgararétti Guðs barna. Endurfæddur maður öðlast nýja og full- komnari opinberun a-f Jesú Kristi er hann les Guðs orð, biður til Guðs og helgar líf sitt þjónustu hans. Þegar Guðs andi hefir svo ummyndað líf vort að vér endurspegl- um Jesúm í voru daglega lífi, þá erum vér undirbúnir aðra breytingu, sem er takmark endurfæðingarinnar, það er að verða iík- amlega ummyndaður eftir Jesú mynd þeg- ar hann kemur í dýrð sinni. —D. A. DELAFIELD ---------☆--------- Nú er sú æskilega tíð Maður nokkur var á ferð í vagni með hest fyrir. Innan skams kom eitthvað fyrir sem fældi hestinn. Maðurinn misti taum- haldið og um leið alla stjórn á hestinum, er hljóp sem óður væri. Maðurinn var í mestu lífshættu og sömuleiðis hver sem. yrði á vegi hans. Fólk þyrptist saman, en það var hættuspil að gjöra nokkra tilraun til að stöðva hestinn. Loks stökk maður einn út úr mannþrönginni og honum lán- aðist að kasta handlegg sínum um háls hestinum og hékk á honum þannig þar til hann náði í tauminn og smám saman gat hann stjórnað hestinum. Keyrslumaður þakkaði velgjörðamanni sínum fyrir hjálp- ina, svo hvarf þessi vinur hans inn í mann- þröngina og ekkert heyrðist frá honum. Löngum tíma seinna var þessi sami keyrslumaður kallaður fyrir rétt. Hann hafði framið glæp og nú var líf hans í veði, því brot hans mundi leiða dauðadóm yfir hann. Áður en dómur var uppkveðinn segir hinn seki við dómarann, eftir að hann hafði virt hann nákvæmlega fyrir sér. „Við höf- um sést áður, þú frelsaðir Iíf mitt um árið með því að stöðva viltan hest. Manstu ekki eftir mér? Ó, frelsaðu mig nú“. Dómarinn svaraði: „Ég man eftir þér, þá var ég frelsari þinn, en nú er skylda mín að dæma þig samkvæmt lögum lands- ins, sem þú hefir brotið“. Svo var dómur- inn uppkveðinn og hinn seki leiddur burt. Jesús kom til að leita þess sem glatað var og frelsa það. Hann kom til að frelsa þig. Hefir þú meðtekið fyrirgefningu synda þinna hjá honum- og um leið öðlast frá honum kraft til að sigra synd og freisting- ar? Hefir kærleikur hans til þín náð svo sterkum tökum á hjarta þínu, að þú stöðugt vakir og biður svo þú fallir ekki í freistni og syndgir móti honum? Ef þú hefir enn- þá ekki meðtekið Jesúm sem frelsara þinn og Drottinn þá gjör það nú. Það getur orðið of seint á morgun. Innan skams kemur Jesús sem dómari lifendra og dauðra, þá er of seint að biðja um hjálp. Snú þér til hans nú, svo að þegar hann kemur í dýrð sinni þú getir mætt honum með fögnuði. —C. A. REEVES ---------☆--------- Yfir 20 miljónir Ameríkumanna spila á spil eitt eða fleiri kvöld á mánuði, segja þeir sem búa til spilin og verzla með þau. ☆ ☆ ☆ Rafmagnsljós voru fyrst notuð í far- þegalestum járnbrautanna í Ameríku árið 1887. ☆ ☆ ☆ Rússar hafa gefið í skyn, að þeir vildu leyfa norskum og dönskum ferðamönnum að heimsækja land sitt, ef þeir vildu leyfa Rússum að heimsækja Noreg og Dan- mörku. ☆ ☆ ☆ París hefir eitt tré að tiltölu fyrir hverja 10 innbyggjendur. Nýlega töldu menn 400,000 tré, sem stóðu fram með strætunum og inni í skemtigörðum borgarinnar.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.