Stjarnan - 01.10.1954, Qupperneq 3

Stjarnan - 01.10.1954, Qupperneq 3
STJARNAN 75 hefði rétt fyrir sér, og að fjöldi fólks út um heiminn héldi sjöunda daginn, Guðs heilaga hvíldardag. Seinna var einn af starfsmönnum vorum sendur til að heimsækja bónda þennan og gaf honum nokkra Biblíulestra, svo leiddi bóndinn ýmsa fleiri til að hlýða Guðs boð- orðum. í júlí 1953 voru haldnar opinberar sam- komur í þessu þorpi, margir meðtóku fagn- aðarerindið, gáfu Guði hjarta sitt og voru skírðir, og söfnuður var stofnaður þar. —R. H. ADAIR ------------☆------------— Á leið til Bogota Hér er eitt dæmi upp á einlægni og al- vöru mótmælenda í Mið-Ameríku. Þetta er reynsla Gusava Olaya, sem einn af starfsmönnum vorum segir frá: Það var miklu ódýrara að ferðást ríð- andi heldur en með vagni yfir norður- hluta Andesfjallanna frá Tula til Bogota höfuðstaðar Colombia ríkisins. En það var þó ódýrast að fara gangandi, og kostnaður- inn yrði minstur ef maður gengi berfættur. Skósólarnir yrðu útslitnir eftir ferðina, svo Gusava tók af sér skóna og gekk berfætt- ur meiri hluta leiðarinnar, bar skóna á bakinu en hélt á fötum og nesti í hend- inni, er hann ferðaðist yfir fjöllin til að sjá litlu dóttur sína Sita Eiena. Hann hafði ekki séð hana í tvö ár, svo ferðin var ánægjuefni. I þrjá daga hafði Olaya haldið áfram göngu sinni, fjórða daginn sá hann annan mann skamt á undan sér á sömu bráutinni svo hann flýtti sér að ná honum. „Hvernig líður þér, vinur?“ spurði hann, „ertu á leið til Bogota?“ „Já, þangað er ferðinni heitið“. „Eigum við ekki að fylgjast að, svo við getum talað saman á leiðinni?11 „Með mestu ánægju“, svaraði ferðamað- urinn. „Ég er á pílagrímsför til heiðurs vorri elskuðu Guðs móður á Monserrata í höfuðborginni“. „Ég er á ferð til Bogota til að sjá litlu dóttur mína“. „Þá tefur það þig að fylgjast með mér, því ég hef lofað að staðnæmast í öllum kirkjum á leiðinni til heiðurs dýrðlingi vorum og í hverjum stað lesa 5 Pater Noster, 5 Ave Maria og 5 Milgros“. „Ég skal bíða eftir þér meðan þú upp- fyllir loforð þín“, sagði Olaya. Alla leið þessa fimm daga var hinn nýi vinur Olaya að tala um ferð sína og krafta- verk, sem dýrðlingarnir hefðu gjört, oft læknað sjúkt fólk, varðveitt menn í ó- veðri og ýmistlegt fleira. Olaya talaði varla orð, hlustaði aðeins kurteislega á vin sinn. Síðari hluta dags áttunda daginn, þegar geislar kvöldsólarinnar skreyttu himin- hvolfið, þá sneru þeir um horn á veginum og við þeim blasti hin fagra höfuðborg. Samferðamaðurinn féll á kné og hrópaði: „Santa Fe de Bagota. Olaya, hinn hugrakki Quesada, stofnaði þessa borg, hann bygði kirkju og kringum hana 12 heimili, sem hann nefndi eftir hinum 12 postulum Krists. Ó, Monserrata, kirkja hinnar hei- lögu meyjar! — Olaya, pílagrímsför mín er þegar á enda, en mér datt í hug, rétt núna: Ert þú alveg trúlaus? Ekki í eitt einasta skifti á leið okkar hefir þú talið perlurnar. Ekki í eitt einasta skifti hefir þú gjört krossmark, og aldrei hef ég heyrt þig segja Ave Maria, ekki í eitt einasta skifti, ertu alveg trúlaus?11 Mjög dýrmæt trú „Ég hef dýrmæta trú, það er trú Guðs sonar, vors elskaða frelsara. Þú ættir að þekkja mína trú, þá mundir þú sannfærast um hve fögur hún er“. „Segðu mér frá henni, Oiaya“. „Við erum nú nærri komnir áfram, svo ég hef ekki nógan tíma t*il þess, þú verður að heyra alt um trú mína, en ég skal segja þér alt, ef við getum orðið samferða til baka eftir 10 daga“. Þeir komu sér saman um hvaða dag þeir skyldu leggja af stað heimleiðis; rétt á eftir skildu þeir og hver fór sína leið. Mánudagsmorgun 10 dögum seinna voru báðir á leið sinni heim, og báðir voru mjög ánægðir með dvöl sína í höfuð- staðnum. „Olaya, manstu, þú lofaðir að segja mér frá trú þinni á heimleið okkar?“ „Já, ég hef beðið þess með eftirvænt- ingu að verða þér samferða heim aftur. Nú þarft þú ekki að hugsa um að efna

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.