Stjarnan - 01.10.1954, Side 6

Stjarnan - 01.10.1954, Side 6
78 STJARNAN Klukkan var 6 þegar ég kom inn á her- bergi mitt, ég greip það sem ég þurfti að hafa með mér og kastaði því í töskuna og hljóp svo af stað. Ég kom á brautarstöðina 6.30, réttum klukkutíma eftir að lestin átti að fara af stað, en hún var ókomin ennþá. Guð seinkaði lestinni til að svara bæn minni. Vantrúarmenn geta hlegið að þessu og sagt: „Lestin hefði verið á eftir tímanum, þó þú hefðir ekki beðið“. En trúin er óbif- anleg. Ég var 18 ára, þegar þetta kom fyrir. Árin sem liðið hafa síðan hafa nógsamlega fullvissað mig um: „Að augu Drottins eru yfir hinum réttlátu og eyru hans hneigjast að bænum þeirra“. 1. Pét. 3:12. Fyrir þremur árum kom ég til New York borgar með 14 dollara í vasanum og veikur af mislingum. Hið fyrsta, sem toll- þjónarnir gjörðu, þegar þeir vissu ég hafði næman sjúkdóm, var að síma til sjúkra- húss. Ég var látinn í burðarrekkju og borinn út á sjúkravagn og fluttur á sjúkra- hús í East River Drive. í sjö daga lá ég þar, ekki nógu veikur til að vera ánægður með hvíldina og aðgjörðaleysið. Áttunda daginn var mér leyft að fara út, ég var kominn yfir mislingana, en hafði í þeirra stað 70 dollara skuldakröfu frá sjúkra- húsinu. Þetta var erfitt viðfangsefni. Hvernig átti ég að geta boragð fæði og húsnæði og skuldina á sjúkrahúsinu? Ég gat auðvitað skrifað föður mínum og beðið hann um hjálp, en ég vildi ekki gjöra það. Hann hafði þegar gefið mér peninga til að borga farið til New York frá Michigan. Ég ásetti mér að biðja vorn himneska föður um hjálp. Ég bað til Guðs eins alvarlega eins og ég hafði gjört í Rhodesía nokkrum árum áður, og treysti því fullkomlega að hann mundi hjálpa mér; ég reyndi samtímis að spara það sem ég gat til að mæta útgjöldunum. Fáum vikum seinna fékk ég bréf frá föður mínum sem sagði að sjúkrahús- reikningur minn væri borgaður. Hann sagði: „Ég borgaði hann ekki, en ég hef ímyndun um hver gjörði það. En jafvel þó þessi góðviljaði maður hafi borgað reikn- inginn, þá skil ég ekkert 1 hvernig hann vissi um kringumstæðurnar". Hvernig gat þessi maður vitað að ég var í skuld? Ég var í New York, en einhver maður í Cape Town, Suður-Afríku, um 9000 mílur í burtu hafði borgað reikning- inn. Þessi leyndardómur verður ekki út- skýrður á annan hátt heldur en taka Guðs loforð til íhugunar: „Sérhvað það er þér beiðist í bæninni trúaðir, munuð þér öðlast“. Matt. 21:22. Guð hefir ávalt svarað bænum mínum, stundum veitt mér það sem ég hef óskað eftir, en stundum hindrað áform mitt. Vegna alvizku sinnar og kærleika til vor, veitir hann oss aðeins það sem hann sér að verður oss til blessunar. Það er dýrmætt að geta lagt óskir vorar og áform fram fyrir Guð og svo biðja um blessun hans yfir þau, ef þau geta orðið oss til blessunar og honum til dýrðar, en koma í veg fyrir framkvæmd þeirra, ef þau eru ekki í samræmi við áform hans fyrir oss. Einn rithöfundur hefir sagt: „Vér megum ekki trúa á bœn, heldur biöja í trú, ef vér höfum trú á bæninni, þá bregðast vonir vorar, ef vér fáum ekki það sem vér biðjum um. En að biðja í trú er að hafa þá öruggu fullvissu, að: „Þeim sem Guð elska verður alt til góðs“. Róm. 8:28. Sjóliðsforingi, Ben Moreel, formaður Jones og Laughlin stálfélagsins, kvað hafa sagt við starfsmenn sína: „Vér reynum að greiða úr of mörgum viðfangsefnum án þess að biðja um guðdómlega leiðbein- ingu . . . . Vér þurfum Guðs hjálp .... Líf- erni vort, orð vor, verk og framkvæmdir í ráðvendni og laus við alla eigingirni þarf að vera eins og brú, sem hann getur aftur gengið yfir í þennan heim vorn“. Líf vort verður eins og brotin brú, ef vér vanrækjum bæn til Guðs. Bænin er eins og brú sem sameinar oss honum, sem er uppspretta lífsins og ljóssins. Sleppum vér þessu samfélagi við Guð í bæn, þá sviftum vér sjálfa oss þeirri guðdómlegu hjálp, sem ein getur trygt oss sigursælt líf. Fleiri og fleiri meðal hinna yngri eru farnir að skilja nauðsyn bænarinnar. Það var bænin til Guðs sem gaf þeim hug- rekki til að mæta skelfingum stríðsins. Margir, sem aldrei fyr höfðu beðið í kyr- þey, beiddu Guð upphátt þar sem þeir földu sig í refagreni sínu. Þessir ungu

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.