Stjarnan - 01.10.1954, Qupperneq 8

Stjarnan - 01.10.1954, Qupperneq 8
80 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa Ontario. Ritstjórn og afgreiSslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar, Man. Can. katólsku kirkjuna og í nálægð við biskups- setrið. Menn úr riddarasveit Columbusar, prestar og kennarar komu að heimsækja unga manninn og reyndu að fá hann til að snúa baki við Aðventistum og kenningum þeirra. En hann stóð stöðugur og sagði að Aðventistar væru einlægir í öllu, sem þeir töluðu og kendu; það væri alt bygf á Biblíunni. Áður en hann var skírður tók hann flugvél til Zebu til að vera á starfsmanna fundi, sem þar var haldinn í október 1953. Síðasta hvíldardaginn í október var hann skírður og kona hans, og nú starfa þau meðal ættingja sinna og vina. —R. H. ADAIR ------------☆------------ Það er kraftaverk F. H. McNeil, hvíthærði skólastjórinn við skóla vorn í Medellin Colombia, settist á rúm sem vér höfðum í lyfjabúð vorri í Venezuela til að hvíla sig um stund og segja oss frá framgangi starfsins í Colom- bía. Hann sagði að á efri Magdalena trú- boðsstöðinni, skamt frá höfuðborginni Bogota gengi starfið undravel áfram. Þar höfðum vér mætt stöðugum ofsóknum frá 1947 til 1952. ' Meðal annars sagði hann okkur' frá manni, Palmyra, sem ásamt konu sinni kom stöðugt á samkomur vorar. Hann virtist um tíma hafa mikinn áhuga fyrir málefninu, en svo einn dag ásetti hann sér að koma ekki oftar, heldur halda áfram í sinni kirkju, og hann bannaði konu sinni að hlusta á okkur lengur. Svo dreymdi hann draum. Hann þóttist sjá ljómandi skrautlega kirkju. Hann gladdist við þessa sýn og skildi það svo að hann ætti að halda áfram 1 sinni kirkju, en ekki hlusta á Aðventista. Svo horfði hann enn nákvæmar og sá þá skínandi ljósgeisla, sem streymdi gegn um stóru kirkjuna. Þessi geisli kom frá litlu sam- komuhúsi og Jesús sjálfur í látlausum búningi benti á litla samkomusalinn og sagði: „Þetta er vegurinn, fylgið honum“. Hann dreymdi þetta þrisvar sinnum sömu nóttina. Daginn eftir sagði hann við konu sína: „Ég held það sé bezt fyrir okkur að halda áfram að sækja samkom- urnar“. Þau komu aftur og prédikarinn talaði um hina sönnu kirkju og benti á að hún yrði að sæta ofsóknum; rétt í sama bili var púðursprengjum kastað inn í sam- komusalinn. Enginn var drepinn og sam- koman hélt áfram. Að lokinni ræðu spurði prédikarinn hvort þar væri nokkur sem óskaði eftir að sameinast hinni sönnu kirkju. Þá stóð maðurinn upp, sem hafði dreymt draum- inn. Hann var þar sá fyrsti til að viður- kenna trú sína. En hann var ekki sá eini, sem óskaði að tilheyra hinni sönnu kirkju. Það voru 295 manns skírðir það ár í þessari borg. „Þetta er kraftaverk“, sagði McNeil. Það staðfestir líka þann sannleika að kristin- dómurinn þrífst og þroskast bezt, þar sem hann mætir mótstöðu og ofsóknum. —DANIEL WALTHER ------------☆------------ Er tíminn svo stuttur eftir, að Guð verð- ur á yfirnáttúrlegan hátt að flýta starfinu áfram og aðvara fólkið: „Óttastu Guð og haltu hans hoðorð, því að það á hver maður að gjöra, því Guð mun leiða sérhvert verk fyrir dóm yfir öllu, sem hulið er hvort sem það er gott eða ilt“. Préd. 12:13.—14. „Lýður þessi heiðrar mig með vörunum, en hjarta þeirra er langt í burtu frá mér; og til einskis dýrka þeir mig, er þeir kenna þá lærdóma sem eru manna boðorð“. Matt. 15:9. —S. J. ------------☆------------ „Ó, að þú vildir gefa gaum að boðorðum mínum þá mundi heill þín verða sem fljót og réttlæti þitt sem bylgjur sjávarins“. Jes. 48:18. „Kjósið þá í dag, hverjum þér viljið þjóna........en ég og mínir ættmenn munum þjóna Drotni“. Jósúabók 24:15. „Sælir eru þeir sem heyra Guðs orð og varðveita það“. Lúk. 11:28.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.