Mosfellingur - 13.09.2002, Síða 5
Iþróttir — Iþróttir -— Iþróttir - —
Góður gangur í
kvennafótboltanum í sumar
Það hefur verið mikið um að vera hjá stelpunum í fót-
boltanum í sumar. Þær fóru m.a til Damerkur á Tivoli
cup í sumar. Þar gerðu þær sér lítið fyrir og höfnuðu í
öðru sæti á því stórmóti. Á frábærlega vel heppnuðu
Nóatúnsmóti sem er félaginu alltaf til sóma röðuðu
þær sér einnig í verðlaunasæti. Á myndinni hér fyrir
neðan má sjá stelpurnar sem stóðu sig svo vel á Tivoli
cup ásamt þjálfurunum sínum þeim Eygerði og Bóel.
íslandsmeistarar og
fslandsmet í sumar !!
Fótboltinn hjá
krökkunum
Það hefur verið í mörg hom að líta
hjá yngri flokkunum í fótboltanum í
sumar. Allir hafa tekið þátt í
íslandsmótum, flestir með mjög
góðum árangri. Hæstberþó árangur Strákarnir í 5. flokki ásamt þjálfurunum
5. flokks drengja, en þeir spiluðu í sínum Bjarka Má og Hauki itáðu
úrslitakeppninni nú fyrir skömmu. frábœrum árangri ísumar
Þeir stóðu sig mjög vel þar, enduðu í
3.-4. sæti. Afturelding hefur m.a. sent tjölmörg lið og þar með fleiri hundruð
krakka á Reebokmót, Pæjumót, Shellmót, Essomót, Lottomót og nú síðast
Landsbankamót. Það eru einmitt ferðir á þessi mót sem krökkunum eru efst í
huga þegar litið er um öxl eftir keppnistímabilið, svo nauðsynlegt er að vanda
alla vinnu í kringum þetta starf. I ár tókst rnjög vel til með þessar ferðir allar og
hefur gríðarlega rnikið og gott starf verið unnið af þeim foreldrum sem koma að
undirbúningnum, enda eins gott þar sem fjölgunin hefur orðið mikil á fót-
boltakrökkum í Aftureldingu á undanförnum misserum. Þeir fjölmörgu foreldrar
sem staðið hafa við bakið á krökkunum sínum í íþróttastarfinu, hafa bundið
miklar vonir við bætta aðstöðu á Tungubökkum, enda hafa nú foreldrar beðið
tilbúnir með hamarinn í annarri og sögina í hinni eftir að fá að taka þátt í upp-
byggingu þar. Með samstilltu átaki er sú bið vonandi brátt á enda, svo foreldrar
í Mosfellsbæ geti tekið stoltir á móti þeim fleiriþúsund gestum sem sækja fót-
boltamót á Tungubökkum á ári hverju.
Krakkamir í frjálsum hafa staðið í
ströngu í sumar. Þau tóku þátt í
okkar stórskemmtilega og fjöl-
menna Gogga galvaska móti á
Varmárvelli í júní, þau eldri hafa
keppt á íslandsmótum og ýmsum
mótum hjá nágrannafélögunum og
hápunktur sumarsins hjá flestum
var svo þátttaka á unglinga-
landsmótinu í Stykkishólmi um
verslunarmannahelgina.
Um 15 krakkar höfðu náð lágmörkum á
íslandsmótin, þau elstu kepptu í Borgarnesi, en þau
yngri á Dalvík. Til gamans má geta þess að Brynja
Finnsdóttir varð íslandsmeistari í langstökki og
80m grindahlaupi. Glæsilegt hjá Brynju! Á ung-
lingalandsmótinu sigraði Friðrik Theodórsson í
spjótkasti með glæsilegum köstum við fremur
erfiðar aðstæður. Fyrir utan veðrið tókst unglinga
landsmótið mjög vel og skemmtu allir sér hið
besta. Nú fyrir skömmu setti Valgerður Sævars-
dóttir nýtt íslandsmet í sínum aldursflokki í
stangarstökki er hún stökk 2.88 hér á Varmárvelli.
Til hamingju með það Vallý.
Meistaramót Kjalar
f " 1 É ^PH ' N 1
^tr )Ljl
Meistaramóti Golfklúbbsins Kjalar lauk laugardaginn 20. júlí. Sigurvegari í
meistaraflokki kvenna varð Nína Björk Geirsdóttir. Helga Rut Svanbergsdóttir varð
í öðru sæti og Snæfríður Magnúsdóttir í því þriðja. í meistaraflokki karla varð
Heiðar D. Bragason í fyrsta sæti Magnús Lárusson varð í öðru sæti og Kári Emils-
son í því þriðja.
Á öðrum degi í mfl. karla setti Magnús Lárusson glæsilegt vallarmet á hvítum
teigum þegar hann lék 18 holur á 69 höggum en strax í næsta pútti á eftir jafnaði
Heiðar D. Bragason það. Á myndinni hér fyrir ofan má sjá verðlaunahafa á meist-
aramótinu.
Mosfellingar! íþróttamannvirkin að Varmá eru opin öllum og fyrir alla.
Komið og nýtið ykkur okkar frábæru aðstöðu innan- sem utandyra.