Mosfellingur - 13.09.2002, Síða 7
Anna Guðný Guðmunds-
dóttir fæddist 6. septem-
ber 1958 í Reykjavík,
foreldrar hennar eru
Með Sigurði eiginmanni
sínum í rigningargöngu í
Þórsmörk sumarið 2002.
Guðmundur Þ. Halldórs-
son og Aagot Árnadóttir,
þau eru búsett hér í
bænum. Anna er gift Sig-
urði Ingva Snorrasyni,
klarinettuleikara. Hún á
tvo stjúpsyni, Marían og
Daníel, fædda 1975 og
1976. Börn hennar og
Sigurðar eru Ásta, fædd
1989 og Guðmundur
Snorri fæddur 1992. Anna
Guðný var útnefndur
bæjarlistamaður Mos-
fellsbæjar á þjóðhátíðar-
daginn í sumar.
Skólagangan
Eg hóf mína skólagöngu í
Álftamýrarskóla segir
Anna Guðný, þaðan lá
svo leiðin í Mennta-
skólann við Hamrahlíð og
Eignaðist þrjá karlmenn í einu vetfangi segir
Anna Guðný Guðmundsdóttir
þaðan varð ég stúdent
1977. Ég lauk prófi frá
Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1979 og fór
svo í Guildhall School of
Music and Drama í
Lundúnum í frekara tón-
listarnám. Að lokinni
skólagöngu flutti ég svo
heim og fékk strax nóg að
gera. Ég eignaðist þrjá
karlmenn í einu vetfangi,
sambýlismann og tvo
stjúpsyni.
Það var ekki aftur
snúið
Það voru ekki alltaf mín
áform að verða atvinnu-
píanóleikari, það þróaðist
eiginlega og skýrðist eftir
því sem á námið í Lun-
dúnum leið og síðan varð
ekki aftur snúið.
Við féllum alveg
fyrir húsnæðinu og
staðnum
Við fluttum í Mosfellsbæ
í nóvember 1990. Við
bjuggum þá í Litla
Skerjafirði og fjölskyldan
var að stækka. Það var
dýrt að kaupa í 101 og
107 þá eins og nú. Fyrir
tónlistarfólk er ekki auð-
velt að finna húsnæði sem
það ræður við og þar sem
það getur æft sig óhind-
rað. Við skoðuðum yfir
30 eignir hér og þar á
höfuðborgarsvæðinu en
eftir að við komum í
húsið á Leirutanga komst
ekkert annað að, við féll-
um alveg fyrir húsinu og
staðnum. Svo skemmdi
ekki fyrir að foreldrar
mínir voru fluttir hingað.
Þetta var einu sinni
eitt glæsilegasta
hljóðfærið sem
bauðst í Reykjavík
og nágrenni
Hér blómstrar mikið
sönglíf en það fer ekki
mikið fyrir öðrum tón-
leikum. Hlégarður þjónar
þó sæmilega sem tón-
listarhús, en það þyrfti að
sinna flyglinum þar betur
og leggja peninga í að
halda honum í góðu
ástandi. Þetta var einu
sinni eitt glæsilegasta
hljóðfærið sem bauðst í
Reykjavík og nágrenni.
Það er dálítið skemmti-
legt að segja frá því að
þarna lék ég tónleikapró-
grammið mitt vorið sem
ég útskrifaðist úr Tón-
listarskólanum. Annars
mætti hvetja tónlistarfólk
og listafólk í öllum
greinum til að setjast að í
Mosfellsbæ því að fyrir
fólk sem vinnur a.m.k. að
hluta til heima hjá sér er
náttúrufegurðin og
kyrrðin sem hægt er að
njóta hér ómetanleg.
Bæjaryfirvöld gætu haft
það á stefnuskránni að
laða til sín listafólk bæði
beint (með einhverjum
hlunnindum) og óbeint.
Það er gaman að
taka þátt í að móta
nýja deild
Það er margt spennandi
framundan. Ég er að
hefja annað starfsárið við
tónlistardeild Listahá-
skólans í Reykjavík, sem
er mitt fasta starf. Það er
gaman að taka þátt í að
móta nýja deild. Svo eru
tvær tónleikaferðir á
döfinni. Við Diddú förum
til Alsace í Frakklandi í
lok september og verðum
með tónleika þar og í byr-
jun nóvember fer ég og
spila á tónlistarhátíð í
Trento á Italíu. Áhugamál
mín eru tónlist, bækur og
ferðalög sagði Anna Guð-
ný að lokum.
Mosfellingur þakkar
Önnu Guðnýju spjallið
og óskar henni til ham-
ingju með bæjarlista-
mannsútnefninguna, og
óskar fjölskyldu hennar
velfarnaðar.
K. Tomm
A fallegum sumardegi með Sigurði og Guðmundi í
garðinum heima.
Frá vinstri: Marían, Anna, Sigurður með Ástu og
Daníel.
Frá tæknideild
M OSH t: 1. L.S 15/1; R
1
itajj eu/hr rxrar nra. Nú þegar líöur að hausti viljum við minna bæjarbúa á að hreinsa laufblöð og annað frá niðurföllum, til að
í'jrmrír atnu.
BSg
forðast tjón af völdum haustrigninga.
þjtÍKÉiuáa kr«á.
Tæknideild
Mánudaga: 13-18 Föstudaga:10-19
VyJJlvJ* Þri.-fim: 10-18 Laugard: 10-14
7