Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.02.2019, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 18.02.2019, Qupperneq 6
MINI ELECTRIC PLUG-IN HYBRID OG FJÓRHJÓLADRIF. MINI COUNTRYMAN PLUG-IN VERÐ FRÁ: 5.490.000 KR. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is www.mini.is E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 1 4 1 M in i C o u n t ry m a n 5 x 1 0 f e b SPÁNN Réttarhöldin yfir tólf leið- togum katalónsku sjálfstæðis- hreyfingarinnar í spænsku höfuð- borginni Madríd og fangelsun níu þeirra er ólíðandi. Þetta segir Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, en hún var stödd í Madríd fyrir helgi meðal annars til að fylgjast með réttarhöldunum og eiga fundi með katalónskum stjórn- málamönnum. Réttarhöldin hófust í síðustu viku en málið má rekja til sjálfstæð- isatkvæðagreiðslu og -yfirlýsingar haustsins 2017. Sakborningar mæta aftur fyrir hæstarétt í dag. Fyrir áhugasama þá var aðdragandi rétt- arhaldanna rakinn í Fréttablaðinu á laugardag. „Fyrir mér blasir þetta þannig við að sama hvaða skoðun maður hefur á sjálfstæði Katalóníu eru þessi rétt- arhöld pólitísk og fangelsun stjórn- málafólks sem hefur barist með friðsamlegum hætti fyrir sinni sannfæringu og skoðunum ein- faldlega ólíðandi,“ segir Rósa Björk. „Meðal þeirra sem eru nú fyrir rétti er forseti þingsins fyrir það eitt að hafa efnt til umræðu um málið á þingi og félagar frjálsra félagasam- taka sem hafa skoðun á sjálfstæðis- baráttunni.“ Rósa Björk átti fund með Alfred Bosch, utanríkisráðherra Kata- lóníu, er hún var í Madríd og hitti annað áhrifafólk í katalónskum stjórnmálum, sat með þeim og horfði á beina útsendingu af rétt- arhöldunum. „Við Bosch ræddum stjórnmálaástandið í Katalóníu og á Spáni, f lókna stöðu í spænskum stjórnmálum, aukið fylgi við öfga- hægriöfl í landinu og svo auðvitað réttarhöldin.“ „Fyrir mig sem kjörinn fulltrúa virkar þetta sem pólitísk réttar- höld. Deilan snýst um hvort þau hafi brotið gegn stjórnarskránni, um það snýst málið, en mér finnst því miður ansi margt benda til þess að það sé nú þegar búið að ákveða að refsa þeim. Það er bara spurning hvaða refsing verður fyrir valinu,“ segir Rósa Björk en þeir þrír aðilar sem sækja málið krefjast misjafnrar refsingar. Það er, að sögn Rósu Bjarkar, dap- urlegt að horfa upp á fólk fangelsað fyrir pólitískar skoðanir sínar árið 2019. „En við stöndum líka frammi fyrir því að niðurstaða þjóðarat- kvæðagreiðslunnar var ekki afger- andi heldur. Það er náttúrulega um helmingur Katalóna sem er ekki á því að Katalónía eigi að vera sjálf- stæð. Þannig að þetta er f lókið.“ Og staðan á Spáni almennt er bæði viðkvæm og f lókin, segir Rósa Björk. Pedro Sanchez forsætis- ráðherra boðaði í síðustu viku til kosninga eftir að þingið hafnaði f járlagafrumvarpi ríkisstjórnar Sósíalistaflokksins. „Það var á reiki hvort boðað yrði til þeirra og ef svo er, hvort þær yrðu í apríl eða október. Hann virðist hafa metið stöðuna þannig að það væri betra að hafa þær 28. apríl. Sem verð- ur mikið álag á spænsk stjórnmál, því þá verða réttarhöldin væntanlega enn í gangi og að auki kosningar til Evrópuþingsins og til sveitarstjórna í nokkrum héruðum. Það verður mikið í gangi á sama tíma.“ Þingmaðurinn segist að lokum hafa fundið fyrir því að yfirlýsing forseta Alþingis, um að hann hefði áhyggjur af stöðu hinnar ákærðu Carme Forcadell, fyrrverandi þing- forseta, vakti mikla athygli Kata- lóna. En evrópskir þingmenn og ríkisstjórnir hafi alla jafna verið varkárar í málinu. „Ég hef líka sem þingmaður á Evrópuráðsþinginu rætt málefni Katalóníu við aðra. Þar eru þingmenn varfærnir, sér- staklega þingmenn Evrópusam- bandslanda, skiljanlega kannski. En að mínu mati, þá snúast þessi rétt- arhöld ekki bara um stjórnarskrá Spánar eða lagaf lækjur varðandi sjálfstæðisbaráttu Katalóníu, held- ur um mannréttindi og tjáningar- frelsið.“ thorgnyr@frettabladid.is Rósa Björk segir að fangelsun stjórnmálamanna sé ólíðandi Rósa Björk Brynjólfsdóttir alþingismaður fylgdist með réttarhöldum Katalóna í Madríd og fundaði með katalónskum stjórnmálamönnum. Hún segir réttarhöldin pólitísk og málið snúast um mannréttindi og tjáningarfrelsi. Það sé ólíðandi að fangelsa stjórnmálafólk, burtséð frá skoðun á sjálfstæði Katalóníu. Að mínu mati, þá snúast þessi réttar- höld ekki bara um stjórnar- skrá Spánar eða lagaflækjur varðandi sjálfstæðisbaráttu Katalóníu, heldur um mannréttindi og tjáningar- frelsið. Rósa Björk Brynjólfsdóttir alþingismaður Rósa Björk ásamt Alfred Bosch, utanríkisráðherra Katalóna. MYND/RÓSA JAPAN Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, tilnefndi Donald Trump Bandaríkjaforseta til friðarverð- launa Nóbels í haust. Þetta gerði hann eftir að bandaríska ríkis- stjórnin sendi beiðni um tilnefn- ingu. Japanska dagblaðið Asahi Shimbun greindi frá málinu. Trump sagði sjálfur frá því á föstudag að Abe hafi tilnefnt hann. Tilnefningin var sérstaklega fyrir að hafa opnað á viðræður við og dregið úr togstreitunni við Norður-Kóreu. Trump fundaði til að mynda með Kim Jong-un einræðisherra í Singa- púr síðasta sumar. Þeir funda aftur í Víetnam síðar í mánuðinum. Reuters hafði eftir upplýsinga- fulltrúa japanska utanríkisráðu- neytisins að ráðuneytið hafi tekið eftir ummælum Trumps. Það vildi þó ekki tjá sig um samskiptin. Hvíta húsið vildi það ekki heldur. Samkvæmt Nóbelsstofnuninni getur hver sá sem sjálfur er gjald- gengur til tilnefningar, til að mynda þjóðarleiðtogi, sent inn tilnefningu. Samkvæmt reglum stofnunarinnar má ekki greina frá tilnefningum fyrr en eftir fimmtíu ár. Trump fékk ekki friðarverðlaun Nóbels í desember. Denis Mukwege og Nadia Murad urðu fyrir valinu fyrir „vinnu sína að því markmiði að binda enda á vopnvæðingu kyn- ferðisof beldis“. - þea Bandaríkjamenn báðu Japana um að tilnefna Trump til Nóbels ÍTALÍA Fimm stjörnu hreyfingin, annar ítölsku stjórnarf lokkanna, heldur stafræna atkvæðagreiðslu í dag um hvort f lokkurinn ætli að koma í veg fyrir möguleg réttarhöld yfir Matteo Salvini, leiðtoga Banda- lagsins, hins stjórnarandstöðu- f lokksins. Þetta kom fram á vef hreyfingarinnar í gær en atkvæða- greiðsla um réttarhöldin fer fram í þingnefnd á þriðjudag. Saksóknarar í Catania á Sikil- ey vilja halda áfram rannsókn á meintri misbeitingu valds og mannráni sem á að hafa átt sér stað þegar Salvini fyrirskipaði að um 150 flóttamönnum skyldi vera haldið í ítölskum landhelgisgæsluskipum í fimm daga í ágúst síðastliðnum. Ríkisfréttastofan Ansa hafði eftir heimildarmönnum innan Fimm stjörnu hreyfingarinnar í gær að málið gæti hæglega fellt stjórnina, fari svo að hreyfingarfólk ákveði að standa ekki í vegi fyrir saksókn- urum. Sambandið á milli stjórnar- f lokkanna er stirt nú þegar vegna deilna um hin ýmsu mál. Salvini hefur sjálfur farið fram á við öldungadeild þingsins að hafna beiðni um réttarhöld. Það skapar vandamál fyrir Fimm stjörnu hreyf- inguna sem hefur ítrekað gagnrýnt stjórnmálamenn fyrir að nota vald sitt til að komast hjá réttarhöldum. Stjórnmálaskýrandi hjá Fatto Quo- tidiano sagði Fimm stjörnu hreyf- inguna í ákveðinni tilvistarkreppu vegna málsins. – þea Talin hætta á stjórnarslitum vegna Salvinis Salvini vill forðast réttarhöld. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Donald Trump Bandaríkjafor- seti. 1 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 8 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 5 7 -F 8 9 0 2 2 5 7 -F 7 5 4 2 2 5 7 -F 6 1 8 2 2 5 7 -F 4 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.