Fréttablaðið - 18.02.2019, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 18.02.2019, Blaðsíða 43
Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Eftir áralanga þróun og prófanir höfum við náð markmiði okkar. Við höfum búið til eina þróuðustu dýnu heims Simba tvinndýnan er gerð úr einstakri samsetningu 2500 keilulaga gorma og móttækilegs minnissvamps. Fáðu betri svefn – sama hvert svefnmynstur þitt er. Komdu og kynntu þér Simba í næstu Dormaverslun eða á www.simba.is V A RA ÁRSINS 2018 B R E T L A N D HEILSUDÝNUR Kjörin heilsudýna ársins á meðal 10.637 þátttakenda í neytenda könnun KANTAR TNS í Bretlandi SIMBA dýnurnar henta einstaklega vel í stillanleg rúm SIMBA STÆRÐIR VERÐ Dýna 80 x 200 cm 69.900 Dýna 90 x 200 cm 79.990 Dýna 90 x 210 cm 82.900 Dýna 100 x 200 cm 84.900 Dýna 120 x 200 cm 94.990 Dýna 140 x 200 cm 104.990 Dýna 160 x 200 cm 124.990 Dýna 180 x 200 cm 139.990 Dýna 180 x 210 cm 149.990 Dýna 200 x 200 cm 154.990 Shoplifters//Búðaþjófar (eng sub) . 17:40 Transit (german & french w/eng sub) . 18:00 Tryggð // The Deposit (eng sub) .. 18:00 Free Solo (english - no sub) ............... 20:00 Planeta Singli 3 (polish w/eng sub) ... 20:00 Heavy Trip // Hevi Reissu (eng sub) 20:00 Diablo (polish w/eng sub) ........................ 22:00 Transit (german & french w/ice sub)....22:10 Damsel (english - no sub) ....................22:10 FRANZ ROGOWSKI PAULA BEER "CASABLANCA AS WRITTEN BY KAFKA" -INDIEWIRE BASED ON THE NOVEL BY ANNA SEGHERS PHO TO: MA RCO KRÜ GER / ART WO RK: PRO PAG AND A B A FILM BY CHRISTIAN PETZOLD HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS Síðumúla 34 • 108 Reykjavík Sími 696 5600 • rafsol@rafsol.is ENDURNÝJUN OG VIÐHALD Löggiltur rafverktaki Sími: 696 5600 rafsol@rafsol.is Hvað? Hvenær? Hvar? Mánudagur hvar@frettabladid.is 18. FEBRÚAR 2019 Hvað? Málþing um stafrænt kynferðisofbeldi Hvenær? 14.00 Hvar? Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi 1 Stýrihópur um heildstæðar úrbæt- ur að því er varðar kynferðis- of beldi og Háskólinn í Reykjavík standa fyrir málþingi um stafrænt kynferðisof beldi mánudaginn 18. febrúar 2019 kl. 14-17 í húsnæði HR í Nauthólsvík, stofu M103. Hvað? Meistaramánudagur á Úlfarsfelli! Hvenær? 18.00 Hvar? Úlfarsfell Alla mánudaga í meistaramánuði bjóðum við upp á skemmtilegar fjallgöngur á Úlfarsfell sem Vil- borg Arna og félagar hjá Tindum Travel leiða. Þetta er stutt og þægileg fjallganga við allra hæfi sem býður upp á stórkostlegt útsýni yfir höfuðborgina. Genginn er hringur með viðkomu á báðum toppunum. Við hittumst á bíla- stæðinu í Úlfarsárdal kl. 18.00. Mætið klædd eftir veðri, vopnuð höfuðljósi og Esju-broddum. Hvað? Jákvæð samskipti Hvenær? 20.00 Hvar? Hraunvallaskóli, Dreka- völlum 9 Foreldrafélag Hraunvallaskóla býður alla foreldra velkomna á fyrirlestur með Pálmari Ragnars- syni. Í fyrirlestrinum er fjallað á skemmtilegan hátt um það hvernig við getum náð því besta fram í fólki með uppbyggilegum samskiptum og tekin eru mörg skemmtileg dæmi af samskiptum barna á íþróttaæfingum og yfir- fært á foreldrahópinn. Fyrirlestur- inn hefur slegið í gegn og Pálmar verið fenginn til að halda hann á mörgum stærstu vinnustöðum landsins, í ýmsum ráðuneytum, félagasamtökum o.fl. Pálmar Ragnarsson er körfuboltaþjálfari með BS-próf í sálfræði og MS-prófí viðskiptafræði. Hvað? Ferðakynning - Egyptaland Hvenær? 17.15-18.15 Hvar? Úrval Útsýn, Hlíðasmári 19 Vertu velkomin/n á kynningu okkar á ferð til Egyptalands vorið og haustið 2019. Uppselt er í ferð okkar til Egyptalands í apríl en farin verður önnur ferð í haust og er kynningin því tilvalin fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér ferðirnar okkar til þessa magnaða lands. Fararstjóri ferðarinnar, Kristján Steinsson mun halda kynninguna og fræða farþega og áhugasama um allt það helsta í ferðinni og svara spurningum. Hvað? Sanngjörn dreifing skatt- byrðar – Skýrsla Eflingar-stéttar- félags Hvenær? 20.00-21.30 Hvar? Strandgata 43, 220 Hafnar- firði Indriði H. Þorláksson hagfræð- ingur kynnir nýútgefna skýrslu Eflingar–stéttarfélags. Skýrsluna samdi hann ásamt Stefáni Ólafs- syni, prófessor í félagsfræðum við Háskóla Íslands. Hún nefnist Sanngjörn dreifing skattbyrðar - Hvernig leiðrétta má stóru skatta- tilfærsluna án þess að veikja vel- ferðarkerfið. Hvað? Yoga 101 - grunnnámskeið Hvenær? 19.45 Hvar? Eden Yoga, Dugguvogur 10 6 vikna námskeið í Transformatio- nal Hatha Yoga (THY). Yoga þýðir í sinni upprunalegu merkingu sameining (union) og er ævaforn lífsspeki Indverja byggð á ýmsum heilögum ritningum og goðafræði þess svæðis. Markmið yoga er annað og meira en bara gott form, líkamsstöður og líkamsbygging. Yoga nær yfir mun fleiri þætti sem almennt er lögð minni áhersla á í vestrænu yoga-samfélagi. 8 limir Yoga er leið yogans sem lýsir ferlinu frá blekkingu til vakningar, frá jörðinni til himnaríkis og frá aðskilnaði til sameiningar. Hvað? Opinn verkefnafundur Garðabæjarlistans Hvenær? 17.30-19.00 Hvar? Strikið 3, 210 Garðabær Garðabæjarlistinn heldur mánað- arlega verkefnafundi þar sem farið er yfir stöðuna í bæjarmálunum í Garðabæ. Á þessum fundum stillum við saman strengi, förum yfir áherslur Garðabæjarlistans og ákveðum hvaða mál skuli setja á oddinn hverju sinni. Fundurinn verður haldinn í fundarherberg- inu (jarðhæð) í Ísafold, Strikinu 3. Iðkun jóga hefur mjög færst í aukana hér á landi undanfarin ár. Víða er boðið upp á námskeið. NORDICPHOTOS/GETTY M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19M Á N U D A G U R 1 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 1 8 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 5 7 -F 8 9 0 2 2 5 7 -F 7 5 4 2 2 5 7 -F 6 1 8 2 2 5 7 -F 4 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.