Fréttablaðið - 08.02.2019, Síða 8
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Hin nýja
róttæka
verkalýðs-
hreyfing
mætti
stundum
hafa það
hugfast að
þau hafa
ekkert
tilkall til að
telja sig vera
þess um-
komin að
boða hinn
eina rétta
sannleika.
Nú hefur
vandinn verið
greindur og
aðgerðalist-
inn er tilbú-
inn.
Fyrsti stóri slípirokkurinn knúinn
af einni rafhlöðu sem skilar ai
til þess að slípa, er léttari en
snúrurokkur í sinni stærð.
Sveigjanlegt rafhlöðuker
sem virkar með öllum
Milwaukee ® M18™ rafhlöðum.
Verð 136.900 kr. (með rafhlöðu)
M18 FLAG
Alvöru slípirokkur
frá Milwaukee
vfs.is
Einfalda, skýra, skarpa borg“ endurtókum við í Viðreisn á hverjum kosningafundinum á fætur öðrum síðastliðið vor. Aðspurð um hvað þetta
þýddi útskýrðum við að ferlin innan borgarinnar
væru of flókin sem skapaði óþarfa óþægindi fyrir
íbúa borgarinnar og aðila innan borgarkerfisins.
Til að bæta þjónustu við borgarbúa og tryggja að
vel sé farið með almannafé ákváðum við að farið
yrði í endurskoðun á miðlægri stjórnsýslu. Í ljós kom
að ýmislegt mætti betur fara. Því var nýtt skipulag á
stjórnsýslu Reykjavíkurborgar kynnt í gær. Tillögur
okkar byggja á skýrslu utanaðkomandi sérfræðinga
á sviði stjórnskipulags og góðra stjórnarhátta. Í
vinnu sinni rýndu skýrsluhöfundar alla starfsemi
borgarinnar og tóku viðtöl við fjölda aðila, þar á
meðal stjórnendur, eftirlitsaðila, oddvita allra flokka
í borgarstjórn og marga fleiri. Með aðkomu fjöl-
breytts hóps fékkst skýr tónn fyrir þá ábyrgu og góðu
stjórnarhætti sem nýtt skipulag tryggir.
Breytingarnar miða að því að skýra umboð og
ábyrgð, einfalda boðleiðir og skerpa á hlutverki lykil-
eininga í stjórnsýslu borgarinnar. Í nýju skipulagi eru
innkaupamál tekin föstum tökum, hlutverk inn-
kauparáðs útvíkkað og tryggt að öllum framkvæmd-
um sé fylgt vel eftir hvað varðar kostnaðaráætlanir,
innkaup, útboð og fleira. Verkefnum á sviði eigna- og
atvinnuþróunar verður skipt upp og þau færð á
viðeigandi staði innan borgarinnar til að tryggja ein-
faldara kerfi og skýr hlutverkaskipti. Einnig verður
þjónustu, nýsköpun, fjármálum, áhættustýringu og
mannauði gert hærra undir höfði.
Þegar Viðreisn var kosin í borgarstjórn lofuðum
við að leggja okkar af mörkum til að bæta kerfið. Nú
hefur vandinn verið greindur og aðgerðalistinn er
tilbúinn. Næst er að bretta upp ermarnar og byrja
að lagfæra í þágu bættrar þjónustu við borgarbúa og
skilvirkari stjórnsýslu. Það er eitthvað sem allir hafa
ávinning af.
Nýtt skipulag í Reykjavík,
einfaldara kerfi
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
oddviti Viðreisn-
ar og formaður
borgarráðs
Þetta var skýrt og skorinort hjá seðlabankastjóra. Takturinn í hagkerfinu er að breytast, hagvöxt-ur fer hratt minnkandi og stjórnendur fyrir-tækja sjá frekar fram á uppsagnir en ráðningar, en að sama skapi er ekki efnahagssamdráttur í kortunum. Slíkt áfall gæti hins vegar orðið ef
það verða verkföll og launahækkanir langt umfram svig-
rúm atvinnulífsins. Það hefði þær fyrirsjáanlegu afleiðingar
að vextir myndu hækka og atvinnuleysi aukast. „Reynum
að forða því,“ sagði Már Guðmundsson. Þegar seðlabanka-
stjóri sér ástæðu til að senda frá sér jafn skýr skilaboð mætti
ætla að flestir myndu leggja við hlustir – og kannski taka
mark á þeim. Það var auðvitað til of mikils mælst.
Viðbrögð forystumanna verkalýðsfélaganna voru í senn
fyrirsjáanleg og uggvænleg. Formaður Eflingar, sem verður
oft rosalega reið ef einhver kann að hafa aðra skoðun en
hún, brást við með því að afgreiða varnaðarorðin sem „for-
herðingu efnahagslegra forréttindahópa“. Þetta er orðið
þekkt stef. Áliti greinenda, hagfræðinga, Seðlabankans – og
í raun allra sem leyfa sér að setja fyrirvara við skynsemi þess
að hækka laun margfalt meira en sem nemur mögulegri
verðmætaaukningu – er hafnað með þeim einu rökum að
þetta sé málflutningur „auðvaldsins“ og einhverra óskil-
greindra „fjármagnsafla“. Ekki er þetta líklegt til uppbyggi-
legrar umræðu um hvernig megi laga það sem betur má
fara í íslensku samfélagi og bæta lífskjör almennings. Getur
verið að hið sama fólk sé ekki drifið áfram af annarlegum
hvötum heldur, meðal annars byggt á sérþekkingu þess,
menntun og reynslu, viti mögulega um hvað það er að tala?
Hin nýja róttæka verkalýðshreyfing, sem verður tíð-
rætt um að allir aðrir en þau eigi að sýna auðmýkt, mætti
stundum hafa það hugfast að þau hafa ekkert tilkall til að
telja sig vera þess umkomin að boða hinn eina rétta sann-
leika. Það er enginn á móti því að bæta kjör launafólks,
einkum þeirra lægst launuðu, en það verður ekki gert með
því einu að undirrita samninga um innstæðulausar tugpró-
senta launahækkanir. Íslendingar ættu að hafa lært það af
biturri reynslu að hækkun launa umfram framleiðnivöxt
leiðréttist með hærri verðbólgu – sem bitnar harðast á
skuldsettum heimilum og þeim sem minnst hafa á milli
handanna. Laun í krónum talið hafa nær sexfaldast frá 1989
en á sama tíma hefur kaupmáttur aðeins vaxið um 65 pró-
sent. Haldi einhverjir að niðurstaðan yrði á aðra leið við
núverandi aðstæður þá hafa þeir hinir sömu fundið upp á
nýrri leið til að stórbæta lífskjör alls almennings með einu
pennastriki, óháð verðmætasköpun og stöðu útflutnings-
atvinnuveganna. Fáir ættu að vilja láta reyna á það veðmál.
Verkalýðshreyfingin er að stærstum hluta skipuð skyn-
sömu fólki sem veit vel að á því hvílir rík ábyrgð. Í stað
þess að reyna að eigna sér hlutdeild í þeim mikla árangri
sem áunnist hefur og leggja áherslu á að varðveita hann
– kaupmáttur hefur aukist um fjórðung frá 2015 – hefur
hluti hennar kosið þá vegferð að sækja í átök við allt og
alla fremur en að leita raunhæfra lausna. Það hefur verið
ljóst um langt skeið að þær viðræður sem nú eru á borði
ríkissáttasemjara eru í fullkomnum ógöngum. Allar kröfur
stéttarfélaganna – húsnæðismál, afnám verðtryggingar,
vaxtamál og krónutöluhækkanir – eru sagðar ófrávíkjan-
legar. Ef fram heldur sem horfir geta viðræðurnar aðeins
endað á einn veg þar sem félögin munu slíta þeim og boða
til verkfalla – og um leið taka niður með sér allt hagkerfið.
Við erum að nálgast ögurstundu.
Forherðing
Stjórnarandstöðuandstaða
Það að tillaga Viðreisnar, Pírata
og Samfylkingarinnar um að
Hanna Katrín Friðriksson yrði
formaður umhverfis- og sam-
göngunefndar Alþingis hafi verið
felld í gær féll svo sannarlega í
grýttan jarðveg hjá stjórnarand-
stöðunni, jafnvel þótt sú lausn að
stjórnarliðinn Jón Gunnarsson
taki við formennskunni af Berg-
þór Ólasyni vegna Klausturs-
málsins sé sögð tímabundin.
Með þessu þykir fyrrnefndum
þremur flokkum auk Flokks
fólksins stjórnarflokkarnir nýta
sér Klaustursmálið til þess að
brjóta samkomulag um skipt-
ingu á formennsku í nefndum.
Staða Miðflokksins nú er einkar
áhugaverð. Flokkurinn virðist
annaðhvort vera bæði utan
stjórnar og stjórnarandstöðu eða
þá einn í sinni eigin fylkingu, þá
aðallega í andstöðu við stjórnar-
andstöðuna.
Kuldi
Þótt Klaustursliðar séu úti í
kuldanum þurfa Íslendingar ekki
að vera það. Kuldinn sem hrellt
hefur landsmenn undanfarnar
vikur kætir kaupmenn. Sam-
kvæmt frétt sem Fréttablaðið.
is birti í gær seldust hitastillar
á ofna upp í verslunum BYKO í
febrúar. Landsmenn flestir ættu
þó að geta tekið gleði sína á ný
eftir helgi en þá á hiti víðast
hvar að fara upp fyrir frostmark.
Ótrúlegt en satt.
thorgnyr@frettabladid.is
8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
0
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:5
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
4
6
-2
C
7
C
2
2
4
6
-2
B
4
0
2
2
4
6
-2
A
0
4
2
2
4
6
-2
8
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K