Fréttablaðið - 08.02.2019, Qupperneq 24
8 KYNNINGARBLAÐ 8 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RFYRSTU SKREFIN
Fyrstu mánuðum í lífi barns fylgir gjarnan lítill svefn og óreglulegar og mishollar mál-
tíðir. Hér er bráðholl og góð upp-
skrift sem geymist vel í ísskápnum
og hægt er að grípa í milla anna.
1 bolli kínóa
2 bollar vatn
1 dós kjúklingabaunir, skolið vel
1 miðlungsstór agúrka. Fræhreins-
ið og skerið í litla teninga
1 rauð paprika, skorin í litla munn-
bita
¾ bolli saxaður rauðlaukur
1 bolli steinselja, smátt söxuð
¼ bolli ólífuolía
¼ bolli sítrónusafi (safi úr 2-3
sítrónum)
1 msk. rauðvínsedik
2 hvítlauksgeirar, pressaðir
½ tsk. salt
Svartur pipar
Sjóðið kínóa samkvæmt leiðbein-
ingum. Blandið saman í stórri skál
kjúklingabaunum, gúrku, papriku,
lauk og steinselju. Takið aðra minni
skál og blandið saman olíu, ediki,
sítrónusafa, hvítlauk og salti. Hrærið
vel saman. Þegar kínóa hefur kólnað
skal því blandað saman við inni-
haldið í stóru skálinni og næst er
olíublöndunni hellt yfir. Blandið
vel saman og kryddið með svörtum
pipar og salti ef þarf. Látið standa í
5-10 mín. áður en borið fram. Salatið
geymist í lokuðu íláti í kæli í 4 daga.
Hollur skyndibiti
Breskir fjölmiðlar fjölluðu í vik-unni nánast allir sem einn um nýjar tillögur lækna þar í landi
varðandi snjalltæki og notkun barna
á þeim. „Tíminn sem fer í að vera á
netinu getur opnað augu ungmenna
og þau læra margt á því að skoða
það sem er í boði á veraldarvefnum.
Þar geta þau fundið stuðning og
upplýsingar,“ segir Dame Sally
Davies sem titluð er Chief Medical
Officer of England, eins konar land-
læknir þeirra Breta.
Hún bætti þó við að margt væri að
varast. Læknaliðið sem samdi við-
miðunarreglurnar segir að svefninn
sé svo mikilvægur að snjalltækin eigi
að verða eftir fyrir utan herbergið
þegar barnið fari að sofa.
Viðmiðin eru meðal annars
að skilja símana eftir fyrir utan
herbergið þegar það er komið að
háttatíma. Að ræða um að deila
myndum og upplýsingum því það
sé stundum misnotað. Ef það þarf
að fara yfir götu þá á snjalltækið að
vera í vasanum. Sumir hafa áhuga
á öðru og það þarf ekki að horfa á
hvað sem er á skjánum. Það má segja
nei. Snjalltækin eiga ekki að vera við
matarborðið. Matartíminn er þar
sem fjölskyldur ræða saman. Settu
upp forrit sem getur fylgst með skjá-
notkun barnanna.
Engin snjalltæki
með í háttinn
Snjalltæki geta verið gagnleg en
ýmislegt hættulegt leynist ef ekki er
varlega farið. NORDICPHOTOS/GETTY
Bæjarstjórinn í Locana, sem er lítið þorp á Ítalíu, Giovanni Bruno Mattiet,
hefur lofað hverri fjölskyldu sem
flytur í bæinn um níu þúsund
evrum eða 1,2 milljónum króna.
Það eina sem fjölskyldan þarf að
gera er að hafa að minnsta kosti
eitt barn á sínum snærum og
árleg laun upp á 6.000 evrur, sem
gera um 823 þúsund. Fjölmörg
lítil þorp á Ítalíu eru nánast orðin
að draugabæjum því unga fólkið
flykkist í stórborgirnar til að
freista gæfunnar. Það á líka við
þorpið Locana.
Bæjarstjórinn vill endilega
snúa þessari þróun við. „Það
bjuggu hérna um sjö þúsund
íbúar um 1900 en við rétt náum
1.500 í dag. Unga fólkið okkar fer
til borganna og skólarnir okkar
eiga á hættu að verða lokað
vegna fækkunar nemenda. Ég
get ekki látið það gerast,“ sagði
Mattiet í samtali við CNN.
Milljón fyrir barnafólk flytji það til Locana
Það má
ýmislegt gera
í Locana sem
er skammt
frá Tórínó.
NORDICPHOTOS/
GETTY
Í UPPHAFI SKAL
ENDANN SKOÐA
Þess vegna er bossakre
mið okkar stútfullt af
náttúrulegum
innihaldsefnum og er s
érstaklega þróað fyrir
börn með viðkvæma hú
ð.
Það er svo milt að jafn
vel börn sem eru gjörn
á að fá exem geta
notað kremið.
Ef þú ert sammála okku
r að barnabossar eigi b
etra skilið, gakktu þá
til liðs við Childs Farm
.
childsfarm.com
Childs Farm vörurnar fást í Hagkaup, Fjarðarkaup, Krónunni og apótekum um land allt.
Þegar kemur að barnab
ossum, ætti ekkert að v
era mýkra.
Líka fyrir
taubleiubossa
0
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:5
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
4
6
-3
B
4
C
2
2
4
6
-3
A
1
0
2
2
4
6
-3
8
D
4
2
2
4
6
-3
7
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K