Fréttablaðið - 08.02.2019, Page 18

Fréttablaðið - 08.02.2019, Page 18
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Nine Kids er sneisafull af undurfallegum fatnaði og skótaui fyrir barnið, ásamt heillandi varningi sem mætir öllum þörfum barnsins. MYNDIR/ERNIR Við erum áhyggjulaus þegar við vitum að ástvinir okkar eru öruggir – að börnunum okkar líður vel og eru vernduð og örugg,“ segja þær Helga Sigurðar- dóttir og Sigríður Rún Siggeirsdótt- ir sem opnuðu Nine Kids ásamt eiginmönnum sínum, Theodóri og Hlyni, þann 1. nóvember síðast- liðinn. „Við erum stolt af því að bjóða framúrskarandi aðstöðu fyrir foreldra,“ segir Helga. „Í búðinni er gjafa- og skiptiaðstaða ásamt notalegu kaffihorni sem við bjóðum mömmuhópum að nota á morgnana fyrir hittinga. Það hefur verið mjög vinsælt.“ Loks fæst Cybex á Íslandi Stuttu fyrir opnun náði Nine Kids samningum við þýska bílstóla- og kerruframleiðandann Cybex og er verslunin sú fyrsta á Íslandi til að bjóða Cybex-bílstóla og barna- kerrur. „Frá og með gærdeginum, 7. febrúar, erum við líka eina verslunin sem býður Platinum- línu Cybex í netverslun á Íslandi. Það er stórt skref því við teljum mjög mikilvægt að þjónusta landið í heild sinni. Þá erum við einnig í samstarfi við tryggingafélagið Sjóvá og bjóðum viðskiptavinum í Stofni 20 prósenta afslátt af bíl- stólum,“ upplýsir Sigga. Cybex hefur hlotið fleiri en 250 verðlaun fyrir hönnun sína, öryggi og nýsköpun. „Á hverju ári gangast vörur Cybex undir hundruð árekstra- prófana, í þeim tilgangi að geta betrumbætt vörurnar enn frekar. Cybex-bílstólarnir eru einnig reglulega prófaðir og metnir af sjálfstæðum prófunarstofnunum Framhald af forsíðu ➛ og er fyrirtækið stolt af því að bílstólar þess fá framúrskarandi einkunn í stærstu evrópsku öryggis- og neytendaprófum, eins og ADAC og Stiftung Warentest,“ útskýrir Sigga. Besti matarstóll í heimi Nine Kids er eina barnavöruversl- unin á landinu sem selur Nomi- matarstólinn. „Matarstóllinn er sá vinsælasti í Danmörku og þar í landi er Nomi sjö af hverjum tíu seldum stólum. Hann fékk verðlaun fyrir bestu hönnunina í Danmörku árið 2016 og var valinn besti matarstóllinn í Noregi 2019. Hann var einnig efstur matarstóla í Vores BØrn, stærsta fjölskyldutímariti Skand- inavíu, á dögunum og það fimmta árið í röð!“ upplýsir Helga, stolt af því að bjóða íslenskum börnum loks til sætis í Nomi. „Hönnuður Nomi hefur rann- sakað setu fólks í fjörutíu ár og má með sanni segja að Nomi sé háþróaðasti og besti matarstóllinn á markaðinum í dag,“ segir Helga og býður viðskiptavini hjartanlega velkomna í Nine Kids til að skoða, máta og gera góð kaup. „Við leggjum okkur fram við að veita framúrskarandi þjónustu og sanngjörn verð.“ Nine Kids er í Hreyfilshúsinu, Fells- múla 24. Opið alla virka daga frá klukkan 11 til 18 og á laugardögum frá klukkan 11 til 16. Skoðið heima- síðuna ninekids.is. Ferð í Nine Kids er ævintýri. Í búðinni er gjafa- og skiptiaðstaða ásamt notalegu kaffihorni sem er vinsælt fyrir mömmuhittinga. Í Nine Kids fæst allt fyrir barnið á einum stað, hvort sem það er fatn- aður, búsáhöld, bílstólar, kerrur, leikföng eða hvað sem hugurinn girnist. 2 KYNNINGARBLAÐ 8 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RFYRSTU SKREFIN 0 8 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :5 4 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 4 6 -3 6 5 C 2 2 4 6 -3 5 2 0 2 2 4 6 -3 3 E 4 2 2 4 6 -3 2 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 7 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.