Fréttablaðið - 08.02.2019, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 08.02.2019, Blaðsíða 30
Móðir okkar, Sigríður Guðmundsdóttir frá Sæbóli í Aðalvík, síðast búsett á Kópavogsbraut 1b, lést sunnudaginn 3. febrúar. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 14. febrúar kl. 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Jóns Stefánssonar, reikningur 0133-15-10085 kennitala 610218-0750. Guðrún Hoyer Þorgilsdóttir og fjölskylda. Völundur Þorgilsson og fjölskylda. Hjartkær bróðir okkar, Pétur Pétursson Hátúni 12, Reykjavík, lést á Gran Canaria 16. janúar sl. Útförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 12. febrúar kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarfélög. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Ármann Pétursson Helga Sigríður Pétursdóttir Ástkær móðir okkar, Elín S. Sigurðardóttir ljósmóðir, Dalvík, sem lést 28. janúar verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 9. febrúar kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Dalbæjar, sími: 466-1378. Sigrún Jón Viðar Petrína Jóhanna Óskar og fjölskyldur þeirra. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur, bróðir og mágur, Þórir Magnússon málarameistari, Stapasíðu 11b, varð bráðkvaddur 30. janúar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 12. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Oddfellowregluna á Akureyri. Svava Svavarsdóttir Magnús Þórisson Anna Karen Þórisdóttir Þórey Sif Þórisdóttir Árdís Svanbergsdóttir Ragnar Magnússon Kristín Steindórsdóttir Einar Magnússon Guðný Sigurharðardóttir Ottó Magnússon Guðrún Gísladóttir Svavar Konráðsson Anna Friðriksdóttir Anna Soffía Svavarsdóttir Halldór G. Halldórsson Konráð Svavarsson Pálmey Sigtryggsdóttir Sigurður Örn Svavarsson fjölskylda og vinir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Björn Blöndal Kristmundsson Klapparhlíð 5, Mosfellsbæ, lést á hjartadeild Landspítalans 30. janúar sl. Útför hans fer fram mánudaginn 11. febrúar kl. 13.00 frá Áskirkju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjartadeildar Landspítalans fyrir fagmennsku og hlýtt viðmót til hans og aðstandenda hans, sem og til allra þeirra sem reyndust honum vel. Sigríður Jóna Kjartansdóttir Halldóra N. Björnsdóttir Birgir Þór Baldvinsson Kristín Björnsdóttir Ingvi Geir Ómarsson Kjartan Þór Birgisson Hrefna Gunnarsdóttir Sigríður Þóra Birgisdóttir Óli Hörður Þórðarson Halldóra Þóra Birgisdóttir Jón Kristinn Helgason Kristín Þóra Birgisdóttir Hjördís Birna Ingvadóttir Kristmundur Ómar Ingvason Hrafnkell S. Ingvason og langafabörn. 421 Konstantínus þriðji verður keisari Vestrómverska keisaradæmisins. 1587 María Stúart Skotadrottning er hálshöggvin. 1622 Jakob fyrsti leysir breska þingið upp 1696 Fimmtán verða úti í óveðri á Norður- og Vesturlandi. 1826 Bernardino Rivadavia verður fyrsti forseti Argentínu. 1925 Tveir togarar farast á Halamiðum í Halaveðrinu svo- kallaða. 1943 Her Sovétríkjanna nær borginni Kúrsk. 1950 Stasi stofnað. 1959 Togarinn Júlí ferst á Nýfundnalandsmiðum. 1971 NASDAQ-hlutabréfamarkaðurinn hefur starfsemi. 1980 Ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen tekur við völdum. 1995 Blaðamaðurinn Þórgnýr Einar Albertsson fæðist. 1998 Halldór Kiljan Laxness deyr. 2005 Google Maps fer í loftið. Merkisatburðir Það má svo sannarlega segja að í dag séu tímamót enda eru 140 ár liðin í dag frá því skosk-kanadíski verkfræðingurinn og upp-finningamaðurinn Sand- ford Fleming gekk inn á fund konung- legu vísindastofnunarinnar í Toronto árið 1879 og stakk upp á því að alþjóð- legur tími yrði tekinn upp. Fleming vildi að hnettinum yrði skipt upp í 24 tímabelti sem hvert um sig næði yfir fimmtán lengdargráður. Allar klukkur innan hvers beltis skyldu samstilltar en munurinn á milli hvers tímabeltis væri ein klukkustund. Þessi uppástunga Flemings fékk góðar undirtektir enda styðjumst við nú við breytta og bætta mynd af upprunalegu hugmyndinni, sem Fleming kallaði alþjóðatíma (e. Universal Time). Sagan á bak við hugmynd Flemings er nokkuð fyndin. Árið 1876 var hann á leið til Írlands. Hann missti hins vegar af lest sinni. Á útprentaðri áætlun lestar- innar stóð að hún ætti að fara eftir hádegi (p.m.) en hún fór í raun af stað fyrir hádegi (a.m.). Þetta tólf klukkustunda kerfi, og tvískipting sólarhringsins, varð ferðalangnum að falli og fékk hann því hugmyndina um að allur heimurinn skyldi taka upp sameiginlega 24 klukku- stunda klukku. Heiminum yrði síðan skipt niður í tímabelti og Greenwich yrði í miðjunni. Staðartími Greenwich hafði verið í notkun í nokkra ára- tugi áður en Fleming fékk hugmyndina. Með hugmyndina að vopni sótti Flem- ing fleiri ráðstefnur og talaði sínu máli. Stórt skref var stigið á Alþjóðlegu lengdar- b a ug a rá ð st e f n u n n i sem haldin var í banda- rísku höfuðborginni Washington í október 1884. Þar var ákveðið að Greenwich-baugurinn skyldi verða núllbaugur en ekki var tekið vel í hugmyndir Flemings að öllu leyti. Ráðstefnan samþykkti hugmynd hans um einn ákveðinn alþjóðlegan tíma til viðmiðunar en hafn- aði hugmyndinni um tímabelti. Ekki leið þó á löngu þar til heimsbyggðin hafði innleitt hugmynd Flemings um tímabelti. Enn þann dag í dag eru tímabelti þó umdeild, þá sérstaklega frávik frá stöðluðum tímabeltum. Til að mynda hefur verið lífleg umræða um það á Íslandi að undanförnu að landið sé í raun í röngu tímabelti. Þótt tímahugmyndir Flemings séu hans helsta arfleifð er vert að taka fram að maðurinn gerði ýmislegt annað bæði merkilegt og áhugavert á meðan hann lifði. Fleming var yfirverkfræðingur þegar Kanadamenn lögðu járnbrautakerfi sitt á milli Atlantshafs og Kyrrahafs. Þá hann- aði hann einnig fyrsta kanadíska frí- merkið. Það var rautt með mynd af bjór. thorgnyr@frettabladid.is Alþjóðlegur tími 140 ára Sandford Fleming kom víða. Lagði teina og hannaði frímerki. NORDICPHOTOS/GETTY Fleming hannaði þetta fyrsta frímerki Kanada. Skosk-kanadíski verkfræð- ingurinn Sandford Fleming stakk upp á alþjóðlegum tíma, tímabeltum og sam- ræmdri 24 stunda klukku fyrir 140 árum. Hugmynd hans var vel tekið enda búum við nú við þetta fyrirkomulag. 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 0 8 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :5 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 4 6 -0 E D C 2 2 4 6 -0 D A 0 2 2 4 6 -0 C 6 4 2 2 4 6 -0 B 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 7 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.