Mosfellingur - 20.12.2018, Side 50
Ekki bara íþrótt
Núna rétt fyrir jólin ætti heilsu-pistill mögulega að fjalla um
það sem flesta skiptir mestu máli um
hátíðarnar – samveru, góðan mat,
ró og frið, afslappað andrúmsloft.
Gjafir skipta máli, en eftir að hafa
flakkað á milli vinnustaða í desem-
ber til að ræða þetta, leyfi ég mér
að fullyrða að við séum að breytast
sem samfélag. Sí fleiri forgangsraða
samveru ofar en gjöfum og gjafir eru
að breytast frá því að vera stórar og
dýrar yfir í að snúast að gera eitthvað
skemmtilegt. Helst með þeim sem
gefur gjöfina. Það finnst mér vera
góð þróun. En ég ætla ekki að fjalla
um þetta í dag.
Í þessum síðasta pistli ársins langar mig að skrifa um uppáhaldsíþrótt-
ina mína, fótbolta. Ég hef gaman
af mörgum íþróttum, hef æft og
prófað ýmsar íþróttir og á eftir að
prófa fleiri. En það er eitthvað við
fótboltann sem nær mér alltaf. Sama
þótt ég reyni reglulega að sleppa af
honum takinu. Ég spila reyndar ekki
sjálfur fótbolta reglulega en leik mér
við guttana mína og tek öðru hvoru
þátt í skemmtilegum viðburðum
og mótum. Síðasti viðburður var
einmitt í síðustu viku þegar foreldr-
um og systkinum stráka í 7. flokki
var boðið að vera með á æfingu
þeirra og spila á móti þeim. Þetta
var stórkostlega skemmtilegt og
eitthvað sem mætti gera oftar. Tengir
foreldra saman, eflir tengsl þeirra við
krakkana sína og við þjálfara þeirra.
Fótbolti er miklu meira en bara íþrótt. Fótbolti opnar dyr alls
staðar í heiminum. Hvert sem við
förum er einhver sem hefur áhuga á
fótbolta, það skapar samræðugrund-
völl og hann hefur ekki minnkað
síðan Ísland fór að gera sig gildandi
á heimskortinu. 2019
verður ár Aftureld-
ingar í fótboltan-
um, bæði karla- og
kvennamegin.
Við eignuðumst
okkar fyrstu
Íslandsmeistara í
11 manna bolta á
þessu ári. Það var
bara byrjunin!
HEilsumolar Gaua
www.fastmos.is
Sími: 586 8080
Þverholti 2
- Heilsa og helgihald50
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
Helgihald yfir
jól og
áramót 2018
Fögnum helgri hátíð í húsi Guðs.
Allar upplýsingar um kirkjur og
kirkjustarf í Mosfellsbæ er hægt að nálgast á heimasíðu kirkjunnar:
www.lagafellskirkja.is
24. desember - Aðfangadagur
Kl. 13:00 Barnaguðsþjónusta í Lágafellskirkju
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir
Berglind Hönnudóttir æskulýðsfulltrúi
Kl. 18:00 Aftansöngur í Lágafellskirkju
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir
Einsöngvari: Bergþóra Ægisdóttir
Fiðluleikur: Sigrún Harðardóttir
Kl. 23:30 Miðnæturguðsþjónusta í Lágafellskirkju
Sr. Arndís Linn,
Fiðluleikur: Sigrún Harðardóttir
25. desember - Jóladagur
Kl. 14:00 Hátíðarguðsþjónusta í Lágafellskirkju
Sr. Arndís Linn
Einsöngur: Einar Clausen
Kl. 16:00 Hátíðarguðsþjónusta í Mosfellskirkju
Sr. Arndís Linn
Einsöngur: Einar Clausen
31. desember - Gamlársdagur
Kl. 17:00 Aftansöngur í Lágafellskirkju
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir
2019
6. janúar
Þrettándinn
Kl. 11:00
Fjölskylduguðsþjónusta
og sunnudagaskóli í
Lágafellskirkju
Sr. Arndís Linn
Berglind Hönnudóttir
Þórður Sigurðarson
Hinn árlegi helgileikur 5. bekk-
inga í Lágafellsskóla sem æfður
er undir stjórn umsjónarkenn-
ara var sýndur í Lágafellskirkju
um miðjan desember. Hver
bekkur átti sinn sýningardag og
voru tvær sýningar hvern dag.
Þetta var hátíðleg og notaleg
stund þar sem nemendur og
starfsmenn hlýddu saman á
boðskap jólanna.
Helgileikur
í kirkjunni
nemendur úr 5-hd í lágafellsskóla