Mosfellingur - 20.12.2018, Síða 50

Mosfellingur - 20.12.2018, Síða 50
Ekki bara íþrótt Núna rétt fyrir jólin ætti heilsu-pistill mögulega að fjalla um það sem flesta skiptir mestu máli um hátíðarnar – samveru, góðan mat, ró og frið, afslappað andrúmsloft. Gjafir skipta máli, en eftir að hafa flakkað á milli vinnustaða í desem- ber til að ræða þetta, leyfi ég mér að fullyrða að við séum að breytast sem samfélag. Sí fleiri forgangsraða samveru ofar en gjöfum og gjafir eru að breytast frá því að vera stórar og dýrar yfir í að snúast að gera eitthvað skemmtilegt. Helst með þeim sem gefur gjöfina. Það finnst mér vera góð þróun. En ég ætla ekki að fjalla um þetta í dag. Í þessum síðasta pistli ársins langar mig að skrifa um uppáhaldsíþrótt- ina mína, fótbolta. Ég hef gaman af mörgum íþróttum, hef æft og prófað ýmsar íþróttir og á eftir að prófa fleiri. En það er eitthvað við fótboltann sem nær mér alltaf. Sama þótt ég reyni reglulega að sleppa af honum takinu. Ég spila reyndar ekki sjálfur fótbolta reglulega en leik mér við guttana mína og tek öðru hvoru þátt í skemmtilegum viðburðum og mótum. Síðasti viðburður var einmitt í síðustu viku þegar foreldr- um og systkinum stráka í 7. flokki var boðið að vera með á æfingu þeirra og spila á móti þeim. Þetta var stórkostlega skemmtilegt og eitthvað sem mætti gera oftar. Tengir foreldra saman, eflir tengsl þeirra við krakkana sína og við þjálfara þeirra. Fótbolti er miklu meira en bara íþrótt. Fótbolti opnar dyr alls staðar í heiminum. Hvert sem við förum er einhver sem hefur áhuga á fótbolta, það skapar samræðugrund- völl og hann hefur ekki minnkað síðan Ísland fór að gera sig gildandi á heimskortinu. 2019 verður ár Aftureld- ingar í fótboltan- um, bæði karla- og kvennamegin. Við eignuðumst okkar fyrstu Íslandsmeistara í 11 manna bolta á þessu ári. Það var bara byrjunin! HEilsumolar Gaua www.fastmos.is Sími: 586 8080 Þverholti 2 - Heilsa og helgihald50 Guðjón Svansson gudjon@kettlebells.is Helgihald yfir jól og áramót 2018 Fögnum helgri hátíð í húsi Guðs. Allar upplýsingar um kirkjur og kirkjustarf í Mosfellsbæ er hægt að nálgast á heimasíðu kirkjunnar: www.lagafellskirkja.is 24. desember - Aðfangadagur Kl. 13:00 Barnaguðsþjónusta í Lágafellskirkju Sr. Ragnheiður Jónsdóttir Berglind Hönnudóttir æskulýðsfulltrúi Kl. 18:00 Aftansöngur í Lágafellskirkju Sr. Ragnheiður Jónsdóttir Einsöngvari: Bergþóra Ægisdóttir Fiðluleikur: Sigrún Harðardóttir Kl. 23:30 Miðnæturguðsþjónusta í Lágafellskirkju Sr. Arndís Linn, Fiðluleikur: Sigrún Harðardóttir 25. desember - Jóladagur Kl. 14:00 Hátíðarguðsþjónusta í Lágafellskirkju Sr. Arndís Linn Einsöngur: Einar Clausen Kl. 16:00 Hátíðarguðsþjónusta í Mosfellskirkju Sr. Arndís Linn Einsöngur: Einar Clausen 31. desember - Gamlársdagur Kl. 17:00 Aftansöngur í Lágafellskirkju Sr. Ragnheiður Jónsdóttir 2019 6. janúar Þrettándinn Kl. 11:00 Fjölskylduguðsþjónusta og sunnudagaskóli í Lágafellskirkju Sr. Arndís Linn Berglind Hönnudóttir Þórður Sigurðarson Hinn árlegi helgileikur 5. bekk- inga í Lágafellsskóla sem æfður er undir stjórn umsjónarkenn- ara var sýndur í Lágafellskirkju um miðjan desember. Hver bekkur átti sinn sýningardag og voru tvær sýningar hvern dag. Þetta var hátíðleg og notaleg stund þar sem nemendur og starfsmenn hlýddu saman á boðskap jólanna. Helgileikur í kirkjunni nemendur úr 5-hd í lágafellsskóla

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.