Mosfellingur - 28.01.2016, Blaðsíða 10
- Fréttir úr Mosfellsbæ10
100 bílar | Þverholti 6 | Sími 517 9999 | 100bilar@100bilar.iS
mikið úrval af nýjum og notuðum
bílum á staðnum, inni og á útisvæði
í boði með 100% fjármögnun.
www.100bilar.is
VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja
Álagning
fasteigna-
gjalda 2016
Beinvernd eru landssamtök áhugafólks
um beinþynningu, jafnt leikra sem lærðra.
Samtökin voru stofnuð 12. mars 1997
í Reykjavík og var aðalhvatamaður um
stofnun þeirra Ólafur Ólafsson þáverandi
landlækir.
Síðastliðin átta ár hefur Beinvernd haft
skrifstofu að Háholti 14, sem er vel staðsett
í heilsubænum Mosfellsbæ. Starfsmaður
Beinverndar, Halldóra Björnsdóttir, heim-
sækir gjarnan vinnustaði, félagasamtök
aldraðra og önnur samtök með fræðslu-
erindi. Varmárskóli, Lágafellsskóli, Lions-
klúbbinn Úa, Reykjalundur og félagsstarf
aldraðra hér í bæ hafa öll verið heimsótt á
undanförnum árum.
Beinagrindin lifandi vefur
En hvers vegna að stofna félag eða lands-
samtök um beinþynningu?
„Beinagrindin er lifandi vefur sem alla
ævi er brotinn niður og um leið endur-
byggður,“ segir Halldóra. „Heilbrigði
beinanna er háð margvíslegum þáttum,
sem tengjast fæðu, hreyfingu og aldri.
Beinþynning verður til, þegar kalk í bein-
um minnkar og styrkur þeirra þar með. Hin
harða og þétta skurn, sem jafnan umlykur
beinin, þynnist og frauðbeinið sem fyllir
hol þeirra gisnar. Þau verða stökk og hætta
á brotum eykst við minnsta átak. Þessar
breytingar eru því miður einkennalausar og
uppgötvast oft ekki fyrr en við beinbrot.“
Fræðsla skipar stóran sess
Beinvernd hefur sett sér fjögur markmið
til að vinna gegn afleiðingum beinþynn-
ingar, þar sem vitundarvakning og fræðsla
skipa stóran sess. Markmið félagsins eru:
1. Að vekja athygli almennings og
stjórnvalda á beinþynningu sem heilsu-
farsvandamáli
2. Að miðla hverju sinni nýjustu þekkingu
á þessum vanda og vörnum gegn honum til
almennings og heilbrigðisstétta.
3. Að stuðla að auknum rannsóknum á
eðli, orsökum og afleiðingum beinþynn-
ingar og forvörnum gegn henni.
4. Að eiga samskipti við erlend félög, sem
starfa á svipuðum grundvelli.
Beinvernd hefur gefið út fjölmarga
fræðslubæklinga og fréttabréf, og heldur
úti heimasíðunni www.beinvernd.is og síðu
á Facebook. Á þessum síðum er að finna
mikinn fróðleik um beinþynningu, orsakir,
áhættuþætti, greiningu og meðferð.
Beinvernd hefur haft aðsetur í Háholti síðastliðin átta ár
Vinna gegn afleið-
ingumbeinþynningar
Halldóra björnsdóttir
starfsmaður beinverndar
Golfunglingar
safna fyrir
æfingaferð
Unglingastarf GM mun
næstu laugardaga þrífa
og bóna bíla í vélaskemmu klúbbsins.
Þessi þrif eru hluti af söfnun fyrir æfingaferð hópsins nú í vor.
Nú er um að gera að láta unglingana
(ásamt foreldrum) þrífa og bóna bílinn.
Allar nánari upplýsingar og
tímapantanir eru í síma 690-9400.
Tilkynning til eigenda fasteigna í Mosfellsbæ
Álagningarseðlar fasteignagjalda eru birtir rafrænt
á upplýsinga- og þjónustuveitunni www.island.is
og íbúagátt Mosfellsbæjar, ibuagatt.mosfellsbaer.is
Fasteignagjöld skiptast á níu gjalddaga frá 15. janúar til
15. september. Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum
eftir gjalddaga og fellur allur skattur ársins í gjalddaga
ef vanskil verða. Sé fjárhæð fasteignagjalda undir kr. 40.000
er gjalddagi þeirra 15. janúar.
Fasteignagjöld má greiða með greiðsluseðlum sem
jafnframt birtast meðal ógreiddra reikninga í heimabanka,
með beingreiðslum, með boðgreiðslum og í Þjónustuveri
Mosfellsbæjar. Greiðsluseðlar eru almennt ekki sendir nema
þess hafi verið óskað sérstaklega á íbúagátt Mosfellsbæjar,
ibuagatt.mosfellsbaer.is eða í Þjónustuveri Mosfellsbæjar.
Þjónustuver Mosfellsbæjar veitir nánari upplýsingar og sendir
þeim sem þess óska útprentaða álagningarseðla og greiðsluseðla.
Þjónustuver Mosfellsbæjar
Þverholti 2, sími 525-6700
mos@mos.is