Mosfellingur - 28.01.2016, Blaðsíða 24

Mosfellingur - 28.01.2016, Blaðsíða 24
 - Heilsumolar og Stormsveitin24 Ertu fáviti? Ertu fáviti? spurði markalaus og pirraður framherji 4. flokks Sel- foss varnarmanninn son minn um síðustu helgi. Bætti svo við: Á ég að lemja þig? Minn maður bauð honum að gjöra svo vel, brosti og hélt áfram að spila leikinn. Stórkostleg við- brögð, ég var ekki lítið ánægður með hann þegar hann sagði mér frá þessu eftir leikinn. Það er mun algengara að leyfa öðrum koma sér úr jafnvægi. Kenna svo um að hafa gert mann reiðan eða pirraðan og „látið mann“ gera hitt eða þetta. Minn maður hefði getað vaðið í sóknarmanninn eða öskrað á hann á móti og þannig látið hann koma sér úr jafnvægi. Kennt honum svo um að hafa reitt sig til reiði. En hann valdi að gera það ekki. Hann valdi að brosa, halda áfram að spila fótbolta og koma áfram í veg fyrir að nýi vinur hans skoraði mark. Þegar maður nær að stýra tilfinn-ingunum er maður mun hæfari í því sem maður gerir. Líklegri til þess að ná árangri. Líklegri til þess að klára það sem maður byrjaði á. Lík- legri til þess að mæta á æfingu, fara að sofa á skikkanlegum tíma, leika við börnin, hafa gaman af lífinu. Líklegri til þess að líða betur, vera heilsuhraustari á líkama og sál. Pirraði gaurinn, sem við höf-um öll einhvern tíma verið, er líklegri til að taka rangar ákvarðanir, gera mistök, hætta við góðu vanana og gefast upp á því sem hann byrjaði. Næst þegar einhver spyr þig hvort þú sért fáviti, býður þér upp á barsmíð- ar, kallar þig feitan, mjóan, ljótan, sveitalubba eða pirrar þig á einhvern annan hátt, kallaðu fram mynd í huganum af bros- andi varnarmanni í rauðum búningi Aftureldingar og taktu þér hann til fyrirmyndar þegar þú bregst við. Þér á eftir að líða miklu betur og hinn lærir vonandi af mis- tökum sínum. HEilsumolar Gaua Guðjón Svansson gudjon@kettlebells.is Þverholti 2 • Mosfellsbæ Fasteignasala Mosfellsbæjar Sími: 586 8080 www.fastmos.ishafðu samband E.BAC K M A N Einar Páll Kjærnested • Löggiltur fasteignasali Viltuselja... E .B A C K M A N www.fastmos.is Sími: 586 8080 Rauði kRossinn leitaR að veRkefnisstjóRa Helstu verkefni eru umsjón með sjálfboðaliða- verkefnunum Heimsóknarvinum, Fötum sem framlagi og Heilahristingi. Þá hefur verkefnisstjóri umsjón með móttöku nýrra sjálfboðaliða og skráningu þeirra og tekur þátt í átaksverkefnum. Verkefnisstjóri starfar í umboði stjórnar Rauða krossins í Mosfellsbæ. Við leitum eftir ábyrgum, glaðlegum og þjónustulunduðum einstaklingi sem hefur gaman af ólíkum verkefnum og samskiptum við fólk á öllum aldri. Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á starfsemi félagasamtaka og vinnu með sjálfboðaliðum. Starfsstöð er í húsnæði Rauða krossins Þverholti 7 en verkefnisstjóri vinnur einnig með starfsmönnum á öðrum starfsstöðvum félagsins. Um er að ræða 50% starf. Frekari upplýsingar gefur Hilmar Bergmann formaður Rauða krossins í Mosfellsbæ á netfang- inu hilmar@redcross.is eða í síma 775 4258. Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar og eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um. Umsóknir skulu innihalda stutt kynningarbréf þar sem fram koma rök fyrir hæfni í starfið og greinargóða ferilskrá. Umsóknir skulu sendar á netfangið hilmar@redcross.is. Aðalmerki | Samsetning | Mosfellsbæ Rauði krossinn í Mosfellsbæ auglýsir starf verkefnisstjóra. M yn di r/ Ra gg iÓ la svipmyndir stormsveitarinnar frá þrettándatónleik um

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.