Mosfellingur - 01.10.2015, Blaðsíða 6
BUBBI
MORTHENS
DÚNDURFRÉTTIR
FYRIRSPURNIR MÁ SENDA Á HLEGARDUR@HLEGARDUR.IS EÐA HRINGJA Í SÍMA 665-0901
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK!
BUBBI MORTHENS
3. OKTÓBER
DÚNDURFRÉTTIR
6. NÓVEMBER
KK & ELLEN
5. DESEMBER
HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ YKKUR Í HLÉGARÐI!
VELKOMIN Í
HLÉGARÐ
BUBBI
MORTHENS
DÚNDURFRÉTTIR
FYRIRSPURNIR MÁ SENDA Á HLEGARDUR@HLEGARDUR.IS EÐA HRINGJA Í SÍMA 665-0901
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK!
BUBBI MORTHENS
3. OKTÓBER
DÚNDURFRÉTTIR
6. NÓVEMBER
KK & ELLEN
5. DESEMBER
HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ YKKUR Í HLÉGARÐI!
VELKOMIN Í
HLÉGARÐ
Eldri borgarar
Þjónustumiðstöðin
Eirhömrum
Minnum á að félagstarfið á
Hlaðhömrum er fyrir alla eldri borgara,
öryrkja,og atvinnulausa í Mosfellsbæ,
endilega nýtum okkur frábæra
aðstöðu og léttum lundina
með félagslegri samveru.
AlltAf opið frá kl 13:00-16:00
GAMAN SAMAN
Verður næst haldið fimmtudaginn
1. okt. kl. 13:30 í borðsal Hlaðhömrum 2.
Síðan verður það aftur 15. og 29. okt.
Allir velkomnir. Palli Helga og glaða
gengið fær til sín skemmtilega gesti.
félagsvist
9. og 23. okt. Allir velkomnir.
Aðgangseyrir kr. 600 -,
innifalið er kaffi og meðlæti.
BASAr – ViNNA
OKKUR VANTAR HJÁLP!!!
Framvegis á þriðjudögum
kl. 13:00-16:00 munum við
í handverkssstofu leggja
áherslu á BASARvinnu og kappkosta
að klára að fullgera fallega muni sem
við munum selja síðan á basarnum 14.
nóv. Margar hendur vinna
létt verk. Minnum á að
allur ágóði basarsins fer til
þeirra sem minna mega sín í
Mosfellsbæ.
Kær kveðja, Basarnefndin
Að gefa af sér er góð gjöf
Dansleikfimi
Er kennd að Varmá miðvikudaga
kl. 14:30 kennari er Auður Harpa.
Allir velkomnir í frábæra tíma.
postulínsnámskeið,
glernámskeið og perluhópur
Postulínið fór vel á stað undir dyggri
leiðsögn Laufeyjar sem hefur
margra ára reynslu sem kennari
í postulíni. Nokkur sæti eru þó
laus ef þú vilt slást í hópinn
á föstudögum kl 13:00.
Glernámskeiðin hjá Fríðu
eru alltaf troðfull og nú eru 3
pláss eftir 6. nóv., þannig það
er um að gera að hafa hraðar
hendur. Glerið er kennt á föstu-
dögum kl. 10:00-14:00. Jóna
heldur utan um perluhópinn
sinn sem stækkar ansi hratt, en
alltaf er pláss fyrir gott fólk, endilega kíkið
á Jónu á mánudögum og miðvikudögum
kl. 13:00. Einnig eru laus pláss hjá Stefáni í
tréútskurð á miðvikudögum kl. 19:00.
leshringur
Verður mánudaginn 5. okt. kl. 10:30
á Eirhömrum. Þeir sem hafa áhuga
að vera með geta haft samband við
Einar Halldórsson í síma
899-3227/566-7227.
Viltu læra að prjóna
eða rifja upp?
Í handverkstofunni á
Eirhömrum eru starf-
andi leiðbeinendur
alla virka daga nema
föstudaga milli kl. 13-16, þær
Stefanía og Guðbjörg sem
geta komið þér af stað með
flestallan prjónaskap. Endilega
komdu og kíktu við og leyfðu
okkur að aðstoða þig :)
Menningarkvöld
Þann 12. október mun Leikfélag Mos-
fellssveitar vera með skemmtidagskrá
fyrri hluta kvöldsins, en síðan flytur
Gunnhildur Hrólfsdóttir erindi um konur
og það sem þær lögðu til framfara og
hagsbóta á árunm 1835-1980 og
einnig les hún úr bók sinni: „Þær þráðinn
spunnu. Dagskráin fer fram í Hlégarði og
hefst kl. 20:00. Kv. FaMos.
kíkt fyrir horn
8. okt. kl. 13:00. Ferð í Hæðargarð sem
er félagsmiðstöð fyrir eldri borgara og
aðra í Reykjavík. Ætlum við að kíkja
í heimsókn til þeirra og fáum okkur
kannski kaffisopa. Söfnumst saman í
einkabíla. Þeir sem hafa áhuga að slást
með í för endilega hafið samband við
okkur í félagsstarfinu í síma 586-8014 alla
virka daga frá 13:00-16:00.
Ertu að taka til???
Okkur vantar alltaf garn, tölur,
blúndur og borða ef þið eruð
að taka til, allt notum við þetta
í basarvinnu og gefum allan
ágóðann sem selst til þeirra sem
minna mega sín í bænum okkar.
Endilega mundu eftir okkur í
næstu tiltekt :)) Kærleikskveðja frá
Félagsstarfi eldri borgara Eirhömrum
Skrifstofa þjónustumiðstöðvarinnar
Eirhömrum er opin alla virka daga
milli kl 13:00-16:00. Allar upplýsingar
og skráningar eru hjá forstöðumanni
þjónustumiðstöðvarinnar í síma
586-8014 eða 698-0090.
- Fréttir úr bæjarlífinu6
Laxness-veisla fram-
undan í sjónvarpinu
Í desember verða 60 ár liðin frá því
að Halldór Laxness hlaut Nóbels-
verðlaunin í bókmenntum. Af því
tilefni sýnir RÚV
allar kvikmyndir
sem gerðar hafa
verið eftir sögum
hans. Þar á meðal
eru sjaldséðar
perlur eins og
Brekkukotsannáll,
Paradísarheimt,
Salka Valka og Atómstöðin sem ekki
hafa verið sýndar opinberlega í ára-
tugi. Einnig verða sýndar myndirnar
Kristnihald undir jökli og Ungfrúin
góða og húsið en allar verða þær
sýndar í fyrsta sinn í íslensku sjón-
varpi í endubættum útgáfum, bæði
hvað varðar hljóð- og myndgæði.
Myndirnar verða sýndar á sunnu-
dagskvöldum fram til áramóta.
Salka Valka ríður á vaðið 18. október
og verða svo myndirnar sýndar í
aldursröð. Í tengslum við myndirn-
ar verða sýndir stuttir þættir með
gömlum mynd- og hljóðbrotum þar
sem Laxness ræðir um verk sín.
Foreldramorgnar
á miðvikudögum
Lágafellssókn býður foreldrum að
koma saman með börnin sín og eiga
notalega stund í safnaðarheimili
kirkjunnar. Foreldrasamverurnar
eru oftast óformlegar og er höf-
uðáherslan lögð á að foreldrarnir
geti hitt annað fólk í sömu sporum,
þ.e. með lítil börn. Þetta eru líka
góðar stundir fyrir börnin því það
er þroskandi og örvandi fyrir þau að
hitta önnur börn. Foreldramorgnar
eru á miðvikudögum milli 10 og 12 í
Safnaðarheimili Lágafellssóknar.
Vídeóspólurnar víkja fyrir safa- og samlokubar • Breytingar í Háholti eftir 15 ára rekstur
„Fólk vill eiga kost á hollari
máltíðum,“ segir Ásta björk
Í sumar urðu breytingar á rekstri Snæland-
video sem nú heitir Ice boost and bur-
gers. Vídeóspólurnar fengu að víkja fyrir
metnaðarfullum safa- og samlokubar.
Hjónin Ásta Björk Benediktsdóttir og
Gunnlaugur Pálsson sem eru búin að vera
með þennan rekstur í 15 ár eru ánægð með
breytingarnar. „Ég var búin að ganga með
þessa hugmynd í maganum í langan tíma.
Það hefur verið mikil umræða um heilsu-
eflandi samfélag hér í Mosfellsbæ og fólk vill
eiga kost á hollari máltíðum,“ segir Ásta.
Safar, skyrdrykkir og samlokur
„Við bjóðum uppá ýmsa safa, skyrdrykki
og ferskar samlokur, auk þess erum við
með flottan ísbar og svo hefðbundin grill-
matseðil. Við reynum að koma til móts við
þarfir og óskir viðskiptavinarins, erum til
dæmis alltaf með drykk mánaðarins.
Mosfellsbakarí bakar fyrir okkur svokall-
aða hleifa sem er heilsubrauð og erum við
með skemmtilegt úrval af heilsusamlegu
áleggi t.d. heimagerðu pestói. Þetta hefur
farið mjög vel af stað og fólk kemur aftur
og aftur. Við höfum fengið virkilega góð
viðbrögð, enda höfum við lagt mikinn
metnað í þetta og er gaman að geta boðið
upp á svona fjölbreytt úrval,“ segir Ásta.
fersk engifer- og túrmerikskot
Vinsældir engifer- og túrmerikskota er
alltaf að aukast, en það eru margir fasta-
kúnnar sem koma á hverjum degi og fá sér
orkuskot.
„Þessi skot eru algjör snilld. Það eru
margir sem segjast finna mikinn mun á sér
bæði hvað varðar orku og ýmsa kvilla sem
eru að hrjá fólk. Við erum að fá fjölbreyttari
kúnnahóp til okkar eftir breytingarnar, því
það ættu flestir að finna eitthvað við sitt
hæfi,“ segir Ásta og bætir við að þau hafi
í gegnum tíðina verið einstaklega heppin
með starfsfólk sem gerir reksturinn bæði
auðveldari og skemmtilegri.
ásta hefur gengið með
hugmyndina lengi í maganum
hluti af starfsliðinu ice boost and burgers
hollustan í fyrirrúmi
BUBBI
MORTHENS
DÚNDURFRÉTTIR
FYRIRSPURNIR MÁ SENDA Á HLEGARDUR@HLEGARDUR.IS EÐA HRINGJA Í SÍMA 665-0901
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK!
BUBBI MORTHENS
3. OKTÓBER
DÚNDURFRÉTTIR
6. NÓVEMBER
KK & ELLEN
5. DESEMBER
HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ YKKUR Í HLÉGARÐI!
VELKOMIN Í
HLÉGARÐ