Mosfellingur - 01.10.2015, Síða 24
Takk fyrir pokann
Góðan dag, mig langar að koma á
framfæri þakklæti til bæjaryfirvalda.
Ég fékk margnota innkaupapoka
inn um lúguna hjá mér á dögunum
og er nú þegar byrjuð að nota hann
heilmikið. Þetta er frábært framtak
hjá Mosfellsbæ og heilsubæ til sóma.
Minnkum plastnotkun öll í samein-
ingu og hugsum um jörðina sem við
erum gestir á.
Hulda
ORÐIÐ ER LAUST...
Hér gefst lesendum kostur á að
láta skoðanir sínar í ljós í stuttu máli.
- Aðsendar greinar24
HEnTU
Það er gott fyrir mann að hætta að gera það sem tekur frá manni
orku og gera í staðinn það sem gefur
manni orku. Því meiri orku sem
maður hefur sjálfur, því meir getur
maður gefið af sér. Hlutir geta líka
tekið frá manni orku. Dýrir hlutir,
fínir hlutir, hlutir með sögu, hlutir
sem mann langar í, hlutir, hlutir sem
mega ekki skemmast, hlutir sem
mega ekki týnast. Dæmi: fíni speg-
illinn frá ömmu, iPhone 6 (bráðum
7), finnski vasinn, rétti hjólabún-
ingurinn, dúnúlpan, fellihýsið og
leðurstígvélin. Listinn er ótæmandi
og mismunandi eftir lífstíl hvers og
eins.
Alveg eins og það er frelsandi að losa sig úr orkutæmandi verk-
efnum er ótrúlega gott fyrir sálina að
losa sig við alla þessa hluti. Hlutun-
um fylgja áhyggjur og óþarfa vesen.
Áhyggjur skapa stress. Stress hefur
bein áhrif á andlega og líkamlega
heilsu. Því meira stress, því meira
álag á líkamann. Þar af leiðandi er
borðleggjandi að því færri hluti sem
maður á og því færri hluti sem mann
langar í, því betri er líkamleg heilsa
manns. Mitt markmið, og ég er mjög
nálægt því í dag, er að eiga svo fáa
hluti sem mér er ekki sama um að ég
geti pakkað þeim í stóran bakpoka.
Það sem skiptir mig máli er að vera
með fjölskyldunni og öðru góðu
fólki, gera það sem ég elska að gera
og reyna að hvetja aðra til þess að
bæta líf sitt, láta drauma rætast.
Ég skora á þig að taka til í dótinu þínu. Losa þig við alla orku-
krefjandi hluti, líka stóra spegilinn
sem þú erfðir frá ömmu, henni er
pottþétt sama þótt þú
leyfir öðrum að
njóta hlutanna
hennar. Prófaðu
svo að gera lista
yfir þá hluti sem
þú myndir setja í
60 lítra bakpoka,
þá fáu hluti sem
virkilega skipta þig
máli.
Áframveginn!
HEILSUmOLAR GAUA
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
Þverholti 2 • Mosfellsbæ
Fasteignasala
Mosfellsbæjar
Sími: 586 8080
www.fastmos.ishafðu samband E.BAC
K
M
A
N
Einar Páll Kjærnested • Löggiltur fasteignasali
Viltuselja...
E
.B
A
C
K
M
A
N
www.fastmos.is
Sími: 586 8080
Haustið er skollið á í öllu sínu
veldi. Náttúran minnir okkur á
það með sínu litskrúðuga lista-
verki og rysjótta veðurfari. Hin
daglega rútína er komin í gang
á flestum heimilum eftir sum-
arfríið. Skólarnir hófu göngu
sína fyrir nokkru með öllu því
sem tilheyrir. Börnin eru farin
að koma heim með lestrarbækurnar
sínar og heimanámið og við foreldrarn-
ir aðstoðum eftir þörfum.
Lestur er stór hluti af skólagöngu
barna okkar, sama á hvaða aldri þau
eru. Á leikskólaaldri eru börn að fást við
margskonar verkefni sem tengjast lestri
í leikskólanum. Þau syngja, skoða bæk-
ur, hlusta á sögur, vinna með bókstaf-
ina með ýmsu móti. Jafnvel eru einhver
þeirra farin að stauta sig áfram og sum
hver orðin læs að einhverju leyti. Þeg-
ar grunnskólaárin taka við er það stórt
skref að velja sér bók og lesa hana upp
á eigin spýtur. Fyrsta heimalestrarbók-
in er alltaf tilhlökkunarefni hjá börnum
sem eru að hefja nám í grunnskóla. Það
skiptir miklu máli að við foreldrar styðj-
um börnin okkar í lestrarnáminu og
sýnum áhuga og aðhald. Lestur styrkir
málvitund og eykur orðaforða, ímynd-
unaraflið eflist og forvitnin eykst. Lest-
ur eykur einbeitingu og er fræðandi fyrir
alla. Það er líka alveg satt sem hann Ingó
veðurguð segir: „Það er gott að lesa“ – og
það er einnig satt sem hann segir: „Það
er gott að lesa fyrir barn eins og þig.“
Það er nauðsynlegt að börnin sjálf
fái að koma að vali á sínu les-
efni, alveg eins og við fullorðna
fólkið. Það er frekar fráhrind-
andi að bisa við að lesa ein-
hverja hundleiðinlega bók, þá
er áhuginn fljótlega farinn út
um þúfur. Hvetjum börnin til
að lesa aftan á bókakápurnar,
um hvað fjallar bókin, gæti hún
verið skemmtileg og spennandi? Viljum
við kannski lesa teiknimyndasögur eða
fræðibækur? Svo má líka alveg hætta að
lesa bækur í miðju kafi ef efnið er ekki
áhugavert og einfaldlega skipta um bók.
Það gerist ekkert stórvægilegt við það :)
Förum með börnin okkar á Bókasafn
Mosfellsbæjar. Það er reynsla mín sem
foreldri og kennari að þangað er gott
að sækja. Starfsfólkið er boðið og búið
að aðstoða með hvað sem er og það er
notalegt að eiga góða stund á safninu.
Það er ekkert nýtt undir sólinni í þess-
um efnum, það er einfaldlega þannig að
samvinna heimilis og skóla skiptir megin-
máli í námi barna okkar. Grunnurinn er
lagður heima og við vitum öll hvað það er
notalegt að eiga góða stund saman með
bók í hönd. Við berum ábyrgð á námi
barna okkar og okkur ber að styðja þau
og styrkja eins og við getum. Það er mín
reynsla héðan úr Mosfellsbæ að metnað-
ur fyrir námi barna er mikill og bæði for-
eldrar, kennarar og yfirvöld starfa saman
að því að bera hag barnanna okkar fyrir
brjósti. Lestur er bestur!
SvavaBjörkÁsgeirsdóttir,
móðiroggrunnskólakennari.
SkólaSkrifStofa moSfellSbæjar
Lestur í skólabyrjun
– það er gott að lesa!
Skóla
hornið
Skemmtilegt í túninu
Bæjarhátíðin okkar var frábær þetta
árið eins og alltaf í rauninni. Dagskrá-
in var mjög fjölbreytt og við gátum
svo sannarlega fundið okkur margt að
bralla við hjónin. Veðrið var frábært
og við nutum þess að ganga um bæinn
okkar og njóta skemmtilegra viðburða.
Okkur finnst gaman að enda sumrið
á hátíð í okkar heimabæ. Þá eru allir
hættir í útilegum og farnir að huga
að rútínu vetrarins. Við í götunni
hittumst í fyrsta sinn í götugrilli og við
kynntumst fullt af nágrönnum sem við
höfðum ekki séð áður. Ég er strax farin
að hlakka til næsta árs.
ÍbúiíReykjahverfi
Allt til leigu
Mér finnst sorglegt að horfa upp á
miðbæinn okkar sem er ekki neitt
neitt. Er ekki hægt að útbúa skemmti-
legan miðbæ í 10.000 manna bæjar-
félagi? Það er annaðhvert rými til
leigu. Hvort sem það er í Kjarna eða
Krónuhúsi. Svo er það Kaupfélags-
húsið, hvað á það að standa lengi
autt? Er ekki hægt að gera eitthvað
í þessu? Ég hvet þá sem stjórna hér
til að bretta upp ermarnar og útbúa
loksins einhvern skemmtilegan miðbæ
og jafnvel göngugötu sem gaman væri
að rölta. Svo þarf að hvetja fyrirtæki
til að halda hér úti rekstri og jafnvel
verða þeim eitthvað að liði svo þau
geti nú blómstrað. Þessi fyrirtæki sem
eru hérna eru mörg hver hvorki fugl
né fiskur.
Sigrún
Hreyfivika UMFÍ fór fram dagana 21.-27.
september. Hún er hluti af stærra lýðheilsu-
verkefni sem fer fram á sama tíma um alla
Evrópu, þar sem markmiðið er að fá meira
en hundrað miljónir manna til að hreyfa sig
meira fyrir árið 2020.
Mosfellsbær bauð uppá fjölbreytta dag-
skrá í tilefni vikunnar og má þar nefna opna
tíma hjá hinum ýmsu deildum Afturelding-
ar, fræðslu fyrir þjálfara, leikfimi á vegum
FaMos og fjallgöngur.
FjöLbreytt HreyFivika
Afturelding tók virkAn
þátt í hreyfivikunni
lAgt á mosfellið