Mosfellingur - 16.05.2013, Blaðsíða 23
www.mosfellingur.is - 23
Matjurtagarðar
í Mosfellsbæ
VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja
Matjurtagarðar bæjarins verða sem fyrr
staðsettir í Skarhólamýri, á sama stað og
garðar hafa verið til útleigu undanfarin
ár. Aðgengi að vatni verður við garðana.
Staðsetningu garða og fyrirkomulag
má sjá á meðfylgjandi korti.
Leiguverð fyrir matjurtagarða er 5.000 kr.
fyrir 100 fm. garð og 2.500 kr. fyrir
50 fm. garð. Þeir sem óska eftir því að
leigja áfram sama garð og í fyrra eru
beðnir um að staðfesta leiguna með
greiðslu fyrir 22. maí n.k.
Eftir þann tíma verða allir garðar
leigðir út til Mosfellinga skv. biðlista.
Þjónustuver Mosfellsbæjar, 2. hæð,
Þverholti 2, annast eins og áður móttöku
umsókna og tekur við greiðslum.
Hægt er að hafa samband við þjónustuver
Mosfellsbæjar í síma 525 6700 eða í
gegnum netfangið mos@mos.is með ósk
um að komast á biðlista um matjurta-
garð. Garðar verða tilbúnir til notkunar
föstudaginn 24. maí n.k.
Ef þörf er á verður mögulegt að úthluta
matjurtagörðum austan Varmárskóla
eins og áður. Einnig eiga íbúar í Mosfells-
bæ möguleika að fá leigða matjurtagarða
á vegum Reykjavíkurborgar í Skammadal.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykja-
víkurborgar sér um útleiguna og geta
áhugasamir sótt um garð í netfangið
matjurtagardar@reykjavik.is eða í síma
411 1111, og látið skrá sig á lista með ósk
um garð. Taka þarf
fram að viðkomandi sé
íbúi í Mosfellsbæ.
Búið er að opna fyrir umsóknir um matjurtagarða í Mosfellsbæ
Vorboðar starfa af krafti
Umhverfissvið Mosfellsbæjar
opið:
kl. 10-18.30
alla virka dagavelkomin
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
HáHolti 13-15 - sími 578 6699
grillum fisk
í sumar
Tilvalið í
ferðalagið