Mosfellingur - 16.05.2013, Blaðsíða 22
Þann 1. maí fóru Mosverjar í hreinsunarleiðangur og gengu meðfram Varmánni, tóku
upp rusl og hreinsuðu ána sjálfa. Þessi vaska sveit fann meðal annars reiðhjól, hlaupa-
hjól og hluta af sófasetti í ánni. Var þetta liður í fjáröflun en í sumar fara 13 vaskir skátar
frá Mosverjum til Liechtenstein á skátamót. Einnig stendur til að ganga í hús og selja
eitthvað góðgæti fyrir Eurovision og eru bæjarbúar hvattir til að taka vel á móti þeim.
- Hvað er að frétta?22
Á 111 ára fæðingardegi Halldórs K.
Laxness kepptu tólf nemendur í 6. bekk
Lágafellsskóla til úrslita í upplestrar-
keppni sem kennd er við nóbelsskáldið.
Allir keppendur lásu texta og ljóð úr
verkum Laxness sem þau völdu sjálf í
samráði við umsjónarkennara sinn.
Sigurvegarinn, Ástríður Magnúsdóttir
úr 6-KI, fékk til eignar Laxnessbikarinn og
bók eftir skáldið en allir fengu viðurkenn-
ingarskjal og blóm fyrir þátttökuna. Mjög
erfitt var fyrir dómarana að gera upp á
milli keppenda.
Á hópmyndinni eru frá vinstri: Birta,
Rakel, Brynja, Andri, Eva, Ástríður,
Fanney, Hlynur, Sólveig, Guðrún, Vigdís
og Ólafur ásamt Jóhönnu skólastjóra.
Vorboðar, kór eldri borgara í Mosfellsbæ
hefur starfað af krafti í vetur og komið fram
við hin ýmsu tækifæri undir styrkri stjórn
Páls Helgasonar sem var útnefndur bæjar-
listamaður Mosfellsbæjar 2012. Vorboðar
eru að sjálfsögðu stoltir af sínum ástsæla
stjórnanda.
Vorboðar verða með kóramót þann 26.
maí að Gullhömrum í Grafarholti ásamt
fjórum öðrum kórum. Hinir kórarnir eru
Hljómur frá Akranesi, Eldey úr Reykja-
nesbæ, Gaflarakórinn úr Hafnarfirði og
Hörpukórinn frá Selfossi. Þessir fimm kórar
skiptast á að halda kóramótið ár hvert.
Vorboðar bjóða Mosfellingum og öðrum
landsmönnum á tónleikana í Gullhömrum
og hefjast þeir kl. 16 og aðgangur er ókeyp-
is.
Vorboðar vilja koma á framfæri þakklæti
til Mosfellsbæjar, FaMos (Félag aldraðra í
Mosfellsbæ) og allra þeirra fjölmörgu fyr-
irtækja og einstaklinga fyrir ómetanlegan
stuðning sem gerir Vorboðum kleift að
halda þetta glæsilega kóramót.
Prestar safnaðarins kalla öll verðandi fermingarbörn Lágafells-
sóknar sem fermd verða vorið 2014 og foreldra/forráðamenn
þeirra til kvöldguðsþjónustu í Lágafellsskóla sunnudaginn 2. júní
kl. 20. Eftir guðsþjónustuna fer fram skráning fermingabarna
ársins 2014 og „kirkjukaffi“.
Það er orðin viss hefð í starfi okkar hér í söfnuðinum að við
köllum fermingabörn næsta árs til skráninga á vorin. Þetta er
góður tími fyrir okkur í kirkjunni, að hitta börn og foreldra, taka
upp kynnin og eiga góða stund saman í guðsþjónustunni.
Margir eru nú þegar farnir að spyrjast fyrir um hvort hægt sé að
ákveða fermingardaginn og er gefinn kostur á því við skráningu.
Fermingardagar vorsins 2014 verða:
23. og 30. mars
6. 13. og 17. apríl
Kynningarbréf verður sent öllum foreldrum og forráðamönnum
barna í Lágafellssókn þegar nær dregur 2. júní.
Prestar Lágafellssóknar.
Skráning fermingarbarna vorsins 2014
KvöLdguðsÞjónusta
í LágaFELLssKóLaSkátarnir hreinsa Varmána
LaxneSSinn 2013
Hópurinn sem
keppti til úrslita
Ástríður
magnúsdóttir
Vorboðar starfa af krafti
vorboðinn syngur í kjarna fyrir
kærleiksvini sína af skÁlatúni
...stútfullt af hrísgrjónum, steiktu
grænmeti, kjúkling, salsa og osta-
sósu og gratínerað í ofni. Borið fram
með salati, nachos, guacamole,
sýrðum rjóma og salsasósu.
KjúKlinga-burrito
HáHolt 13 - s. 5666-222
1.790 Kr.
Grillum fisk
í sumar