Mosfellingur - 16.01.2009, Síða 4
- Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar4
KIRKJUSTARFIÐ
Sunnudagurinn 18. janúar
Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl.
11. Sunnudagaskólinn í Lágafell-
skirkju kl. 13.
Í sunnudagaskólanum mun
STOPP leikhópurinn fl ytja okkur
leikritið Ósýnilegi vinurinn.
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.
Sunnudagurinn 25. janúar
Guðsþjónusta í Mosfellskirkju
Sunnudagskólinn í safnaðarheim-
ilinu kl. 13. (Vegna viðgerða í
Lágafellskirkju mun sunnudaga-
skólinn vera í safnaðarheimilnu
þennan sunnudag).
Sunnudagurinn 1. febrúar
Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl.
11. Sunnudagaskólinn í Lágafell-
skirkju kl. 13.
LEIKSÝNING
Í LÁGAFELLS KIRKJU
SUNNDUDAGINN 18. JANÚAR
Lágafellskirkja býður börnum og
fjölskyldum þeirra að sjá leikritið
Ósýnilegi vinurinn eftir sögu Kari
Vinje. Verkið fjallar um vináttu
og hvernig hægt sé að fyrirgefa
og sættast. Leikritið hentar vel
börnum á leikskólaaldri og í 1.-4.
bekk grunnskóla en að sjálfsögðu
eru allir velkomnir og sýningin er
ókeypis.
www.lagafellskirkja.is
Helgihald næstu vikur:
Guðbjörg ráðin
skólameistari
Mennta mála ráðherra hefur
skipað Guðbjörgu Aðalbergs dótt-
ur í embætti skólameist ara nýs
framhaldsskóla í Mosfellsbæ
sem tekinn verður í notkun í
haust. Guðbjörg hefur hafi ð störf
en tólf umsækjend ur voru um
stöðuna.
Guðbjörg hefur gengt starfi
skólameistara Fjölbrautaskóla
Snæfellinga síðustu fjögur árin
og vann að stofnun hans á
Grundarfi rði.
Guðbjörg segist fi nna fyrir
miklum áhuga og metnaði og
sér fram á skemmtilega vinnu
og von ast eftir góðum stuðn-
ingi allra sem að koma. „Miklu
máli skiptir að fá hugmyndir og
ábendingar frá sem stærstum
hópi og æskilegt er að ungling-
ar í efstu bekkjum grunnskóla
komi að þessu á einhvern hátt,
þá verður þetta þeirra skóli,“
segir Guðbjörg.
SÓKN Í SÓKN
– LIFANDI SAMFÉLAG
Vertu með í sókninni!
Mosfellingur ræðir við Guðjón formann Harðar um atburði liðinna vikna
27 hross fallin og 17 á
batavegi eftir salmonellu
Skömmu fyrir jól kom upp sal mon-
ellusýking í 44 hrossum í Norðurgröf
við Esjurætur. Talið er að hrossin
hafi smitast af því að drekka úr tjörn
í girðingunni. Meirihluti hrossanna
liggur í valn um eftir þennan hræði-
lega atburð eða 27 alls. Þau 17 hross
sem eftir eru virðast vera á góðum
batavegi, að sögn Gunnars Arnar
Guðmundssonar héraðsdýralæknis.
„Við gerum okkur von um að hrossin
nái sér að fullu,“ segir Gunnar Örn.
Hrossin hafa verið fl utt úr hest-
húsahverfi nu og verður fylgst grannt
með þeim áfram. Búið er að moka
út úr og sótthreinsa öll þau hús sem
sýkt hross hafa komið nálægt.
Fjárhags- og tilfi nningalegt tjón
Mosfellingur hitti Guðjón Magn ús-
son formann Hestamanna félagsins
Harðar sem var að vonum sleginn
eftir atburði síðustu vikna.
„Hestarnir eru allir úr hesthúsa-
hverfi nu hér í Mosfellsbæ og vissu-
lega er þetta mikið áfall. Hestarnir
voru að megninu til góðir reiðhestar
og því mjög sárt tilfi nningalega séð
fyrir þá sem áttu í hlut. Hestarnir 44
voru í eigu margra aðila hér í Mos-
fellsbæ og í fl estum tilfellum einu
hestarnir sem viðkomandi átti.“
„Fólk er oftar en ekki búið að
leita lengi áður en það fi nnur góðan
hest sem hentar því vel. Þannig var
það með fl est þessara hrossa, þetta
voru topp hestar. Svoleiðis hest ar
er sjaldnast metnir til fjár. Þetta
eru góðir félagar og fólk tengjst
þeim sterkum böndum. Þetta er því
bæði fjárhagslegt tjón og ekki síður
tilfi nningalegt,“ segir Guðjón.
Eymd á milli jóla og nýjárs
„Hér í hesthúsahverfi nu ríkti mikil
eymd á milli jóla og nýjárs þar sem
eigendur og aðrir reyndu að sinna
hrossum sínum eins og þeir gátu.
Hest arnir voru sárkvaldir og lágu
veinandi í stíunum. Þetta tók því
verulega á fólk.”
Menn tóku veiku hestana sína á
hús, sem Guðjón segir vera mistök
eftir á að hyggja. „Hestamenn eru
skíthræddir um að erlendar veirur
og sýkingar berist til landsins sem
eru mun skæðari smitsjúkdómar en
salmonella. Það var því illskárra þeg-
ar kom í ljós að um salmonellu var
að ræða. Annars væri ekki að spyrja
að leikslokum enda smitast slíkar
pestir fl jótt á milli.“
„Við hér á Íslandi erum með hross-
in okkar mjög óvarin og því einungis
tímaspursmál hvenær tilfelli af er-
lendri pest berist hingað til lands.“
Guðjón vonar að þessi hræði-
legi atburður verði til þessa að yfi r-
völd komi í gagnið einhversskonar
aðgerðaplani verði vart við fjölda-
sýkingu hér á landi. „Við verðum að
læra af þessu,“ segir Guðjón
Samúðarkveðjur
Fólk er mismikið tryggt fyrir
svona tjónum en fl estir eru þó með
ábyrgð artryggingu sem borgar það
tjón sem hesturinn veldur hjá þriðja
aðila. Fyrir hjón með sitthvorn hest-
inn getur svona tjón numið um 2
milljónum.
Guðjón vill að lokum koma á
framfæri samúðarkveðjum til þeirra
sem misst hafa hrossin sín og von-
ast til að menn haldi áfram í hesta-
mennskunni. Einnig þakklæti til
þeirra sem sýndu samhug og tóku
þátt í að sinna hestunum og hjálpa
til síðustu vikurnar.
Guðjón Magnússon formaður Harðar ásamt
Rut dóttur sinni og graðhestinum Lunda frá
Vakurstöðum en þau eru öll við hestaheilsu.
Félagsstarf hestamannafélagsins hefur
legið niðri og þurfti m.a. að fresta árlegri
gamlársreið Harðar.
MOSFELLINGUR
Að þessu sinni
gerði Mosfellingur
verðsamanburð á
þjóðarrétt okkar
Íslendinga.
Pylsa og 0,5 L Kók í plasti.
Snæland 370 kr. (tilboð)
Olís 410 kr.
(pylsa 220, kók 190)
Grillnesti 440 kr. (tilboð)
N-1 440 kr.
(pylsa 250, kók 190)