Mosfellingur - 16.01.2009, Blaðsíða 16

Mosfellingur - 16.01.2009, Blaðsíða 16
Súpa sem klikkar ekki Í eldhúsinu Arna Björk Birgisdóttir myndlistar- kennari í Lágafellsskóla gefur okkur uppskrift að þessu sinni. „Þetta er uppskrift sem ég fékk hjá honum Steina Árna í Keflavík, súpa sem klikkar aldrei og er mjög vinsæl á mínu heimili.“ Súpa, uppskrift fyrir 4-5 1 laukur 3 hvítlauksrif 2 gulrætur 1 græn paprika Smjör til steikingar 1 dós ókryddaðir tómatar 3/4 dl. vatn 3 kjúklingateningar svartur pipar 2 mtsk. maple sýróp 1 peli rjómi Tabasco sósa -slatti Fiskur - Gott að nota t.d.silung, lúðu, skötu- sel, rækjur eða humar Allt grænmeti sett í pott ásamt smjöri, steikt og soðið í góða stund, 1 peli af rjóma bætt út í og fiski. ÖRNU BJÖRK Ásdís Kalman sýnir í Listasalnum Ásdís Kal- man hefur opnað sýninguna Lúmen í Listasal Mosfells- bæjar. Ásdís hefur verið starf andi myndlistar- maður frá útskrift úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1988. Á sýningunni í listasalnum getur að líta olíumálverk og eins og nafn sýningarinnar, Lúmen, bendir til er ljós og birta viðfangs- efni Ásdísar á þessari sýningu. „Það er mér sönn ánægja að fá að sýna í Mosfellsbæ þar sem móðir mín, Þórdís Ingibergsdótt- ir Kalman, fæddist hér fyrir 85 árum,“ segir Ásdís. Amma og afi Ásdísar, þau Ingibergur Runólfsson og Sigríður Olga Kristjánsdóttir, unnu bæði í ullarverksmiðjunni að Álafossi. - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar16 Heyrst hefur... ...að Samúel Örn Erlingsson sé farinn að kenna dönsku í Lágafellsskóla. ...að Alli Richter hafi orðið faðir í vikunni. Lítill Richter mættur. ...að Jóndi og Stefí séu trúlofuð. ...að Greta Salóme hafi sigrað jólalagasamkeppni Rásar 2. ...að hin umdeilda tengibraut í Helgafellshverfi sé einum metra of há og verið sé að rífa hluta af henni upp og lækka í rétta hæð. ...að Vignir í Hlégarði sé kominn í útrás og sé farinn að senda þorramat til New York. ...að fjögurra manna fjölskylda úr Teigahverfi hafi unnið tæpar 20 milljónir í Lottóinu um síðustu helgi. Miðinn var keyptur á N1. ...að Páll Ágúst og Brynja séu að fara gifta sig um næstu helgi. ...að Valsstelpur hafi gefið Guðnýju "okkar" Óðinsdóttur Aftureldingar- rúmföt áður en hún hélt utan í atvinnumennsku til Svíþjóðar. ...að nýja fiskbúðin ætli að bjóða uppá Sushi fyrir helgar. ...að björgunarsveitarmenn úr Kyndli séu ekki enn búnir að ná rollunni niður úr Úlfarsfellinu. ...að nýr meðlimur sé kominn í hljómsveitina Bob Gillan og Ztrandverðirnir og leiki hann á hljómborð og syngi. ...að hið árlega sjávarréttahlaðborð Lionsfélaga verði haldið 13. feb. ...að illa hafi gengið að kveikja í þrettándabrennunni þar sem rignt hafi eldi og brennisteini. ...að Afturelding taki á móti Gróttu í handboltanum í kvöld. Leikurinn hefst kl. 19:30. ...að einhverjir miðar séu enn eftir í matinn á þorrablóti Aftureldingar. ...að Gýmis-húsið sé að verða klárt. ...að Jumboys hafi sigrað Aftur- eldingu2 í utandeildinni með níu mörkum. ...að búið sé að loka á athugasemdir á vefsíðu Kjósarhrepps. Málið tengist færslum vegna innbrots á hreppsskriftsofur hreppsins. ...að Snorri Ásmunds listamaður úr Kvosinni ætli að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins. Íslandsmótið í réttstöðulyftu var haldið á Selfossi þann 22. nóvember. Birg ir Birgisson sigraði í 67,5 kg. fl okki með 140 kg. og Viktor Sveinsson sigraði í 75 kg. fl okki með 187,5 kg. Viktor stefnir á að slá Íslandsmet ung- linga í apríl sem er nú 200 kg. Viktor fékk verðlaun sem efnilegasti nýliðinn. Stofnað hefur verið félagið Kraft í Mosfellsbæ en mikill uppgangur er í kraftlyftingum í bænum. Félagið hefur óskað eftir aðilid að UMSK og ÍSÍ. 8.469 Mosfellingar og 196 Kjósverjar Mosfellingar eru nú orðnir 8.469 en voru í fyrra 8.147, sem þýðir tæp 4% fjölgun íbúa en það er helmingi minni fjölgun en árið þar áður. Karlarnir eru aðeins fl eiri eða 4.444 en konurnar eru 4.025. Fjölmennasta gata Mosfellsbæj- ar er Klapparhlíð en þar eru skráðir 525 íbúar. Í Tröllateigi eru 375 og í Þrastarhöfða eru 323. Íbúar í Mosfellsdal eru 198. Kjósverjum fjölgaði um fi mm á síðasta ári og eru nú orðnir 196. Íslenskunámskeið í Mosfellsbæ Tómstundaskóli Mosfellsbæjar hefur staðið fyrir íslenskunámskeiðum í Mosfellsbæ undan farin ár. Námskeiðin hafa verið vel sótt og hefur kennsl- an farið fram í Varmárskóla. Kenndar eru 50 kennslustundir í senn tvisvar sinnum í viku. Það eru margir útlendingar sem búa í Mosfellsbæ og eru mjög fegnir að þurfa ekki að sækja námskeið út fyrir bæinn. Margir koma aftur og aftur á námskeið. Námskeiðin eru borguð niður af Mosfellsbæ og kosta aðeins 6000 kr. fyrir bæjarbúa. Kennari er Jóna Dís Bragadóttir sem hefur mikla reynslu af því að kenna útlendingum íslensku. Næstu námskeið eru að hefjast og er hægt að skrá sig á tomstund@tomstund.is. Mosfellsbær öðlast Kraft

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.