Mosfellingur - 16.01.2009, Page 14
r
Notkun öryggistækja
Það er áberandi hve
mörg börn hafa sést hjólandi í
skammdeginu án öryggishjálma
og endurskinsmerkja í vetur.
Veðrið fyrir og eftir áramót hefur
verið þannig að hjólandi fólki
hefur fjölgað á götunum og
kallar það á verulega slysahættu
ef ekki er varlega farið. Því er
ástæða til að leggja áherslu á
notkun öryggistækja, hjálma og
endurskinsmerkja. Það hlýtur að
vera á ábyrgð foreldra að börn
þeirra noti slík tæki. Um er að ræða
ódýra hluti sem ættu að ganga fyrir
þegar kemur að útgjöldum heimila.
Höfum við lögreglumenn komið á
slysavettvang þar sem hjálmar hafa
bjargað lífi og heilsu fólks en einnig
komið að þar sem slík fyrirhyggja
var ekki sýnd með sorglegum
afleiðingum.
Tíðari innbrot
Innbrot hafa verið tíðari í
Mosfellsbæ og nágrenni í desember
en áður. Hafa þau flest verið í
bifreiðar og fyrirtæki. Er því rétt að
árétta það við fólk að skilja ekki við
verðmæti á glámbekk í bifreiðum
því slíkt freistar óprúttinna manna
sem stunda þessa iðju. Þá er rétt
að árétta það við verktaka að
ganga vel frá verkfærageymslum
sem hafa gjarnan orðið fyrir barðinu
á þjófum.
Eignaspjöll
Nokkuð hefur verið um
eignaspjöll í bænum og eru sum
þeirra veruleg. Má ætla að þar sé
ungt fólk að verki. Fólk sem virðist
eiga við vandamál og vanlíðan að
etja sem fær útrás með þessum
hætti. Þar er undalegt innræti sem
fær fólk til slíkra verka og valda
fólki verulegu fjarhagslegu tjóni.
Sýnum fyrirhyggju
Fyrirhyggja kemur gjarnan
í veg fyrir að neikvæðir atburðir
gerist, slys sem innbrot.
Borgararnir geta því haft áhrif á
þróun mála og átt þátt í því að
skapa öruggara samfélag með
því að huga að framangreindum
hlutum. Samvinna borgara og
lögreglu er lykilatriði í mótun
öruggs samfélags. Óskum við því
eftir ábendingum sem gætu orðið
til aukins öryggis eða uppljóstran
mála sem koma til okkar til
rannsóknar.
Sími lögreglustöðvarinnar í
Mosfellsbæ er 444-1190.
Ef um neyðartilfelli er að ræða
ber að hringja í 112.
Einar Ásbjörnsson
aðalvarðstjóri
Fréttir úr dagbók
lögreglunnar
LÖGREGLUFRÉTTIR
- Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar 14
HÁHOLTI 12
�������
Munið eftir bílalúgunni!
FJÖLSKYLDU TILBOÐ
Í SNÆLANDI
2.380,-
Prjónanámskeið
Tómstundaskólans
Tómstundaskóli Mosfellsbæj-
ar býður upp á nýjung fyrir
áhugasamt prjónafólk. Um er að
ræða frítt prjónanámskeið sem
hefst þriðjudaginn 20. janúar kl.
19. Námskeiðið verður haldið á
Netkaffi Bókasafnsins í Kjarna.
Mosfellsbakarí ætlar að bjóða
upp á bakkelsi með kaffi nu og
Álafossbúðin bíður 10% afslátt
af garni. Leiðbeinandi verður
Inga H. Guðmundsdóttir.
Nauðsynlegt er að skrá þátt-
töku á heimasíðu skólans www.
tomstundaskolinn.is
Óli Stef troðfyllti
Ólafur Stefáns-
son, íþrótta-
maður ársins,
troðfyllti
Hlégarð með
fyrirlestri um
kennslu- og
uppeldismál
en hann hygg-
ur á frekara starf í þeim efnum,
m.a. á vefnum www.kennsla.is.
Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar
stóð fyrir viðburðinum sem hitti
svona skemmtilega í mark en
um 400 manns hlýddu á silfur-
drenginn í Hlégarði.
Ólafur vakti athygli í viðtölum í kring
um ólympíuleikana síðasta sumar
fyrir heimspeki sína og lífssýn sem
einkennist öðru fremur af jákvæðri
hugsun. Hann er einn fræknasti
íþróttamaður sem Íslendingar hafa
eignast og er talinn einn sterkasti
handknattleikmaður í heimi í dag.
Eitt af því sem gerir hann að þeim
afreksmanni sem hann er er sú
mikla áhersla sem hann hefur um
árabil lagt á alhliða þjálfun, andlega
jafnt sem líkamlega. Hann trúir
því að skapandi lífssýn og jákvæð
hugsun sé forsenda raunverulegs
árangurs og hefur sýnt það og
sannað með afrekum sínum að hann
lifir samkvæmt því.
Það sem færri vita er að Ólafur er
mikill áhugamaður um kennslu- og
uppeldismál. Hann hefur viðað að
sér þekkingu um árabil, bæði upp á
eigin spýtur, sem og í háskólanámi
í London sem hann hefur stundað
samhliða starfi sínu.
Ólafur Stefánsson handknattleiksmaður býður upp á
samræður við foreldra og áhugafólk um lífið og uppeldismál
á vegum Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar fimmtudagskvöldið
8. janúar 2009 kl. 20.30 í Hlégarði.
„Foreldrar sem eitt
sinn voru líka börn. Mun
segja þeim frá nýjum
möguleikum hvað varðar
tenginga-hugsun, húmor,
visualization, minni,
sköpunargáfu o.fl. Ef þau
eru sniðug þá koma þau
með minnisbækur með
sér og liti.”
„Ég reyni að koma
með eitthvað sem hreyfir
við fólki, gerir það að
þátttakendum, gefur
því orku og fyllingu. Ég
vonast til að læra meira
af þátttakendunum en
þeir af mér.”
Ólafur Stefánsson á opnu húsi í Mosfellsbæ
JÁKVÆÐNI Í DAGLEGU LÍFI
Virðing, jákvæðni, framsækni, umhyggja.
Oddgeir Árnason lét af störfum nú um ármótin. Oddgeir hefur starfað
fyrir Mosfellsbæ í 18 ár en þar áður starfaði hann sem garðyrkjustjóri á
Akranesi. Samstarfsfólk Oddgeirs safnaðist saman á dögum á bæjarskrifsto-
fum Mosfellsbæjar og kvaddi hann formlega. Oddgeiri voru þökkuð störf í
þágu bæjarins en hann á heiður að því að gera Mosfellsbæ eins grænan og
hann er nú. Aspirnar meðfram Vesturlandsveginum eru dæmi um það.
Oddgeir Árnason hættir sem garðyrkjustjóri
Oddgeir lætur af störfum