Mosfellingur - 16.12.2010, Síða 6
Unnið að gerð
lýðræðisstefnu
Fyrsti fundur nýrrar lýðræðis-
nefndar Mosfellsbæjar var haldinn
á dögunum. Í nefndinni eiga sæti
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri,
Anna Sigríður Guðnadóttir, fulltrúi
S-lista, Herdís Sigurjónsdóttir,
fulltrúi D-lista, Jón Jósef Bjarnason,
fulltrúi M-lista og Karl Tómas-
son, fulltrúi V-lista. Starfsmenn
nefndarinnar eru Sigríður Dögg
Auðunsdóttir, forstöðumaður
kynningarmála, Sigríður Indriða-
dóttir mannauðsstjóri og Stefán
Ómar Jónsson bæjarritari. Hlutverk
nefndarinnar er að vinna drög að
nýrri lýðræðisstefnu Mosfellsbæjar
og reglum um íbúakosningar í Mos-
fellsbæ og verklag um gagnsæi og
aðgang að gögnum. Með virku íbúa-
lýðræði er hægt að ná betri sátt um
markmið, stefnu og framkvæmdir á
vegum sveitarfélagsins með því að
virkja íbúa í ákvarðanatökuferlinu
og hvetja þá til að taka þátt í mótun
nærumhverfis síns í samvinnu við
sveitarfélagið.
Eldri borgarar
Upplýsingar og skráningar í ferðir og námskeið eru á skrifstofu félagsstarfsins Eirhömrum kl. 13-16, símar 586-8014 og í gsm. 692-0814
Handverksstofurnar á Eirhömrum eru opnar
eins og venjulega alla virka daga kl. 13-16.
Minni á glernámskeið á fimmtudögum kl. 10-12. Næsta
námskeið byrjar 13. janúar. Nánari upplýsingar hjá Elvu í
síma 698-0090 og einnig í síma 586-8014 kl. 13-16.
Bestu jóla og nýjárskveðjur
frá Félagsstarfi eldri borgara í Mosfellsbæ
- Fréttir úr bæjarlífinu6
Páll Guðjónsson opnar sýningu í Listasalnum í tilefni sextugsafmælis síns sem er í dag
Áhugamál og ástríða frá barnæsku
Laugardaginn 11. desember opnaði Páll Guðjónsson sýninguna,
Form – Fegurð - Flæði, í Listasal Mosfellsbæjar. Páll sýnir þar 34
ljósmyndir sem hann hefur tekið síðastliðin tvö ár. Páll hefur sinnt
ýmsum störfum í gegnum tíðina, er menntaður viðskiptafræðingur
og var sveitarstjóri og síðar bæjarstjóri Mosfellsbæjar 1982 – 1992.
Páll starfar nú sem framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu.
„Sýningin er m.a. sett upp til að marka sextugsafmæli okkar hjóna
á þessu ári,“ segir Páll sem er fæddur þann 16. desember 1950 og er
því sextugur í dag. „Ljósmyndun hefur verið áhugamál mitt og ástríða
allt frá bernskuárum. Eins og oft hendir þá hvarf þetta áhugamál
dálítið baksviðs þegar háskólanám, stofnun fjölskyldu og erilsamir
dagar í krefjandi störfum tóku allan tíma og orku,“ segir Páll.
Eignaðist fyrstu myndavélina 12 ára
Fyrir sex árum tók ég upp þráðinn að nýju og ákvað að láta á það
reyna hvort ég gæti tekist af alvöru á við skapandi ljósmyndun. Staf-
ræn ljósmyndun var þá að komast á skrið, og ég ákvað að tileinka mér
strax þessa nýju tækni. Ástríðan og löngunin til að fanga augnablikið,
túlka og deila með öðrum er jafn sterk og fersk og þegar ég eignaðist
fyrstu myndavélina mína 12 ára gamall, þannig að því fer fjarri að
þessi sýning í tilefni af sextugsafmæli mínu marki einhvern enda-
punkt.“ Sýning Páls í Listasalnum stendur til 3. janúar 2011.Hjónin Páll Guðjónsson og Ingibjörg Flygenring við opnun sýningarinnar.
Tilnefningar til
Mosfellings ársins
Val á Mosfellingi ársins 2010 stend-
ur nú yfir og gefst lesendum kostur
á að tilnefna þá sem þeim finnst
verðugir að bera nafnbótina. Allir
Mosfellingar koma til greina í valinu
og er öllum frjálst að senda inn
tilnefningar með tölvupósti á net-
fangið mosfellingur@mosfellingur.
is. Er þetta í sjötta sinn sem þetta val
fer fram á vegum Mosfellings. Íbúar
eru hvattir til að taka virkan þátt og
senda inn tilnefningar. Gjarnan má
fylgja með stuttur rökstuðningur á
tilnefningunni og hvað viðkomandi
hefur lagt til samfélagsins. Áður
hafa hlotið nafnbótina: Sigsteinn
Pálsson, Hjalti Úrsus Árnason,
Jóhann Ingi Guðbergsson, Albert
Rútsson og Embla Ágústsdóttir.
Útnefningin verður kunngjörð í
fyrsta blaði næsta árs sem kemur út
þann 13. janúar.
Í tilefni af endurútgáfu bókanna um Mola litla flugustrák og
þess að Ragnar Lár, teiknari og höfundur bókanna, hefði orðið 75
ára var haldið útgáfuteiti í Brúarlandi, æskuheimili listamannsins
á sunnudaginn var. Ættingjar Ragnars og vinir fjölmenntu, fengu
sér Mola kaffi og áttu saman góðan dag.
Bækurnar komu fyrst út á árunum 1968-1975
Bækurnar um Mola litla komu fyrst út á árunum 1968-1975 og
eru mörgum minnisstæðar. Þær fjalla um ævintýri Mola sem er
lítill og fremur ógætinn flugustrákur, besta vin hans Jóa járnsmið
og illmennið Köngul kónguló sem í sífellu gerir þeim félögum
skráveifu. Nafnið á Mola er til komið af því hve hrifinn hann er
að sykurmolum. Við sömu athöfn afhenti Kristín Pálsdóttir, ekkja
Ragnars, Mosfellsbæ listaverk eftir Ragnar til eignar og varðveislu,
meðal þeirra eru upprunalegar myndir af Mola litla flugustrák.
Bækurnar um Mola litla endurútgefnar
listaverk eftir
ragnar lár afhent
Karl Tómasson forseti bæjarstjórnar, Kristín Pálsdóttir, ekkja Ragnars
Lár og Höskuldur Sigurðarson útgefandi nýju Molabókanna.
Karl veitti listaverkunum viðtöku fyrir hönd Mosfellsbæjar og sagði
við tækifærið það vera sér mikinn heiður, Ragnar var móðubróðir Karls.
Freyja Ragnarsdóttir, Kristín ekkja Ragnars, Eiður B. Eiríksson barnabarn hennar.
Guðrún Tómadóttir og Steinunn
Bjarman þáðu Mola kaffi
Gerður Lárusdóttir flutti skemmtilega
tölu um bróður sinn Ragnar Lár. Á
myndinni er hún með syni sínum Stein-
ari Tómassyni og langömmubarni.