Mosfellingur - 16.12.2010, Síða 8
Jólaævintýri Þorra
og Þuru í leikhúsinu
Þann 22. desember kl. 16 munu
álfabörnin Þorri og Þura mæta í
Bæjarleikhúsið, Mosfellsbæ. Þorri
álfastrákur var ekki sáttur með það
að fá mandarínu í skóinn frá jóla-
sveininum, og í kjölfarið týndi hann
jólaskapinu sínu. Upp hefst mikil og
skemmtileg leit að jólaskapinu hans
Þorra, en með hjálp góðrar vinkonu
er allt hægt og að lokum finna Þorri
og Þura hinn sanna jólaanda. Sýn-
ingin sem hentar yngstu kynslóð-
inni best en líka allri fjölskyldinni,
er full af skemmtilegum söngvum,
bæði frumsömdum og þekktum
jólalögum. Miðapantanir eru í síma
5667788.
- Öflugasti auglýsinga- og fréttamiðill Mosfellsbæjar8
Aðalfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar var haldinn í sal félagsins að Háholti
mánudaginn 6. desember. Fundurinn var fjölmennur og fjörugar umræður m.a. um
bæjarmálin. Ný stjórn var kosinn en hana skipa: Formaður: Björg Reehaug Jensdóttir.
Meðstjórnendur: Friðrik Ólafsson, Óðinn Pétur Vigfússon , Snorri Hreggviðsson. Gísli
Geirsson. Varamenn: Marteinn Magnússon, Guðni Þorbjörnsson
Björg Reehaug fer fyrir nýrri stjórn Framsóknarfélgsins
Björg kosin formaður
Ný stjórn Framsóknar-
félags Mosfellsbæjar
ásamt varamönnum.
Hið árlega aðventukvöld Samfylkingarfélags Mosfellsbæjar var haldið föstudaginn 3.
desember í Þverholtinu. Góð mæting var og sköpuð notaleg stemming með skreytingum
og jólaglöggi. Frostpinnarnir sungu nokkur jólalög og höfundar lásu úr nýútkomnum
bókum sínum.
Árlegt aðventukvöld Samfylkingarfélags Mosfellsbæjar
Frostpinnar og rithöf
undar á aðventukvöldi
Rithöfundarnir; Bjarki Bjarnason, Halla
Gunnarsdóttir, Yrsa Sigurðardóttir
ásamt Valdimar Leó formanni Sf-Mos.
Jólamarkaðurinn í Kvosinni opinn allar helgar í desember
Jólastemning í
Álafosskvosinni
Fjölmargir hafa lagt leið sína á jólamark-
aðinn og notið jólastemningar í Álafoss-
kvosinni. Margt góðra muna, góðgæti
og veitingar. Margir gerðu góð kaup,
jólamaraðurinn hefur verið s.l. helgar við
Kaffihúsið á Álafossi, síðasti markaður
verður helgina 18. og 19. desember frá kl.
12-17 báða dagana.