Morgunblaðið - 12.09.2018, Side 8

Morgunblaðið - 12.09.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2018 Uppivöðslusamir leiðtogar meðeinræðistilburði eru teknir í bakaríið af Kristni Gunnarssyni: „Undanfarin ár hafa einræð- istilburðir valdhafa orðið æ augljósari með hverju árinu. Kjörnir valdhafar hafa dregið til sín aukið vald og brot- ið hefðir og reglur sem ætlaðar eru í lýðræðisríkjum til þess að takmarka svigrúm valdsækinna forystu- manna.“ Kristinn nefnir fjóra og verður lýsingin óhugnanlegri með hverju nafni. Fyrstur er Erdogan forseti Tryklands:    Hann hefur sniðgengið reglursem takmörkuðu þann tíma sem æðsti valdhafi landsins gat verið við völd og breytti þeim svo sér í hag og í leiðinni jók hann eigin völd með nýrri stjórn- arskrá.“ Þá annar „af sama sauðahúsi“, Pútín, sem að sögn Kristins notfærir sér vald sitt til þess að „tryggja sér „rétt“ úrslit úr almennum kosningum meðal annars með því að banna hættu- legum andstæðingum að bjóða sig fram.“    Þriðji er Donald Trump. „Óspará að beita opinberu valdi sínu til þess að ná sér niðri á þeim sem andmæla honum eða standa í vegi fyrir áformum hans.“ Segir Krist- inn Guardian í leiðara „líkja Trump við mafíuforingja og leið- toga glæpagengis“.    Ekki batnar óöldin með þeimfjórða, valdsæknum einræð- isherra í Reykhólahreppi: „Ný- kjörinn oddviti og starfandi sveit- arstjóri setur upp á sitt eindæmi reglur sem loka leiðum fjölmiðla að upplýsingum. Það er í senn verið að leyna andstöðu íbúa við nýjustu áformin í tafaleiknum og refsa fjölmiðlum í anda Trumps Soprano.“ Kristinn Gunnarsson Voðamenni víða STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Vegagerðin hefur óskað eftir til- boðum í endurbyggingu á 4,8 kíló- metra kafla á Borgarfjarðarvegi. Kaflinn er frá Ytri Hvannagilsá í Njarðvík og um Njarðvíkurskriður að Landsenda á Borgarfirði eystra. Heimamenn hafa í mörg ár kallað eftir endurbótum á þessum hættu- lega malarvegi, sem liggur í brattri fjallshlíð. Vegurinn komst í fréttirnar í febr- úar á þessu ári þegar hópur Borg- firðinga kom saman í Njarðvíkur- skriðum og steypti um þriggja metra langan vegarkafla. Þetta gerðu þeir í mótmælaskyni, en íbú- arnir sögðust vera orðnir lang- þreyttir á ástandi vegamála á svæð- inu Vegurinn verður endurbyggður að mestu leyti í vegstæði núverandi vegar með nokkrum lagfæringum. Á hluta útboðskaflans (1,9 km) liggur vegurinn um Njarðvíkurskriður, þar sem gerðar verða talsverðar lagfær- ingar á legu vegarins með umtals- verðum skeringum og fyllingum. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. september 2019, að því er fram kem- ur á heimasíðu Vegagerðarinnar. Tilboðsfrestur rennur út þriðjudag- inn 25. september nk. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Heimtuðu úrbætur Heimamenn steyptu fyrstu metrana sjálfir í byrjun árs. Bjóða út veginn um Njarðvíkurskriður Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurð- aði í gær að vísa frá dómi CLN-mál- inu svokallaða, en málið er einnig þekkt sem Chesterfield-málið. Úr- skurðinn kváðu upp héraðsdómar- arnir Arngrímur Ísberg dómsfor- maður og Sigrún Guðmundsdóttir og Sigurbjörn Einarsson viðskipta- fræðingur. Héraðssaksóknari hefur kært þá niðurstöðu til Landsréttar. Forsaga málsins er sú að með ákæru 22. apríl 2014 höfðaði sérstak- ur saksóknari sakamál á hendur ákærðu Hreiðari Má Sigurðssyni, Sigurði Einarssyni og Magnúsi Guð- mundssyni. Málið var eitt af hrunmálunum svonefndu og voru þeir Hreiðar Már og Sigurður ákærðir fyrir umboðs- svik með því að hafa lánað 508 millj- ónir evra frá ágúst til október 2008 til tveggja félaga sem keyptu láns- hæfistengd skuldabréf af Deutsche Bank sem tengd voru skuldatrygg- ingarálagi Kaupþings. Magnúsi, sem var framkvæmdastjóri Kaupthing Bank í Lúxemborg, var gefin að sök hlutdeild í brotum Hreiðars Más og Sigurðar. Allir hinna ákærðu voru sýknaðir í héraðsdómi og málinu var áfrýjað til Hæstaréttar. Áður en málið var tek- ið fyrir í Hæstarétti komu fram upp- lýsingar um að Deutsche Bank hefði greitt þrotabúi Kaupþings og Chest- erfield og PMG stóran hluta upp- hæðarinnar sem upphaflega var kært vegna, eða 425 milljónir evra. Ekki voru ástæður þessara greiðslna skýrðar, sem var ástæða þess að Hæstiréttur taldi að saksóknari þyrfti að leita skýringa á því hvers vegna þessar greiðslur voru inntar af hendi, þar sem það gæti haft þýðingu við mat á því hvort um umboðssvik hefði verið að ræða. Því ómerkti Hæstiréttur sýknudóm Héraðsdóms og málinu var vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar á ný. Rannsókn ófullnægjandi Ákæruvaldið hóf rannsókn að nýju en svörin sem veitt voru virðast hafa verið í skötulíki, bæði frá Kaupþingi og lögmanni sem starfaði fyrir Deutsche Bank, og því segir í nið- urlagi úrskurðar Héraðsdóms frá í gær: „Samkvæmt því sem nú hefur verið rakið er það niðurstaða dóms- ins að ákæruvaldið hafi ekki rann- sakað sem skyldi þau atriði er Hæstiréttur taldi að rannsaka þyrfti. Málið er því í sama búningi fyrir dóminum og það var eftir ómerking- ardóminn. Af þessu leiðir að það er ekki tækt til efnismeðferðar og er óhjákvæmilegt að vísa því frá dómi.“ Ríkissjóður mun greiða þóknanir verjenda ákærðu. CLN-málinu var vísað frá dómi öðru sinni Lilja Alfreðsdóttir, mennta- ogmenningarmálaráðherra, mun í dag, miðvikudag, halda blaða- mannafund og kynna aðgerðir stjórnvalda sem miða að því að styrkja íslenska tungu. Til grundvallar aðgerðunum er, segir í tilkynningu, eindreg- inn vilji stjórnvalda að tryggja framgang og framtíð íslensk- unnar, meðal annars með stuðn- ingi við íslenska bókaútgáfu, einkarekna fjölmiðla, máltækni og menntun. Kynnir aðgerðir stjórnvalda til efl- ingar íslenskunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.