Morgunblaðið - 12.09.2018, Síða 27

Morgunblaðið - 12.09.2018, Síða 27
lever og eftir það komu hlutverkin í myndum og þáttum á færibandi. Það má segja að hann hafi fyrst slegið í gegn í Svíþjóð fyrir alvöru árið 2007 með sjónvarpsþáttunum Upp till kamp, í leikstjórn Mikaels Marcim- ains, en þeir hafa aldrei verið sýndir á Íslandi. Sverrir hefur leikið í um 20 kvik- myndum og fjölda sjónvarpsþátta. Nú síðast lék hann Björn Borg í sam- nefndri mynd um tennisstjörnuna frægu, en á Íslandi er hann kannski þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Pontus í Wallander-þáttunum. Í haust verða tvær myndir með honum frumsýndar; The Girl in the Spider’s Web þar sem hann leikur á móti Claire Foy og norska myndin Phoenix með Mariu Bonnevie sem verður frumsýnd á kvikmyndahátíð- inni í Toronto nú í september. Sverrir hlaut fálkaorðuna síðast- liðið vor í tengslum við heimsókn for- seta Íslands til Svíþjóðar. Hann hef- ur fjórum sinnum verið tilnefndur og tvisvar sinnum hlotið Guldbaggen, helstu kvikmyndaverðlaun Svía; árið 2014 fyrir aukahlutverk í Monicu Z, kvikmynd um djasssöngkonuna Monicu Zetterlund, og árið 2015 fyrir aðalhlutverk í myndinni Flug- parken. Sverrir hlaut einnig IMDb Starmeter Award á kvikmynda- hátíðinni í Toronto 2017. Móðir Sverris, Bryndís Sverris- dóttir, segir hann vera músíkalskan, með skemmtilegan, dálítið svartan húmor „… og svo er hann bara svo mikill Íslendingur, þótt hann hafi bú- ið í Svíþjóð frá 11 ára aldri – eða kannski einmitt þess vegna. Hann talar góða íslensku og hefur lagt sig fram um að kenna dætrum sínum málið svo að þær geti talað við ætt- ingja sína á Íslandi. Þau koma öll til Íslands á hverju sumri og það gerir fjölskylda Gunnhildar, systur hans, líka. Þau búa í Gautaborg. Og nú er- um við búin að kaupa okkur sumar- hús þar, öll saman, miðja vegu milli Stokkhólms og Gautaborgar, þar sem fjölskyldan getur notið sam- vista“. Fjölskylda Unnusta Sverris er Amy Zeilon, f. 16.8. 1991, fyrirsæta og grafískur hönnuður í Stokkhólmi. Sverrir á tvær dætur með Emelie Uggla, f. 27.10. 1979, verslunar- manni í Stokkhólmi. Hún er dóttir Magnus Uggla, eins af þekktustu tónlistarmönnum Svíþjóðar. Dætur Sverris og Emelie eru Salka Sverr- isdóttir Uggla, f. 1.8. 2004, og Sísí Sverrisdóttir Uggla, f. 31.3. 2006. Dóttir Sverris og Josefin Ljungman, leikkonu í Stokkhólmi, er Blanka Sverrisdóttir Ljungman, f. 29.10. 2012. Systir Sverris er Gunnhildur Mar- grét, f. 18.9. 1973, doktor í háls-, nef- og eyrnalækningum í Gautaborg, en maður hennar er Arnar Hartmanns- son og börn þeirra Kristín, f. 1998, og Ívar, f. 2002. Foreldrar Sverris eru Bryndís Sverrisdóttir, f. 6.2. 1953, safnafræð- ingur, og Guðni Albert Jóhannesson, f. 27.11. 1951, orkumálastjóri. Þau eru búsett á Seltjarnarnesi. Úr frændgarði Sverris Guðnasonar Sverrir Guðnason Margrét Finnbjörnsdóttir húsfr. og söngkona á Ísafirði Kristján Tryggvason klæðskeri og kaupmaður á Ísafirði Greta Lind Kristjánsdóttir húsfreyja í Rvík Bryndís Sverrisdóttir safnafræðingur á Seltjarnarnesi Sverrir Hermannsson alþm., ráðherra og bankastjóri í Rvík Salome Rannveig Gunnarsdóttir húsfreyja á Ísafirði Hermann Hermannsson sjóm. í Ögurvík og á Ísafirði Einar Guðnason skipstjóri og hafnarvörður á Suðureyri Gróa Sigurlilja Guðnadóttir kjólameistari í Rvík Hlöðver Kjartansson lögmaður Guðrún Pálmfríður Guðnadóttir húsfr. á Flateyri Sigríður Jóhannes­ dóttir fv. alþm. Ester Bíbí Ásgeirsdóttir tónlistarm. (í Singapore Sling og Kolrössu) Þóra Kristín Ásgeirsdóttir blaðamaður Arnbjörn Jóhannesson íslenskukennari í MR Kristján Sverrisson forstjóri Heyrnar­ og talmeinastöðvar Íslands Ragnhildur Sverrisdóttir almannatengill Björgólfs Thors Björgólfssonar Aðalbjörg Þórðardóttir myndlistarmaður í Rvík Þórdís Elva Þorvaldsdóttir rithöfundur Þórður Guðmundur Hermannsson skipstjóri í Rvík Gísli Halldór Halldórsson fv. bæjarstjóri á Ísafirði, nú í Árborg Gunnar Halldórsson afmagnsverkfr. í Rvíkr Salóme Rannveig Gunnarsdóttir leikkona Halldór Hermannsson framkvæmdastjóri á Ísafirði Hjörtur Gíslason framkvæmdastjóri Ögurvíkur Gísli Jón Hermannsson skipstjóri og framkvæmdastjóri Ögurvíkur Magnús Erlingsson sóknarpr. á Ísafirði Sigríður Hermannsdóttir húsfr. í Rvík Ásgeir Steingrímsson trompetleikari Karitas Hermannsdóttir húsfr. á Húsavík Sigríður Magnúsdóttir húsfreyja í Rvík Ásmundur Jónsson sjómaður í Rvík Aldís Jóna Ásmundsdóttir húsfreyja í Rvík Jóhannes Guðnason iðnrekandi í Rvík Albertína Jóhannesdóttir húsfreyja í Botni Guðni Albert Þorleifsson b. í Botni í Súgandafirði Guðni Albert Jóhannesson orkumálastjóri á Seltjarnarnesi ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2018 Fallegar vörur fyrir falleg heimili Opið virka daga kl. 10-18 Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi Ludvig Emil Kaaber fæddist íKolding í Danmörku 12.9.1878, sonur Simons F. Kaab- er sem á ættir að rekja til Eberharts Kobers frá Esslingen í Þýskalandi, og Nönnu Emilie Hellrung. Ludvig giftist Astrid Thomsen 1907 og áttu þau átta börn saman en hún lést 1928. Seinni kona hans var Helga Eggertsdóttir Jochumssonar úr Þingeyjarsýslu. Þau áttu fjögur börn og eru þrjú þeirra á lífi í dag, Edda, Sigrún og Edwin. Ludvig stundaði verslunarnám í De Brockske Handelskole, var síðan kallaður í danska herinn en þar varð hann læknaritari vegna fallegrar rit- handar og hlaut undirforingjatign. Er Ludvig var 24 ára sá hann aug- lýsingu í dönsku dagblaði um stöðu frá Thomsen magasíni. Hann kom til Reykjavíkur á sumardaginn fyrsta árið 1902, starfaði hjá Thomsen um skeið og leigði hjá Þorláki Johnson kaupmanni í Lækjargötu 10. Þar kynntist hann Ólafi, syni hans, en þeir stofnuðu árið 1906 heildverzl- unina frægu, Ó Johnson & Kaaber hf., sem átti eftir að brenna og mala kaffibaunir ofan í 70% Íslendinga um áratuga skeið. Ludvig varð bankastjóri Lands- bankans 1918, þá fertugur. Hann tók við starfinu og seldi sinn helmings- hlut í heildsölunni. Hann hafði lagt grunn að stofnun Eimskipafélagsins, 1913, og síðan Ísaga, Brunabóta- félagsins og Sjóvár. Ludvig kom að stofnun Kaup- mannasamtakanna, Verzlunarskól- ans, Guðspekifélagsins, Frímúrara og Rotary, var einn stofnenda „Det danske selskab“ sem síðar varð Dansk-íslenska félagið og síðan hluti af Norræna félaginu. Hann var ræð- ismaður fyrir Holland og Belgíu og aðalræðismaður fyrir Finnland og var sæmdur fjölda innlendra og er- lendra heiðursmerkja. Ludvig var bankastjóri til ársins 1940, hafði þá hlotið íslenskan ríkis- borgararétt, enda þótt Ísland væri enn hluti af danska konungsríkinu. Ludvig lést 12.8. 1941. Merkir Íslendingar Ludvig Emil Kaaber 103 ára Guðný J. Þorbjörnsdóttir 90 ára Júlíana Kristín Jónsdóttir 85 ára Aðalbjörg Björnsdóttir Brynhildur Jónsdóttir Jean Jensen Lára K. Þorsteinsdóttir Már Bjarnason Sigfríð Björgólfsdóttir 80 ára Esther K. Ragnarsdóttir Magnús Jónsson Stefán Bragi Bragason Þórarinn A. Gunnlaugsson 75 ára Emilia Podgórska Ólöf Guðjónsdóttir Sigurður Pálmason Sigurlaug Guðmundsdóttir 70 ára Einar S. Sigurðsson Erna Valgerður Jónsdóttir Eva Þórarinsdóttir Helgi J. Guðmundsson Kolbrún Guðmundsdóttir Margrét Gústafsdóttir Ólöf Oddsdóttir 60 ára Adam Michal Strociak Ann-Lisette Winter Dagbjört Ólafsdóttir Edda Valsdóttir Elínborg Óskarsdóttir Guðjón Baldursson Jakobína Þórðardóttir Jakob Vagn Guðmundsson Jóhanna Björk Briem Luka Lúkas Kostic Pétur Þór Gunnarsson Rúnar Arthur Ingvarsson Sigrún Traustadóttir Sigurður K. Pétursson Sigurjón Jónsson Tadeusz Mozdzen Vigfús Davíðsson Þórunn Ísfeld Jónsdóttir 50 ára Arnar Þorsteinsson Bylgja Ingimarsdóttir Friðrik Steinsson Galin Marinov Bonev Guðlaug María Óskarsdóttir Hólmfríður Sigurðardóttir Hörður Ýmir Einarsson Iwona Beata Frach Ívar Esa Henttinen Jón Daníel Jónsson Kristín S. Guðmannsdóttir Kristmann Rúnar Larsson Ólafur Kristjánsson Silja Ólöf Birgisdóttir Unnar Rafn Ingvarsson Vigdís Sjöfn Ólafsdóttir 40 ára Bryndís Pétursdóttir Einar Páll Mímisson Gerður Marísdóttir Gestur Gunnar Björnsson Gíslína Petra Þórarinsdóttir Hanna Dís Hafsteinsdóttir Helena Sif Zophoníasdóttir Hjördís Ósk Sigtryggsdóttir Inga Rut Reynisdóttir Kristín Valgerður Gallagher Lilja Björg Gunnarsdóttir Pétur Árnason Sigurður Bjarni Gíslason 30 ára Agnar Knut Breiðfjörð Anna Margrét Óladóttir Aron Örn Viðarsson Margrét Ósk Hjartardóttir Stefania Crotti Til hamingju með daginn 30 ára Guðmundur er tómstunda- og félags- málafræðingur og for- stöðumaður Félagsmið- stöðvarinnar Selið. Maki: Nanna Kaaber Árnadóttir, f. 1987, íþróttafræðingur hjá World Class. Synir: Árni Bergur, f. 2013, og Kjartan Kári, f. 2016. Foreldrar: Edda Kjartans- dóttir, f. 1958, og Sigurjón Gunnarsson, f. 1956. Guðmundur Ari Sigurjónsson 30 ára Bjarki ólst upp á Ísafirði, býr í Reykjavík, hefur keppt í MMA, blönduðum bardaga- íþróttum og er háseti á Stefni ÍS. Bróðir: Birgir Björn Pét- ursson, f. 1986, íþrótta- kennari í Reykjavík. Foreldrar: Pétur Birgis- son, f. 1959, skipstjóri á Stefni, og María Aðal- bjarnardóttir, f. 1962, eig- andi Gamla bakarísins á Ísafirði. Þau búa á Ísafirði. Bjarki Pétursson 30 ára Axel ólst upp á Hellu á Rangárvöllum, starfaði hjá sveitar- félaginu Rangárþingi ytra um nokkurt skeið en hef- ur búið í Reykjavík frá hausti 2015 og vinnur á lager hjá Vodafone. Maki: Alda Ýr Ingadóttir, f. 1995, starfar við dag- vistun aldraðra. Móðir: Björk Gísladóttir, f. 1967, starfsmaður við glerverksmiðjuna Sam- verk á Hellu. Axel Þór Kristjónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.