Morgunblaðið - 12.09.2018, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 12.09.2018, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2018 R GUNA GÓÐAR I Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Donald Trump Bandaríkjaforseti gerði of lítið úr efnahagsbatanum í forsetatíð Baracks Obama og hefur stórlega ýkt eigin árangur í efnahags- málum frá því að hann tók við emb- ættinu í janúar 2017. Aðalráðgjafi Trumps í efnahagsmálum, Kevin Hassett, hefur þurft að leiðrétta síð- ustu ýkjur forsetans. „Hagvaxtartalan (4,2%) er hærri en atvinnuleysishlutfallið (3,9%) í fyrsta skipti í rúm 100 ár!“ fullyrti Trump á Twitter á mánudaginn var og skírskotaði til hagvaxtarins á öðr- um fjórðungi ársins. Fullyrðingin er röng vegna þess að þetta gerðist síð- ast fyrir tólf árum, að sögn The Wall Street Journal. Hassett sagði að ranga fullyrðingu forsetans mætti líklega rekja til þess að embættismenn hans hefðu veitt honum rangar upplýsingar. „Ég get ekki farið út í sögu kenninga um hvernig mistök verða,“ hefur The Wall Street Journal eftir Hassett. „Hið rétta er að hlutfallið er það hæsta í tíu ár og einhverjir hafa á ein- hverjum tímapunkti líklega bætt núlli við þegar þeir létu forsetanum upp- lýsingarnar í té og þeir hefðu ekki átt að gera það.“ Trump skírskotaði til þess að hag- vöxturinn á öðrum fjórðungi ársins mældist 4,2% en atvinnuleysið var 3,9% á síðasta mánuði tímabilsins. The Wall Street Journal segir að það hafi gerst alls 64 sinnum að at- vinnuleysið hafi mælst minna en hag- vöxturinn á þeim 70 árum sem liðin eru frá því að byrjað var að birta at- vinnuleysistölurnar. Síðast þegar þetta gerðist var árið 2006, áður gerð- ist það tvisvar á fyrstu árum aldar- innar og sjö sinnum á síðasta áratug aldarinnar sem leið, að sögn The Wall Street Journal. Ekki öflugasti efnahagur í sögu Bandaríkjanna Donald Trump hefur oft fullyrt síð- ustu mánuði að efnahagur Bandaríkj- anna hafi aldrei verið öflugri en nú í allri sögu landsins. Alls hefur hann sagt þetta í fjörutíu yfirlýsingum og ræðum á síðustu þremur mánuðum, eða að jafnaði annan hvern dag, að sögn The Washington Post. Í sumum tilvikanna endurtók hann fullyrð- inguna allt að fjórum sinnum, til að mynda í ræðu sem hann hélt á fundi með stuðningsmönnum sínum í Vestur-Virginíu og var sýnd í Fox News-sjónvarpinu. The Washington Post segir að for- setinn hafi endurtekið fullyrðinguna svo oft að hann sé nú farinn að vitna í sjálfan sig: „Sagt er núna að efna- hagurinn sé öflugri en nokkru sinni fyrr í sögu landsins“. Þótt þátta- stjórnendur Fox News hafi oft farið lofsamlegum orðum um frammistöðu Trumps í efnahagsmálum hafi þeir ekki treyst sér til að fullyrða að efna- hagur Bandaríkjanna hafi aldrei ver- ið öflugri en nú. Að sögn The Washington Post mældist atvinnuleysið minnst 2,5% árið 1953 og var minna en nú árið 2000 þegar það var 3,8%. Atvinnu- þátttaka karlmanna á aldrinum 25 til 54 ára hafi lítið breyst og sé enn 88,9%. Hærri tölur í forsetatíð Obama Að sögn The Washington Post hét Trump því fyrir forsetakosningarnar 2016 að auka hagvöxtinn í 4% á ári. Þótt hann hafi náð þessu marki á öðr- um fjórðungi ársins þegar hagvöxtur- inn var 4,2% var hann enn meiri á tveimur fjórðungum ársins 2014 þeg- ar Obama var forseti, þ.e. 5,1 og 4,9%, og á síðasta fjórðungi ársins 2011 var hagvöxturinn 4,7%. Samdráttur varð hins vegar á fyrstu fjórðungum ár- anna 2011 og 2014 og hagvöxturinn var aðeins 1,5 til 1,8 prósent á síðasta árinu í forsetatíð Obama. Á öllu síðasta ári var hagvöxturinn 2,3% og talið er að Trump geti verið ánægður ef vöxturinn verður 3% í ár, á öðru árinu í forsetatíð hans. Hag- vöxturinn var mun meiri á árunum 1997 (4,5%), 1998 (4,5%) og 1999 (4,7%) þegar demókratinn Bill Clin- ton var forseti. Vöxturinn var enn meiri á sjötta og sjöunda áratug ald- arinnar sem leið þegar hann var allt að 8,7%. Þótt hagvöxturinn sé ekki eins mikill nú og á þessum tímabilum er hann „fjári góður“ í sögulegu sam- hengi, að því er The Washington Post hefur eftir bandaríska hagfræði- prófessornum Douglas Irwin sem hefur skrifað bók um sögu viðskipta- stefnu bandarískra stjórnvalda. Hann segir að rauntekjur á hvern landsmann hafi aldrei verið meiri en nú. Talið er að skattalækkanir repú- blikana á Bandaríkjaþingi hafi stuðl- að að auknum hagvexti, að minnsta kosti tímabundið. Stjórn Trumps hef- ur fækkað íþyngjandi reglugerðum í atvinnulífinu og það hefur einnig eflt efnahaginn, að sögn Douglas Holtz- Eakins, fyrrverandi yfirmanns fjár- lagaskrifstofu Bandaríkjaþings. Holtz-Eakin bendir einnig á að störfum hefur fjölgað að meðaltali um 211.000 á mánuði í Bandaríkjunum það sem af er árinu og hefur ekki fjölgað meira frá árinu 2015, þegar Obama var forseti. Trump stærði sig af því í stefnu- ræðu sinni í lok janúar sl. að störfum hefði fjölgað um 2,1 milljón í Banda- ríkjunum á síðasta ári, en þeim hafði þó fjölgað meira á hverju ári síðustu sex árin í forsetatíð Obama, eða frá 2010. Báðum að þakka Sjaldgæft er að repúblikani hafi tekið við forsetaembættinu á hag- vaxtarskeiði sem hófst í forsetatíð demókrata, eða öfugt. T.a.m. var samdráttur þegar repúblikaninn Ronald Reagan tók við embættinu í janúar 1981 af demókratanum Jimmy Carter. Samdráttur var þegar repú- blikaninn George Bush eldri varð for- seti 1989 og einnig þegar kjörtímabili hans lauk 1993. Forsetatíð repúblik- anans George Bush yngri lauk með samdrætti þegar Obama tók við af honum í janúar 2009. Fréttaveitan AFP hefur eftir hag- fræðingum að enginn vafi leiki á því að hagvaxtarskeiðið, sem stendur núna, hafi hafist í forsetatíð Obama en hvorki hann né Trump geti eignað sér allan heiðurinn af efnahagsbat- anum síðustu misseri. Hann sé Obama og Trump báðum að þakka. Trump ýkir efnahagsárangur sinn  Aðalráðgjafi forsetans í efnahagsmálum leiðréttir ranga fullyrðingu hans  Trump gerir of mikið úr efnahagsbatanum og of lítið úr þætti Obama  Báðir taldir eiga heiðurinn af hagvextinum Hagvöxtur í Bandaríkjunum frá 2011 til 2018 Breytingar á hagvexti eftir ársfjórðungum á tímabilinu 5,0% 4,5% 4,0% 3,5% 3,0% 2,5% 2,0% 1,5% 1,0% 0,5% 0,0% -0,5% -1,0% 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 -1,0% 2,9% -0,1% 4,7% 3,2% 1,7% 0,5% 0,5% 3,6% 0,5% 3,2% 3,2% -1,0% 5,1% 4,9% 1,9% 3,3% 3,3% 1,0% 0,4% 1,5% 2,3% 1,9% 1,8% 1,8% 3,0% 2,8% 2,3% 2,2% 4,2% 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018Ár: Ársfj.: Heimild: Statista Donald Trump Bandaríkjaforseti. Barack Obama, fyrrverandi forseti. Rúmri milljón manna á austur- strönd Bandaríkjanna hefur verið sagt að forða sér frá heimkynnum sínum vegna fellibylsins Flórens sem gert er ráð fyrir að komi þar að landi annað kvöld að staðartíma, eða aðfaranótt föstudags að ís- lenskum tíma. Ennfremur var lýst yfir neyðarástandi í höfuðborginni Washington vegna úrhellis og flóða sem talið er að fylgi fellibylnum. Yfirlýsingin tók gildi í gær. Fellibylurinn var yfir Atlantshafi í gær og vindhraðinn mældist allt að 60 m/s, að sögn fréttaveitunnar AFP. Allt að milljón manna var sagt að forða sér frá strandbyggðum í Suður-Karólínu. Skólum í 26 af 46 sýslum ríkisins var einnig lokað. Í Norður-Karólínu var fyrir- skipuð rýming húsa á strand- svæðum í Dare-sýslu og á eyjunum Outer Banks, sem eru vinsælir áfangastaðir ferðamanna. Lýst var yfir neyðarástandi í Virginíu og um 245.000 manns var sagt að forða sér. 250 km Flórens Ísak Helena 06.00Sunnudagur 00.00 Laugard. Fellibyljir í Atlantshafi Heimildir: Fellibyljastofnun Bandaríkjanna ATLANTSHAF KÚBA BANDA- R ÍK IN DÓMINÍSKA LÝÐVELDIÐ Mexíkó- flói HAÍTÍ Að íslenskum tíma Í gær kl. 12.00 Sunnudagur 06.00 Fellibylur Hitabeltis- stormur Braut bylsins skv. spá Frönsku Antillaeyjar Rúmri milljón manns skipað að forða sér  Lýst yfir neyðarástandi í Washington

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.