Morgunblaðið - 12.09.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.09.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2018 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum. verið með tvöfaldan búnað; annan í yfirferð í landi, hinn um borð. Nokkrar samverkandi ástæður eru sagðar fyrir því að þeim hefur fækkað sem róa með beitta línu. Ef tekið er dæmi af línubát með þrjá menn í áhöfn, 48 bala og 400 króka á bala má ætla að sex manns starfi í landi við beitningu. Atvinna í landi var ein af meginástæðunum fyrir því að kerfið var tekið upp, en misjafnlega hefur gengið að ráða fólk til að handbeita upp á gamla mátann. Greitt er fast verð fyrir balann, en það er löngu liðin tíð að beitningafólk sé upp á hlut. Reikningsdæmi útgerðanna Nú er staðan hins vegar þannig að kostnaður við beitningu í landi hefur aukist, en síðustu 3-4 ár hef- ur meðalverð fyrir fiskinn lækkað með styrkingu krónunnar. Það er síðan reikningsdæmi hvor kost- urinn er betri; ívilnunin eða kostn- aður við að setja beitningavél um borð, fjölga um einn í áhöfn og hætta vinnu í skúrnum í landi. Við það að vélbeita um borð fær- ast laun beitningafólks til sjó- manna, en reglur um hlutaskipti sjómanna breytast með aukinni vinnu. Hærri laun um borð leiða til þess að auðveldara verður að fá mannskap. Háðar staðsetningu Verulegt óhagræði er í því að með landbeitningu eru útgerðir háðar því að hafa beitningu og bát á svipuðum slóðum. Dæmi eru um að bátar af Snæfellsnesi hafi sótt frá Bolungarvík eða Skagaströnd, en það hefur kallað á 6-900 kíló- metra daglegan akstur fram og til baka með balana. „Þú flytur ekki beitningaaðstöðuna og fólkið svo glatt,“ sagði útgerðarmaður sem rætt var við. Hann segir að verulega meiri afli fáist stærstan hluta ársins með vél- beitta línu. Fiskurinn sem veiðist með ferskari beitu sé líka betri og það skili sér í hærra verði á fisk- mörkuðum. Ekki veiti af miðað við sterkt gengi krónunnar. Á nokkurra ára tímabili hafði Bolungarvík verulegan ávinning af línuívilnun. Ekki aðeins fengust auknar heimildir í þorski, heldur einnig steinbít og ýsu svo dæmi séu tekin. Nú er handbeitning á línu á undanhaldi í Bolungarvík eins og sjá má á meðfylgjandi korti. Hins vegar sést einnig á kortinu að á Rifi hefur hlutur línuívilnunar auk- ist síðustu ár, en þar varð breyting á með nýju fiskveiðiári er tveir bátar af þremur hættu í þessu kerfi. Færri handbeita línuna í landi  5,3% af heildarafla fara í sérstaka potta  Línuívilnun á undanhaldi  Aukinn kostnaður í landi Allir sem ákærðir eru í gagnavers- málinu svonefnda, þar sem stolið var 600 bitcoin-leitarvélum í lok síðasta árs og upphafi þessa, neita sök. Mál sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum höfðaði þeim á hendur var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness í gær. Tveir hinna ákærðu komu fyrir dóm- ara í gær og neituðu sök. Í gær var sömuleiðis aflétt farbanni yfir einum ákærða. Hinir fimm ákærðu, þar á meðal Sindri Þór Stefánsson sem strauk til útlanda úr fangelsinu á Sogni í vor, komu fyrir dómara og neituðu jafn- framt sök. Þá höfnuðu þeir allir bóta- kröfu. Sindri er áfram í farbanni. Alda Hrönn Jóhannsdóttir sak- sóknari lagði fram fyrir dóm í gær skjöl í fimm liðum. Þar á meðal var sakavottorð eins ákærða og skýrsla um símanotkun ákærðu. Ákæra í málinu varðar innbrot í fjögur gagnaver, á Ásbrú í Reykja- nesbæ og í Borgarnesi, þrjár nætur í desember og janúar og tilraunir til tveggja innbrota í viðbót. Sagt er að yfir 2.000 tölvuhlutum hafi verið stol- ið í innbrotunum. Lögmenn fá frest til að skila greinargerð í málinu til 4. október næstkomandi. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flugsýn Brotist var m.a. inn í gagnaver á Ásbrú í Reykjanesbæ. Sökum er neitað í gagnaversmálinu  Stolið var 600 bitcoin-leitarvélum Landssamband smábátaeigenda hefur lagt áherslu á mikilvægi línuívilnunar, enda séu línuveiðar umhverfisvænar og línuveiddur fiskur dagróðrabáta í hæsta gæðaflokki. Örn Pálsson, fram- kvæmdastjóri LS, segir að þeir vilji að allur línuveiddur fiskur dagróðrabáta innan 30 brúttó- lesta njóti ívilnunar, hvort sem línan er beitt í landi eða á sjó. Umhverfis- vænar veiðar VILJA TRYGGJA ÍVILNUN Morgunblaðið/Sigurður Bogi Upp á gamla mátann Unnið við línubeitningu í Bolungarvík fyrir fjórum árum, en víða hefur minni áhersla verið lögð á landbeitningu undanfarið. Línuívilnanir síðustu þrjú fiskveiðiár 10 stærstu heimahafnirnar 2015-16 til 2017-18 (kg úr sjó) Samtals allar heimahafnir Eftir fiskveiðiárum, allar fisktegundir (tonn) 2015-2016 2016-2017 2017-2018 5.173 4.262 4.043 Línuívilnanir á þorskafla eftir fiskveiðiárum Allar fisktegundir samtals 2015-18Heimahöfn 2015-16 2016-17 2017-18 Bolungarvík 591.791 350.395 279.629 2.478.094 Rif 281.885 311.932 367.815 1.538.662 Suðureyri 208.985 181.558 159.295 1.179.856 Grindavík 243.767 169.589 113.037 706.170 Ólafsvík 175.822 136.604 125.149 656.538 Ólafsfjörður 163.546 136.132 96.396 568.778 Hellissandur 186.917 101.802 72.437 543.453 Hafnarfjörður 156.939 136.812 125.719 543.163 Þingeyri 71.643 70.216 88.753 464.535 Hólmavík 74.691 66.446 82.101 359.605 Heimild: Fiskistofa FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Færri útgerðir hafa nýtt sér línu- ívilnun á síðustu misserum en áður og ákvað sjávarútvegsráðherra í sumar að minnka það magn sem fer í línuívilnun á nýbyrjuðu fisk- veiðiári. Við þá ákvörðun var tekið mið af nýtingu ívilnunar á fiskveiði- árinu sem lauk 31. ágúst. Samkvæmt lögum um stjórn fisk- veiða eru 5,3% af heildarafla í hverri fisktegund dregin af leyfileg- um heildarafla til að mæta áföllum, til stuðnings byggðarlögum, til línu- ívilnunar, til strandveiða, til rækju- og skelbóta, frístundaveiða og til annarra tímabundinna ráðstafana til að auka byggðafestu. Nánast óbreytt í öðrum pottum Litlar breytingar eru í ár í öðr- um flokkum en línuívilnun. Á þessu fiskveiðiári er alls 25.456 þorsk- ígildistonnum varið í fyrrnefnda potta, en til samanburðar var á fiskveiðiárinu 2017/2018 úthlutað alls 26.362 þorskígildistonnum í þessa potta. Í línuívilnun fara nú 3.855 þorskígildistonn, en fisk- veiðiárið á undan var 4.568 tonnum ráðstafað í línuívilnun. Í línuívilnun felst að dagróðra- bátar á línuveiðum geta landað afla umfram aflamark sé línan beitt í landi, en Alþingi samþykkti að taka upp línuívilnun með breytingum á lögum um stjórn fiskveiða í desem- ber 2003. Ýmis skilyrði þarf að uppfylla til að geta nýtt þessa leið og sérstök reglugerð gildir um línu- ívilnun. Samverkandi ástæður Hafi línan verið handbeitt í landi má nú landa 20% umfram þann afla sem reiknast til kvóta sem með öðrum orðum þýðir að 100 tonna kvóti verður að 120 tonnum. 15% ívilnun fæst með því að taka línuna á stokkum í land, yfirfara þá og síð- an er notuð trekt eða beitningavél til að beita um borð. Menn geta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.