Morgunblaðið - 12.09.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 12.09.2018, Qupperneq 36
N o r ð u r - A t l a n t s h a f G r æ n l a n d s h a f Norðurhe imskautsbaugur Vopnafjörður Þórshöfn Egilsstaðir GRÆNLA Ilulis Kulu N Narsars GRÆNLAND Nerlerit Inaat FÆREYJAR Tórshavn . Ke Í S L A N D kureyri Grímsey Ísafjörður YKJAVÍK ND sat suk uuk uaq 50 m ín. 40 m ín . Þegar upp er staðið hefur þú meiri orku og rýmri tíma til að gera það sem þig lystir. airicelandconnect.is Nýttu tímann og fljúgðu á vit ævintýranna Innanlandsflug frá 7.680 kr. aðra leiðina Simon Halink, sagnfræðingur og nýdoktor við Háskóla Íslands, fjallar um ímynd Snorra Sturluson- ar í fyrirlestri hjá Miðaldastofu HÍ á morgun kl. 16.30. Snorri hefur löngum verið umdeildur maður. Þegar í miðaldaheimildum er hon- um lýst sem glöggum fræðimanni og snjöllum stjórnmálamanni en einnig sem föðurlandssvikara og strengjabrúðu Noregskonungs. Var Snorri Sturluson hetja eða skúrkur? MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 255. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr. Marek Rodák, markvörður Slóvaka, tryggði liði sínu sigur, 3:2, þegar U21 árs landslið Íslands og Slóvaka mættust í gær í undankeppni EM. Leikurinn var bráðfjörugur og þrjú mörk voru m.a. skoruð á síðustu fimm mínútum hans. Vonir Íslands um að komast í umspil um EM sæti dofnuðu við tapið. Veik von er fyrir hendi. »4 Markvörður innsiglaði sigur með marki ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir verður á meðal mót- herja Þórs/KA á Þórsvellinum á Ak- ureyri í dag en hún leikur þar með þýska meistaraliðinu Wolfsburg gegn Akureyrarliðinu í 32 liða úr- slitum Meist- aradeildar Evrópu. Þetta er fyrri við- ureign liðanna. Arna Sif Ás- grímsdóttir, leikmaður Þórs/KA, segir að mikil stemning og eft- irvænting sé á Ak- ureyri, enda eins- dæmi að fá eitt besta félagslið heims í heimsókn. »1 Sara með Wolfsburg á Þórsvellinum í dag Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Ástarvika stendur nú yfir í Bolung- arvík og lýkur á laugardag. Tólf ár eru síðan hátíðin var fyrst haldin en hún er orðin föst í sessi í bæjarlífi Bolungarvíkur. Hátíðin var sett á mánudag og byrjaði formlega með sunnudagshádegisverði á Víkurskál- anum. Um kvöldið var síðan kveikt á rauðum blysum sem lýstu upp um- hverfið. Ástfangið fólk faðmaðist og kysstist af þessu tilefni, auk þess sem allir sem vildu gátu fengið ást- arlás til þess að innsigla ást sína. Byrjað er að festa lása við grind- verkið á varnargarðinum, að sögn Helga Hjálmtýssonar, markaðs- og kynningafulltrúa hjá Bolungarvík- urkaupstað. Hann segir hátíðina hafa farið vel af stað og að þónokkrir séu búnir að festa lás á varnargarð- inn. „Þetta er fyrst og fremst kær- leiksrík menningarhátíð og miðar að því að einblína á ástina í samfélaginu og að það er ástin sem heldur þessu saman,“ segir Helgi. Þá eru „ástar- vikubörn“, börn sem fæðast níu mánuðum eftir ástarvikuna, gjarnan höfð í heiðurssessi eða foreldrum þeirra fagnað á hátíðinni. Upphaf- lega var hátíðin einkaframtak, að frumkvæði Soffíu Vagnsdóttur. Bærinn hefur nú tekið við skipu- lagningu hátíðarinnar. Ástin fái verðskuldaða athygli „Þetta er skemmtilegt því að við einbeitum okkur lítið að ástinni í samfélaginu. Það er ekki mikið fjallað um ást – kannski mest um sambönd í blöðunum. En við erum að einblína á þennan almenna kær- leik og þessa ást sem er að baki börnunum,“ segir Helgi. Á hátíðinni verður ýmis afþreying í boði, s.s. fyrirlestrar og kynning á tíu ástarsögum á vegum bókasafns- ins. Heilsutengdur fyrirlestur verð- ur í kvöld í umsjón Tómasar Guð- mundssonar og verður einnig boðið upp á jógatíma fyrir bæjarbúa. „Við höfum líka verið með pálínuboð þar sem fólk kemur með sinn mat og borðar saman, það er haldið í Ein- arshúsi,“ segir Helgi. Aðspurður hvort fólk úr nærliggj- andi bæjarfélögum leggi leið sína á ástarhátíðina segir hann: „Eitthvert fólk kemur úr öðrum bæjarfélögum að kíkja á þetta. Þegar Bolungar- víkurgöngin komu til dæmis, þá fór fólk að koma meira og við urðum vör við mikla aukningu í sundlauginni hjá okkur.“ Ljósmynd/Hafþór Gunnarsson Ástarvika Kveikt var á blysum á mánudagskvöld og vakti það fögnuð meðal bæjarbúa. Hátíðinni lýkur á sunnudag. Ástin blómstrar alla vikuna í Bolungarvík  Ýmis afþreying verður í boði í ástarvikunni fyrir vestan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.