Morgunblaðið - 02.03.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 2018
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Rock Star umgjarðir
kr. 11.900,-
Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af
gæðagleraugum fyrir krakka á góðu verði
– og þú færð frábæra þjónustu.
ICQC 2018-20
Jean-Claude Arnault var fyrir rétti
í Stokkhólmi í gær dæmdur í
tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun.
Saksóknari hafði farið fram á
þriggja ára fangelsi yfir honum
fyrir að hafa brotið á sömu konunni
í þrígang síðla árs 2011. Arnault er
sakfelldur fyrir að hafa aðfaranótt
6. október 2011 þvingað konuna til
munnmaka áður en hann á að hafa
nauðgað henni. Á blaðamannafundi
í gær sagði dómarinn, Gudrun An-
temar, að lýsingar konunnar á at-
burðum væri trúverðugar og alls
sex vitni hefðu staðfest upplifun
hennar, þar á meðal læknir hennar
og sálfræðingur. Arnault var ekki
sakfelldur fyrir að hafa aðfaranótt
3. desember 2011 komið fram vilja
sínum við sömu konu meðan hún
var sofandi, þar sem ekki reyndist
hægt að sanna að konan hefði verið
sofandi og þar með „bjargarlaus“
samkvæmt skilgreiningu þágild-
andi laga.
Arnault hefur ávallt haldið fram
sakleysi sínu. Á lokadegi réttar-
haldanna í síðustu viku var hann
hnepptur í gæsluvarðhald þar sem
talsverðar líkur þóttu á því að
Arnault, sem er franskur ríkisborg-
ari, gæti flúið land og farið huldu
höfði í krafti auðæfa sinna. Björn
Hurtig, lögmaður Arnault, til-
kynnti strax við það tækifæri að
væntanlegum dómi yrði áfrýjað.
Arnault verður áfram í gæslu-
varðhaldi.
Arnault er kvæntur Katarinu
Frostenson sem fyrr á árinu vék
sæti úr Sænsku akademíunni (SA) í
kjölfar harðvítugra deilna innan
SA um það hvernig taka skyldi á
ásökunum þess efnis að Arnault
hefði áratugum saman beitt konur
kynferðislegu ofbeldi. Í nóvember
2017 stigu 18 konur fram og lýstu
reynslu sinni í Dagens Nyheter, en
Expressen greindi fyrst frá ásök-
unum á hendur Arnault 1997. Málið
hefur leitt til djúprar krísu innan
SA sem neyddist til að fresta af-
hendingu Nóbelsverðlaunanna í ár.
Lars Heikensten, stjórnandi
Nóbelsstofnunarinnar, sagði um
helgina ekki fullvíst að af afhend-
ingu gæti orðið á næsta ári.
silja@mbl.is
Hlýtur tveggja ára
fangelsi fyrir nauðgun
Arnault hyggst áfrýja dómnum
Arnault Hann var í gær sakfelldur fyrir að hafa aðfaranótt 6. október 2011
þvingað konu til munnmaka áður en hann á að hafa nauðgað henni.
Smallfoot Ný Ný
Lof mér að falla 1 4
Night School Ný Ný
The House With A Clock In Its Walls 2 2
A Simple Favor Ný Ný
Predator (2018) 4 3
Peppermint 3 2
Mamma Mia! Here We Go Again 6 11
Maya the Bee Movie 8 2
The Nun 5 4
Bíólistinn 28.–30. september 2018
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Teiknimyndin Smáfótur var vel
sótt um helgina og skilaði um 5,5
milljónum króna í miðasölu. Rúm-
lega 5.000 manns sáu myndina en
tekjuhæsta kvikmynd síðustu
helga, Lof mér að falla, skilaði
næstmestum tekjum, tæpum fimm
milljónum króna en hana sáu hins
vegar mun færri, eða 2.800
manns.
Gamanmyndin Night School var
einnig vel sótt og skilaði um
þremur milljónum króna í miða-
sölu. Fjölskyldumyndin The House
with a Clock in its Walls er sú
fjórða tekjuhæsta og sáu hana um
1.800 manns.
Bíóaðsókn helgarinnar
Teiknimynd á toppinn
Smáfótur Úr teiknimyndinni.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Salurinn í Hafnarborg hefur góðan
hljóm. Birtan og umgjörðin í kringum
allt í Hafnarborg er einstaklega fal-
legt og vel að öllu staðið,“ segir Val-
gerður Guðnadóttir, sópransöngkona
sem syngur á hádegistónleikum við
undirleik Antóníu Hevesi, píanóleik-
ara í Hafnarborg í Hafnarfirði í dag.
„Það leggst vel í mig og alltaf jafn
gaman að halda tónleika með Ant-
óníu. Við höfum unnið lengi saman í
allskonar verkefnum og kynntumst
fyrst í Brúðkaupi Fígarós, í Óper-
unni. Það verður ótrúlega gaman á
tónleikunum í dag og hefðin er að
flytja aðallega aríur á þeim. Við
ákváðum að flytja sönglag og aríur
með sterkum karakterum,“ segir Val-
gerður. Hún segir ólíkar skutlur
verði í aðalhlutverkum sem eigi það
sameiginlegt að vera fjörugar eða
ástríðufullar nema hvort tveggja sé.
„Ég get lofað því að tónleikarnir
verða kraftmiklir og líflegir,“ segir
Valgerður en á efniskránni verður
tónlist eftir W.A Mozart, C.M.v.Web-
er, G. Bizet og E. Kálmán.
„Það verður mjög fjörug og
skemmtileg stemming á tónleikun-
um. Ég er ekki þekkt fyrir það að
vera mjög alvarleg og stutt í húmor-
inn þar sem ég kem við sögu,“ segir
Valgerður sem nam söng við Söng-
skólann í Reykjavík hjá Ólöfu Kol-
brúnu Harðardóttur og Kolbrúnu
Sæmundsdóttur. Valgerður stundaði
söngnám við framhaldsdeild Guild-
hall School of Music and Drama. Hún
hóf feril sinn í Jesus Christ Superstar
sem María Magdalena og fór 18 ára
gömul með hlutverk Maríu í West
Side Story.
Valgerður hlaut Grímuna sem
söngvari ársins árið 2009 fyrir Maríu
í Söngvaseiði og var tilnefnd til sömu
verðlauna í ár fyrir Christine Daaé í
The Phantom of the Opera.
Valgerður hefur haldið fjölda tón-
leika, komið víða við og sungið inn á
fjölmarga geisladiska. Hún gaf út
fyrstu sólóplötuna, Draumskógar ár-
ið 2010 og var einsöngvari á Vínar-
tónleikum Sinfóníutónhljómsveitar
Íslands í byrjun árs.
Fastagestir úr Drafnarhúsi
„Antónía Hevesi, píanóleikari hef-
ur haldið utan um hádegistónleikana
sem listrænn stjórnandi í þau 15 ár
sem þeir hafa verið haldnir,“ segir
Áslaug Íris Friðjónsdóttir, upplýs-
inga- og fræðslufulltrúi Hafnar-
borgar.
„Antónía hefur fengið frábæra
söngvara með sér og hádegistónleik-
arnir eru alltaf jafn vinsælir. Þeir eru
vel sóttir og það mæta um 200 manns
að jafnaði á tónleikana en veður getur
sett strik í reikninginn. Tónleikarnir
þjóna hópi eldri borgara auk þess
sem einstaklingar í dagþjálfun í
Drafnarhúsi mæta á hverja tónleika.
Okkur þykir sérlega gaman að fá
þann hóp sem og fastagestina okkar,“
segir Áslaug og bætir við að sneisa-
fullt hafi verið á fyrstu tónleikum
vetrarins með Kristni Sigmundssyni
og hún eigi ekki von á öðru en að góð
mæting verði á tónleika með Valgerði
líkt og áður.
Ólíkar skutlur koma fram
á tónleikum í Hafnarborg
Ljósmynd/Hafnarborg
Aríur Valgerður Guðnadóttir, sópran og Antónía Hevesi, píanóleikari.
Sönglög og arí-
ur með sterkum
karakterum