Morgunblaðið - 29.10.2018, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.10.2018, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 ✝ KristjanaHelga Guð- mundsdóttir fæddist á Suður- eyri við Súganda- fjörð 5. febrúar 1937. Hún bjó lengst af í Kópa- vogi. Kristjana lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut 3. október 2018. Foreldrar Kristjönu voru Guðmundur Kristján Guðna- son, f. 19. desember 1897, d. 4. ágúst 1973, og Elín Magnúsdóttir, f. 19. mars 1889, d. 22. ágúst 1970. Systk- ini Kristjönu eru Kristín Magnea Guðmundsdóttir, f. 1915, d. 1975, Guðni Guð- mundsson, f. 1922, d. 1989, Jóhann Magnús Guðmunds- son, f. 1924, d. 2006, Þorvarð- ur Stefán Guðmundsson, f. 1925, d. 2006, Guðrún Guð- ríður Guðmundsdóttir, f. 2) Ólöf Bjarnadóttir, f. 1959, í sambúð með Guðlaugi G. Jónssyni, f. 1951. Fyrrver- andi eiginmaður og barnsfaðir er Bárður Árni Gunnarsson, f. 1958, og eignuðust þau fjögur börn: a) Hanna Karítas, f. 1980, b) Kristjana Helga, f. 1985, c) Silja Bára, f. 1986, d) Bjarni Híram, f. 1995. 3) Ása Bjarnadóttir, f. 1960, gift Árna Vali Árnasyni, f. 1961. Börn þeirra eru a) Guð- mundur Árni, f. 1977, b) Helga Valdís, f. 1979, c) Anton Fann- ar, f. 1989. 4) Elín Hreindal Bjarnadótt- ir, f. 1962. Fyrrverandi eigin- maður og barnsfaðir er Sig- urður Björnsson, f. 1958, og börn þeirra eru a) Erla Guð- rún, f. 1982, b) Sigríður Ása, f. 1987, c) Bjarni Hreindal, f. 1989, d) Birkir, f. 1995. 5) Birna Bjarnadóttir f. 1965, gift Gísla Erni Gíslasyni, f. 1965, og eiga þau þrjú börn: a) Kjartan Steinar, f. 1989, b) Kristófer Hlífar, f. 1991, c) Sigurbjörg Jóhanna, f. 1993. Langömmubörn Kristjönu Helgu telja á þriðja tug. Útför Kristjönu Helgu fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 29. október 2018, klukkan 15. 1927, d. 2011, Kristrún Guð- mundsdóttir, f. 1928, Guðmunda Guðmundsdóttir, f. 1929, d. 2009, Fanney Guð- mundsdóttir, f. 1931, d. 1998, og Jakobína Guð- mundsdóttir, f. 1933. Eiginmaður Kristjönu var Bjarni Hreindal Sigurðsson, bólstrari í Kópa- vogi, f. 22. nóvember 1928, d. 25. september 1981. Bjarni og Kristjana eignuðust fimm dæt- ur: 1) Kristjana Bjarnadóttir, f. 1959, gift Þorsteini Sigurðs- syni, f. 1964. Fyrrverandi eig- inmaður og barnsfaðir er Jón Gestur Harðarson, f. 1959 og eignuðust þau fjóra syni, a) Bjarni, f. 1976, b) Hörður, f. 1981, c) Kristján Helgi, f. 1983, d) Matthías, f. 1992. Elsku mamma mín, ég náði ekki að segja þér áður en þú kvaddir þennan heim hversu dásamleg ferðin mín var. Ég fann hvað þú varst stolt af mér að fara ein í svona ferð og veit ég að kjarkinn fékk ég frá þér. Síðasta stundin mín með þér var í þínum anda, þú varst sterk fram á loka- stundu. Þegar við kvöddumst tókstu svo þétt utan um mig og ég vissi að mögulega væri þetta okk- ar síðasta faðmlag. Þessu þétta faðmlagi og kossum þínum fylgdu orðin „ég mun sakna þín svo mik- ið“. Mamma mín, ég sakna þín líka mikið, sakna þess að geta ekki hringt í þig á hverjum degi, sitja og prjóna með þér og eiga hjá þér griðastað. Takk fyrir að vera mamma mín, amma barnanna minna og langamma barnabarna minna, takk fyrir árin okkar sam- an. Elska þig svo heitt, þín dóttir, Elín Hreindal Bjarnadóttir. Yndislega móðir mín, Kristjana Helga Guðmundsdóttir, lést á hjartadeild Landspítalans 3. októ- ber sl. Ég veit ekki hvernig lífið á eftir að vera án mömmu. Hún var sú sem ég gat alltaf hringt í og við spjölluðum oft lengi saman. Aldrei vantaði okkur umræðuefni. Mamma var stolt af dætrunum sínum fimm og afkomendum okk- ar sem eru orðnir 51. Hún sat og prjónaði vettlinga, sokka og ým- islegt annað handa gullmolunum sínum fyrir jól og afmæli. Mamma hélt hópnum saman og fann upp á alls lags uppákomum til að hittast. Hún lagði oft ýmislegt á sig til að barnabörnin og langömmubörnin hittust. Hún var sú sem hélt glæsileg jólaboð fyrir okkur. Þeg- ar við vorum orðin svo mörg að ekki var lengur húsrúm reddaði hún því með því að fá sal svo það færi betur um alla. Þegar fjöl- skyldan var öll samankomin var þetta risastór hópur sem mamma var stolt af. Hún hafði mikla réttlætistil- finningu. Ef ég var í vafa um eitt- hvað var alltaf gott að fara til mömmu með þær hugleiðingar. Ef mamma sagði já vissi ég að þetta mundi allt blessast. Við mamma fórum einu sinni tvær saman til Rimini, þar áttum við góðan tíma, en oft fórum við saman til Svíþjóðar að heimsækja Jönu tvíburasystur mína og henn- ar fjölskyldu. Það kunni mamma að meta að hitta barnabörnin sín og síðar langömmubörnin. Hún vildi fá að vita hvernig allir hefðu það og hvernig allir byggju. Hún vildi að öllum liði vel. Mamma var stoð okkar og fyr- irmynd. Hún var myndarleg í höndunum og stolt af því að hafa farið í húsmæðraskóla á sínum yngri árum og lært ýmislegt sem hún kenndi okkur systrunum. Hér áður fyrr fór hún á milli heimila okkar systra og hjálpaði okkur í sláturgerð. Það gekk allt svo vel þegar mamma var með okkur. Skipulagðari manneskja er vand- fundin. Hún var sú sem kom með flottu verðlaunatertuna sína í veislur til okkur systra þegar eitt- hvað stóð til. Mamma var svo ung þegar pabbi dó, aðeins 44 ára. Hún var félagslynd og átti margar góðar vinkonur og vinahópa sem hittust á kaffihúsum og buðu á milli sín heim og þau ferðuðust saman. Mamma var í Trésmíðakórn- um, síðar fór hún í Glæðurnar í Bústaðasókn og svo í Kór eldri borgara í Kópavogi. Mamma var í Glóð íþróttafélagi. Hún fór utan bæði með kórnum og danshópn- um. Mamma var virk í félagi eldri borgara í Kópavogi og lengi í kaffinefndini. Mamma hafði góða nærveru og það var gott að vinna með henni. Mamma naut þess að fá okkur í heimsókn og það var alltaf gott að koma til hennar. Ef ég var eitt- hvað þreytt þá sagði mamma: Leggðu þig bara og sótti teppi og breiddi yfir mig og læddist um. Stundum gisti ég og það fannst mömmu alltaf notalegt. Margar stundir sátum við mamma saman í stofunni hjá henni og gerðum handavinnu. Við systurnar höfðum oft hitting hjá mömmu og allar voru með eitt- hvað í höndunum og þá var mikið spjallað og gaman hjá okkur. Ég veit að við systur eigum allar eftir að sakna samverustundanna sem við nutum svo vel með mömmu. Það verður ekkert eins og áður, það er mikið skarð sem hefur myndast í fjölskyldunni okkar nú þegar mamma er farin. Við trúum því að pabbi hafi tekið vel á móti henni með sínum breiða faðmi og að nú séu þau bæði laus við sjúk- dóma og veikindi og dansi saman í faðmi hvort annars. Ég elska þig, elsku mamma, megi englarnir umvefja þig ást og hlýju. Þín dóttir, Ólöf Bjarnadóttir. Það sem ég vildi sagt hafa, en fékk aldrei sagt. Yndislegri tengdamömmu og ömmu barna minna hefði ég vart getað hugsað mér. Alltaf boðin og búin að rétta fram hjálparhönd þegar á þurfti að halda, tala nú ekki um ef um barnabörnin var um að ræða. Allt- af opið hús í Melgerði og síðan í Núpalind og aldrei neitt mál að fíra upp í kaffi eða eldavél fyrir hópinn þinn. Takk fyrir allt, gamla mín. Þín verður sárt saknað og ég tala nú ekki um á pítsukvöldum hér í Háu. Góðar minningar geymi ég með mér og mínum. Tímans rás óðfluga áfram streymir árin hverfa í eilífðar sæ. Ættarknörrinn öldurnar klífur (Sigurbjörg J. Þórðardóttir) Hvíl í friði. Þinn tengdasonur, Gísli Örn Gíslason. Elsku dásamlega amma okkar. Mikið eigum við eftir að sakna þín og hvað við erum þakklátar fyrir þann tíma sem við áttum með þér og hvað börnin okkar áttu góða og umhyggjusama langömmu sem prjónaði handa öllum krökkunum okkar hver einustu jól. Við munum svo vel eftir því þegar við vorum krakkar hvað það var gaman að taka strætó í Kópa- voginn og fara í sund. Hápunkt- urinn á þeirri ferð var að labba til þín í Melgerðið. Þú tókst okkur alltaf opnum örmum og umvafðir okkur hlýju þinni og gestrisni og þú sást alltaf til þess að við fórum saddar heim. Það var alltaf svo gaman að lenda á góðu spjalli við þig, elsku amma. Það var sérstak- lega gaman að heyra þig tala um gömlu tímana og fá að heyra sög- ur frá þér sem ung móðir. Mikið varstu dugleg, sterk og með mikið jafnaðargeð. Við lítum svo upp til þín, dásamlega amma og elskum þig endalaust. Þínar ömmustelpur, Kristjana Helga og Silja Bára. Elsku amma Jana, ég á erfitt með að trúa því að þú sért ekki lengur heima í Núpalind og takir á móti mér og strákunum mínum með fallega brosinu þínu. Það eru sem betur fer svo margar dásam- legar minningar sem ylja í sorg- inni og vitneskjan um að þú varst elskuð af svo mörgum í þínu lífi. Takk, amma mín, fyrir þolinmæð- ina, þegar unglingsstúlkan ég fékk að búa hjá þér, takk fyrir að styðja við mig og veita mér öryggi þegar ég þurfti á því að halda. Takk fyrir faðmlögin, prjónaskap- inn, frómasinn, verðlaunatertuna, öll samtölin og gleðina. Elska þig, fallega amma mín og geymi minn- ingarnar okkar í hjarta mér. Þín Erla. Elsku amma mín er fallin frá og ég minnist hennar með miklum kærleik. Nærvera hennar svo ljúf og notaleg, blíð og góð, brosmild og þolinmóð. Dásamleg fyrir- mynd. Sem barn var amma kletturinn minn og Melgerðið mitt annað heimili. Minningarnar þaðan ein- kennast af hlýju og hlátri, ævin- týralegum skúmaskotum, góðri matarlykt og fullt af alls konar fólki. Því amma var vinsæl og það voru allir velkomnir. Í minning- unni býður amma mér faðminn sinn, tilbúin að hlusta og segja sögur. Kenna manni að elda eða baka upp úr rómantísku mat- reiðslubókinni með brunablettun- um. Á sumrin var best að vera í sólbaði hjá ömmu og oft var nóg af Kristjana Helga Guðmundsdóttir ✝ Birgitta RósBjörgvins- dóttir fæddist í Reykjavík 9. júlí 1983. Hún lést á Líknardeild Land- spítalans 17. októ- ber 2018. Foreldrar hennar eru Björg- vin Th. Kristjáns- son, f. 24. sept- ember 1957, og Sigríður Ingólfs- dóttir, f. 2. ágúst 1958. Systkini Birgittu eru: Björgvin Pétur, f. 4. júlí 1977, og Karitas Ósk, f. 11. desember 1988, unnusti Kar- itasar er Aron Björn, f. 10. maí 1988. Birgitta eignaðist dóttur, Ca- millu Mist, f. 9. maí 2002, með Sigursteini Óskari J. Agnars- syni, f. 11.11. 1981. Árið 2008 hóf Birgitta sambúð með Andra Þór Ólafssyni, f. 26. nóvember 1987, og gengu þau í hjónaband 9. september 2017. Foreldrar Andra Þórs eru Hildur Aðal- steinsdóttir, f. 4. september 1955, og Ólafur Ágúst Baldurs- son, f. 18. ágúst 1954. Birgitta ólst upp hjá for- eldrum sínum í Kópavogi. Hún keypti sína fyrstu íbúð í Árbænum en fluttist síðar í Hafn- arfjörð þar sem hún bjó til æviloka. Að grunnskóla loknum hóf hún nám við Mennta- skólann í Kópavogi. Seinna lærði hún nagla- og förðunar- fræði sem hún starfaði við í hlutastarfi. Á sinni stuttu ævi vann Birgitta lengst af í veit- ingageiranum, meðal annars á Amokka í Borgartúni, Ruby Tuesday og Kaffi Roma. Hún ákvað að söðla um og fór að vinna á leikskóla Hjallastefn- unnar og læra til löggildingar bókara. Vegna veikinda náði hún ekki að klára það nám. Birgitta hafði yndi af ferðalög- um og ferðaðist mikið með eig- inmanni og dóttur á síðustu ár- um. Útför Birgittu fer fram frá Víðistaðakirkju í dag, 29. októ- ber 2018, og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku besta mamma mín, núna færðu loksins að hvíla þig. Núna ertu hjá Petru ömmu að horfa á okkur og passa okkur fjölskyld- una. Ég er svo fegin að af öllum konum í heiminum varst þú valin til þess að vera mamma mín og ég myndi aldrei og mun aldrei vilja breyta því. Það er mjög erfitt að missa þig, að missa bestu vinkonu mína, en þú ert komin á betri stað. Þú, elsku mamma mín, ert fal- legasta, skemmtilegasta, hug- rakkasta og sterkasta kona sem ég þekki, þú varst algjör baráttu- kona og þín verður sárt saknað. Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af okkur fjölskyldunni því þú verður alltaf hjá okkur í hjörtum okkar allra. Ég sakna þess að geta ekki fengið mömmu- knús hvenær sem er. Ég sakna þess svo mikið að geta ekki sagt við þig „Ég elska þig“ og fengið svar frá þér. Takk fyrir allt, elsku besta mamma mín. Ég er svo stolt af þér, elsku mamma. Ég elska þig meira en allt og mun alltaf elska þig meira en allt. Ég lofa að ég mun hitta þig aftur. Camilla Mist S. Andradóttir. Elsku Birgitta, í dag kveðjum við tengdaforeldrarnir þig hinstu kveðju. Það er ótrúlega erfitt að sætta sig við að þú hafir verið hrif- in á brott í blóma lífsins frá fólkinu sem þú elskaðir mest. Þú barðist hetjulega við óvæginn sjúkdóm sem að lokum hafði sigur. Við áttum saman margar góðar stundir innan- og utanlands og núna síðast í júní á Tenerife. Þar kom þinn dugnaður og baráttu- vilji vel í ljós, þó þú værir fársjúk léstu ekkert stoppa þig. Við erum óendanlega þakklát fyrir tímann sem við áttum með þér, hann hefði mátt vera miklu lengri. Með sorg í hjarta kveðjum við þig. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingbjörg Sigurðardóttir) Elsku Andri Þór og Camilla Mist, missir ykkar er mikill, megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur. Foreldrum og systkinum vott- um við innilega samúð. Hildur Aðalsteinsdóttir og Ólafur Ágúst Baldursson. Elsku hjartans systir mín, ó, hvað lífið getur verið innilega ósanngjarnt og erfitt. Þú varst ekki bara systir mín heldur mín allra besta vinkona. Ólíkar vorum við, en samt svo líkar. Hvaða syst- ur gefa hvor annarri nákvæmlega sömu jólagjöf alveg óvart? Jú, það gerðum við síðustu jól. Nú geng ég um í inniskónum góðu og hugsa til þín, þá mun ég alltaf hafa þig með þegar ég púsla. Það sem mér þykir vænt um hversu nánar við vorum, þá sérstaklega síðastliðin ár. Í barnæsku háði fimm ára ald- ursmunur aðeins vináttu okkar en alltaf passaðir þú upp á mig. Síð- ustu ár vorum við duglegar að spjalla um allt á milli himins og jarðar, í persónu og í símann. Hvorug okkar neitt sérstaklega mikið fyrir það að tala lengi í síma, en símtöl okkar á milli leiddu samt yfirleitt til soðinna eyrna. Í IKEA gátum við eytt mörgum klukku- stundum saman án þess að gera okkur grein fyrir því hvað tíminn flygi áfram, IKEA var okkar stað- ur. Þú varst nagli og barðist hetjulega við ógeðið sem krabbinn er en því miður hafði hann sigur. Hjó hann þar stórt skarð í hjörtu okkar sem eftir standa. Ég mun alltaf sakna þín og elska. Ég set hér ljóð sem Aron minn samdi: Ný er risin á himni rós sem á jörðu veitti hlýju. Minningar í myrkri ljós sem mátt oss gefa að nýju. Þó tíminn lækni sárin flest er ástvina hlutverk stærra. Ást og alúð græðir mest og lyftir okkur hærra. (A.B.K.) Þín systir, Karitas Ósk. Elsku Birgitta frænka mín. Ég á svo erfitt með að trúa því að nú hafir þú kvatt þennan heim. Það er svo óskiljanlegt, ósann- gjarnt og vont. Þú varst mér svo ótrúlega margt. Þú varst fyrir- myndin mín, frænka mín, vinkona mín og hetjan mín. Það er stórt skarð höggvið í okkur sem elsk- uðum þig. Þú varst tekin frá okk- ur svo snemma og ég sakna þín og þess sem aldrei verður. Þegar ég lít til baka þá er þakk- læti, ást og dugnaður það fyrsta sem ég hugsa um. Þú varst svo ótrúlega dugleg og kraftmikil í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur. Sönn ofurkona sem var óstöðv- andi. Þú gafst aldrei upp og stóðst alltaf upprétt sama hvað gekk á. Þú varst einnig ákveðin, þrjósk, metnaðarfull og svo ótrú- lega falleg og góð. Enda var aldrei neitt annað í myndinni en að sigra í þessari baráttu sem þú þurftir að takast á við í lokin. „Þetta er ekki alveg það sem vorum búin að ákveða,“ sagðir þú þegar ég heimsótti þig á kvennadeildina. Þetta er svo ósanngjarnt og vont. Tárin streyma. Ég er þakklát fyrir allar sam- verustundirnar sem við áttum. Sem betur fer á ég hafsjó af minn- ingum og ég mun varðveita þær að eilífu. Ég man hvað þú varst alltaf mikið til staðar fyrir mig og stapp- aðir í mig stálinu ef ég átti erfitt. Ég man hvað ég treysti þér vel og þú mér sem er ómetanlegt. Ég fylltist af stolti þegar þú baðst mig í fyrsta sinn að passa Camillu þína á meðan þú varst að vinna, en allir sem þekktu þig vita að það var sko ekki sjálfgefið að fá það traust. Ég vil bara þakka þér fyrir allt. Þú varst heimsins besta frænka eins og ég kallaði þig svo oft. Minningarnar hlýja og ég mun alltaf minnast þín fallega frænka mín. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Þín frænka, Freyja Lind Ólafsdóttir. Elsku fallega, yndislega og góða vinkona mín. Það sem mér finnst erfitt að sitja hér og skrifa kveðjuorð til þín. Ég á þér svo margt að þakka og margs að minnast að það er held ég ómögulegt að koma því öllu niður á blað. Það sem lífið get- ur verið ósanngjarnt og óskiljan- legt. Ég var svo heppin að fá að kalla þig fyrstu vinkonu mína. Við kynntumst þegar við vorum pínu- litlar og hélst vinskapurinn alla tíð. Við vorum mikið saman þegar við vorum litlar og afar nánar vin- konur. En svo gerist lífið og ég flutti í burtu, en alltaf hittumst við af og til. Ég er svo þakklát fyrir að við ákváðum fyrir nokkrum árum að hlúa að vináttu okkar og vera í reglulegu sambandi. Samband okkar var einstakt og hjarta mitt er fullt af fallegum minningum um frábæra vinkonu. Þú varst sú allra duglegasta, sterkasta, besta mamman og eiginkona. Þvílík baráttukona. Elsku Andri, Camilla, Sigga, Bjöggi, Karitas, Björgvin og fjöl- skylda. Mínar innilegustu samúð- Birgitta Rós Björgvinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.