Morgunblaðið - 29.10.2018, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 29.10.2018, Blaðsíða 31
fræðaskóla Austurbæjar, stúdents- prófi frá MR 1968, embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1974, öðlaðist hdl.- réttindi 1977 og hrl.-réttindi 1990. Jón var fulltrúi hjá bæjarfóget- anum í Keflavík, Grindavík og Njarðvík og sýslumanninum í Gull- bringusýslu 1974-76, starfrækti eig- in lögmannsstofu í Keflavík frá 1976 og í samstarfi við Ásbjörn Jónsson undir heitinu Lögfræðistofa Suður- nesja 1989-90, var forstöðumaður lögfræðideildar Íslandsbanka hf. 1991-2001, stofnaði þá lögmanns- stofu í Skipholti 50b, Reykjavík og hefur starfrækt hana síðan. Þá rek- ur hann fasteignasöluna Tröð ehf. á sama stað. Jón hefur stundað skák frá unga aldri. Hann varð unglingameistari Íslands 1964, tefldi einu sinni í landsliðsflokki og tefldi á heims- meistaramóti stúdenta í sveita- keppni í Mayaguez á Portó Ríkó 1972. Þá var hann oft fararstjóri ein- valaliðs íslenskra skákmanna á Evr- ópumóti taflfélaga, víða um Evrópu. Hann sat í stjórn Taflfélags Reykja- víkur 1974-76, var formaður Skák- félags Keflavíkur 1976-78, forseti Skáksambands Suðurnesja frá stofnun 1978-86, formaður Tafl- félags Reykjavíkur 1986-92, sat í mótsnefndum alþjóðlegra skákmóta í Reykjavík 1976, 1988, 1990 og 1992 og í Grindavík 1984 og forseti Skák- sambands Norðurlanda 1992-95. Og Jón situr enn við taflborðið: „Já, nú telfi í úti í KR-heimili, þó ég sé Frammari, hjá honum Kristjáni vini mínum Stefánssyni hrl. Þar eru skemmtilegir karlar og prýðilegir skákmenn.“ Jón sat í stjórn Byggingarfélagsins Klappar og í stjórn Arion banka hf. 2010-2013. Hann hefur starfað í Lionshreyfingunni í tæp 40 ár, gegnt þar ýmsum trúnaðarstörfum, m.a. verið formaður síns klúbbs, Lions- klúbbsins Víðars, í þrígang. Hann fór að stunda golf árið 2000, hefur mikinn áhuga á þeirri íþróttagrein en vill sem minnst ræða um afrek sín á því sviði. Jón og Matthildur hafa lagst nokk- uð í ferðalög á seinni árum: „Eftir- minnilegasta ferðin var til Kína árið 1994 að heimsækja Halldór frænda sem þá var hótelstjóri á nýju Hilton- hóteli í Peking. Við komumst á Kína- múrinn, heimsóttum Xian þar sem heilu herdeildirnar af terrakotta- hermönnum hafa verið grafnar upp og fórum á óvenjulegasta matar- markað sem við höfum séð. Kjöt og fiskur selt lifandi og slátrað og gert að á staðnum. Þar sáum við hænu selda lifandi, henni slátrað, síðan hent í þeytivindu og þannig reytt. Þá var hún komin í neytendavænt form.“ Fjölskylda Jón kvæntist 22.8. 1970, Sigurþóru Stefánsdóttur, f. 25.4. 1948, ritara. Þau skildu. Börn Jóns og Sigurþóru eru Elín Agla, f. 19.4. 1974, þjóðmenningar- bóndi í Árneshreppi á Ströndum, og er dóttir hennar Jóhanna Engilráð, f. 2009; Þóra Gunnlaug, f. 8.12. 1976, tölvunarfræðingur í Reykjavík, og Stefán Sigurður, f. 10.6. 1980, starfs- maður Hreinsitækni en kona hans er Edda Ósk Smáradóttir kennari og eru börn þeirra Soffía Sól, f. 2009, og Daníel Smári, f. 2012. Stjúpdóttir Jóns og dóttir Sigurþóru er Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir, f. 8.2. 1965, fulltrúi í menningar- og menntamálaráðu- neytinu en maður hennar er Sigurður Nordal og eiga þau þrjú börn. Jón kvæntist 6.5. 1994 Matthildi Ingvarsdóttur, f. 5.6. 1949, verslunar- manni. Sonur Matthildar er Sveinn Jónasson, f. 6.11. 1975, flugmaður en kona hans er Þóra Pálsdóttir og eiga þau tvö börn. Systur Jóns eru Sigrún Briem Fre- denlund, f. 3.5. 1951, kennari í Svíþjóð, og Ingibjörg Briem, f. 24.2. 1957, for- stöðumaður hjá Reykjavíkurborg. Foreldrar Jóns voru Sigurður Jó- hannsson Briem, f. 11.9. 1918, d. 28.10. 1994, deildarstjóri í menntamála- ráðuneytinu, og k.h., Soffía Sólveig Jónsdóttir Briem, f. 23.9. 1921, d. 22.6. 2009, húsfreyja. Úr frændgarði Jóns G. Briem Jón G. Briem Soffía Skúladóttir húsfreyja á Kiðjabergi Gunnlaugur Jón Halldór Þorsteinsson hreppstj. og dbrm. á Kiðjabergi í Grímsnesi Guðrún Sigríður Gunnlaugsdóttir Briem húsfreyja í Rvík Jón Guðmundur Steindórsson Briem verslunarmaður í Rvík Soffía Sólveig Jónsdóttir Briem húsfreyja og ritari í Rvík Steindór Gunnlaugsson lögfr. og fulltr. í Rvík Jón Gunnlaugsson athafnam. í Rvík Gunnlaugur riem athafnam. í Rvík B Halldór Briem hótelstj. á Hilton hótelum víða um heim Óli Ísaksson verslunarm. í Rvík Ólafur G. Einarsson fv. alþm., ráðherra og forseti Alþingis Ólöf Ísaksdóttirhúsfreyja í Rvík Gústaf Nilsson fv. verksmiðjustjóri á Siglufirði og við Mývatn Ólafur Nilsson fv. skattrannsóknarstj. og einn stofnenda KPMG Bogi Nilsson fv. ríkissaksóknari Nils Ísaksson verslunarm. í Garðabæ Kamilla Sigríður Pétursdóttir Briem húsfreyja í Hruna Steindór Jóhannsson Briem pr. í Hruna, bróðursonur Jóhönnu, ömmu Hannesar Hafstein, bróðursonur Eggerts, langafa Gunnars Thoroddsen og bróðursonur Ólafs Briem, afa Valgerðar, ömmu Davíðs Oddssonar Jóhann Kristján Steindórsson Briem prófastur á Melstað í Miðfirði Ingibjörg Jóna Ísaksdóttir húsfreyja á Melstað Ólöf Ólafsdóttir húsfreyja í Garðbæ Ísak Jónsson verslunarmaður í Garðbæ á Eyrarbakka Sigurður Jóhannsson Briem deildarstj. í menntamr. í Rvík ÍSLENDINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 Kveðja, Gímur kokkur. www.grimurkokkur.is Fiskibollur - o ur os ur nn 5. mín. ÁN MSG 85 ára Aðalsteinn Páll Guðjónsson 80 ára Fjóla Guðmundsdóttir Gunnar Jóhannesson Tryggvi Ásmundsson Víðir Guðmundsson 75 ára Karlý Fríða Zophoníasdóttir Kristín Kristjánsdóttir Ragnheiður Þ. M. Waage 70 ára Ingibjörg Kristjánsdóttir Jón G. Briem Kristbjörg Einarsdóttir Sesselja Kristjánsdóttir 60 ára Anna Birna Árnadóttir Ásta María Hjaltadóttir Berglind Birgisdóttir Gróa Hafdís Schram Ágústsdóttir Guðbrandur Einarsson Ísak Vilhjálmur Jóhannsson Magnús Ragnarsson Úlfar Júlíus Hjálmarsson Þórgunnur Hrund Björnsdóttir 50 ára Jens Ruminy Kristbjörg Agnarsdóttir Sigurjón Hjaltason Stephen Oyewole Ajemiare Sumarliði Magnússon Valdimar Ólafsson Þórunn Sverrisdóttir 40 ára Aneta Sac Medic Árni Árnason Daði Þorkelsson Egill Már Halldórsson Gunnar Magnús Gunnarsson Jóhann Páll Svavarsson Lena-Marie Pettersson Ragnar Ingi Kristjánsson Sesselja Bogadóttir Sigrún Þórarinsdóttir Sæfríður Marteinsdóttir Yngvi Jón Rafnsson 30 ára Ásþór Ingi Brynjólfsson Björgvin Karl Gunnarsson Christa Diana Blomberg Gunnar Már Steinarsson Maris Tobiass Mateusz Borowiec Sigrún Bjarnadóttir Snæfríður Aþena Stefánsdóttir Vaida Kasparaviciute Valur Hólm Ketilsson Til hamingju með daginn 40 ára Árni er úr Vestur- bænum í Reykjavík en er að flytja í Garðabæ. Hann er flugstjóri hjá Icelandair. Maki: Klara Sól Ágústs- dóttir, f. 1992, arkitekt, en er í fæðingarorlofi. Börn: Tara Lóa, f. 2006, Árni Jóhann, f. 2009, og Ólína Fanney, f. 2018. Foreldrar: Árni Þór Árna- son, f. 1951, fv. forstjóri, og Guðbjörg Jónsdóttir, f. 1951, kennari. Þau eru bús. í Reykjavík. Árni Árnason 40 ára Jóhann er frá Hreimsstöðum í Hjalta- staðaþinghá en býr í Fellabæ. Hann er af- greiðslumaður í Húsa- smiðjunni. Maki: Sólrún Víkings- dóttir, f. 1978, kennari í Fellaskóla. Foreldrar: Svavar Gunn- þórsson, f. 1926, fv. bóndi á Hreimsstöðum, og Helga Magnúsdóttir, f. 1946, d. 2016, skólaliði í Barnaskólanum á Eiðum. Jóhann Páll Svavarsson 40 ára Yngvi er úr Sand- gerði en býr í Garði. Hann er deildarstjóri toll- afgreiðslu hjá UPS á Íslandi. Maki: Sigrún Sigurðar- dóttir, f. 1980, deildarstjóri sérkennslu í Grunnskól- anum í Garði. Dóttir: Emilía Sól, f. 2004. Foreldrar: Rafn Magnús- son, f. 1959, vélstjóri hjá Skinnfiski í Sandgerði, og Hrefna Yngvadóttir, f. 1958, húsmóðir í Keflavík. Yngvi Jón Rafnsson  Kristín Jónsdóttir hefur varið doktorsritgerð sína í menntavísindum við HÍ. Ritgerðin ber heitið Tengsl heimila og grunnskóla á Íslandi (Enskt heiti: Parental involvement in comp- ulsory schools in Iceland). Leiðbein- andi var dr. Amalía Björnsdóttir, pró- fessor við Menntavísindasvið HÍ, og meðleiðbeinandi var dr. Unn-Doris Bæck, prófessor við Háskólann í Tromsö. Í rannsókninni var leitað svara við meginspurningunni: Hvaða hlutverki þjóna tengsl heimila og skóla í grunn- skólastarfi á Íslandi? Markmiðið var að lýsa því sem er einkennandi fyrir tengsl heimila og skóla; að skoða hvað ung- lingum finnst æskilegt varðandi þátt- töku foreldra; og loks að draga fram hvernig þjónusta skóla og félagslegir þættir hafa áhrif á tengsl heimila og skóla sem og á ánægju foreldra með skólastarf. Rannsóknin er þáttur í rannsóknarverkefninu Starfshættir í grunnskólum. Gagna var aflað í 20 grunnskólum. Unnið var með gögn úr rafrænum spurningalistum til starfs- fólks skólanna, foreldra allra nemenda og til unglinga í 7.-10. bekk. Niðurstöður sýndu að foreldrar og kennarar voru ein- huga um að sam- skipti jafnt sem samstarf þeirra væri mikilvægt fyr- ir menntun barna og unglinga. Sam- skipti milli heimila og skóla eru kerfis- bundin og regluleg en það er hins vegar álitamál hversu oft er um samstarf að ræða. Foreldrar jafnt sem starfsfólk skóla töldu æski- legast að foreldrar tækju þátt í félags- lífi og viðburðum skóla á hefðbundnum nótum. Foreldrar virtust ekki sækjast eftir að taka þátt í sjálfu námi barna sinna. Hins vegar sýndu unglingar áhuga á að foreldrar tækju frekar þátt í því sem sneri að náminu en félagslífinu og mikill meirihluti unglinga sagðist vilja stuðning foreldra við heimanám. Rannsóknin leiddi líka í ljós að for- eldrar stóðu ekki jafnt að vígi gagnvart skólunum. Sláandi var að einstæðar mæður fundu oft til vanmáttar í sam- skiptum sínum við starfsfólk skóla og þær töldu sig síður en aðrir foreldrar fá stuðning innan skólanna fyrir börn sín sem þurftu þess með. Kristín Jónsdóttir Kristín Jónsdóttir lauk BA-prófi í almennri bókmenntafræði og íslensku frá Háskóla Íslands 1986, lauk viðbótarnámi í hagnýtri fjölmiðlun 1991, kennsluréttindanámi 1992 og lauk M.Ed.-prófi í uppeldis- og menntunarfræðum frá Kennaraháskóla Ís- lands 2003. Hún hefur verið lektor í kennslufræði við kennaradeild KHÍ, síðar HÍ, frá 2007 og leiðir þróunarstarf Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum. Kristín er gift Þórarni Eyfjörð og börn þeirra eru Sigrún og Þorsteinn. Doktor Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einnmánuð. Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.