Morgunblaðið - 04.10.2018, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018FRÉTTIR
©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim.
Af síðum
Hvað binst við nafn? Það blóm sem
nefnt er Nafta hefði jafn-ljúfan ilm
með öðru nafni, nema vitaskuld
hvað Donald Trump snertir. Það er
greinilegur sigur fyrir Bandaríkja-
forseta að hann getur núna hreykt
sér af því að hafa staðið við eitt af
kosningaloforðum sínum: Með því
að breyta nafni Fríverslunarsamn-
ings Norður-Ameríku og kalla
hann Bandaríkja-Mexíkó-Kanada-
samninginn, væri það tæknilega
rétt hjá honum að segjast hafa
gert út af við Nafta.
Að nafnabreytingunni slepptri
þá er nýi samningurinn sem áður
var kallaður Nafta grunsamlega
líkur þeim gamla. Kollegar mínir
hafa kafað ofan í þær helstu efn-
islegu breytingarnar sem gerðar
hafa verið á tilhögun viðskipta á
milli aðildarríkja samningsins og
hafa þeir fundið atriði sem eru
bæði góð, slæm – og ljót.
Hagsmunir launafólks
Meðal þess góða má nefna breyt-
ingar sem eru ekki dæmigerðar
fyrir fríverslunarasamning.
USMCA-samningurinn bætir nýj-
um skilyrðum við Nafta-samning-
inn sem skylda Mexíkó til að veita
verkalýðsfélögum aukið vægi.
Samningurinn kveður líka á um að
40% af virði þeirra bíla sem fá að
fara tollfrjálst á milli landa verði
að hafa orðið til í verksmiðjum þar
sem starfsfólk fær borgað meira en
16 dali á tímann. Fer ekki á milli
mála að þetta er gert til að styðja
við bakið á bílaframleiðslu í Banda-
ríkjunum og Kanada, en það er al-
veg jafn líklegt að mexíkóskar
verskmiðjur bregðist við með því
að auka framleiðni vinnuafls með
meiri sjálfvirknivæðingu og bætt-
um framleiðsluferlum. Ef það verð-
ur raunin þá yrði útkoman færri,
en betri störf þar í landi.
Í öllu falli þá er þetta ákvæði
ekki síst sigur fyrir Kanada sem
hefur lengi reynt að gera breyt-
ingar á Nafta í þá veru að samn-
ingurinn verji betur hagsmuni
launafólks. (Kanadamenn geta ver-
ið líkir Trump þegar kemur að því
að vera meinlokulegir í nafnavali,
og bættu þeir orðunum „heild-
stæður og framsækinn“ við Kyrra-
hafssamkomulagið (e. TPP) þegar
þeim samningi var bjargað fyrir
horn eftir að Bandaríkin drógu sig
úr viðræðunum). Á sama tíma hafa
Bandaríkin tryggt bæði Kanada og
Mexíkó heilmikinn tollfrjálsan að-
gang að Bandaríkjamarkaði, komi
til þess að Trump hækki tolla á
nýja bíla annars staðar frá.
Það er öllu hefðbundnari breyt-
ing í átt að frjálsari milliríkja-
viðskiptum að Kanada hefur veitt
Bandaríkjunum rýmri heimildir til
sölu á mjólk og víni. Einnig er já-
kvætt að úrskurðarnefnd deilumála
Nafta skuli áfram haldið inni. Aft-
ur á móti er lítil eftirsjá að svk.
Investor State Dispute Settlement-
ákvæðum, um sérstaka dómstóla
þar sem fyrirtæki gátu höfðað mál
gegn ríkisstjórnum ef þau settu
reglur sem þeim hugnaðist ekki.
Hefðbundnir dómstólar hjá þróuð-
um ríkjum eru fullkomlega færir
um að úrskurða í deilum á milli
fyrirtækja og stjórnvalda.
Sextán ár skapa óvissu
Af því neikvæða má nefna að
samningurinn hefur að geyma sól-
arlagsákvæði. USMCA gildir að-
eins til sextán ára nema aðild-
arríkin fallist á að framlengja
samninginn. Það eina sem þetta
gerir er að skapa óvissu. Kanada
hefur líka fallist á að framlengja
gildistíma tiltekinna einkaleyfa –
sem Bandaríkin börðust hart fyrir
í TPP-viðræðunum til að slá
skjaldborg um bandarísk fyrirtæki
sem eiga stórt einkaleyfasafn.
Þetta dregur úr frelsi í viðskiptum
frekar en að auka það.
Svo er það ljóta: er þá ekki átt
við ákvæði sem eru beinlínis sið-
ferðislega „ljót“, heldur frekar að
það verður allt annað en skemmti-
legt að reyna að sjá fyrir hverjar
afleiðingarnar af þeim verða. Þær
vörur sem selja má tollfrjálst á
milli landa verða eftirleiðis að vera
að lágmarki 75% framleiddar hjá
aðildarríkjunum, í stað 62,5% áður.
Er þetta til þess gert að draga úr
innflutningi á bílaíhlutum sem
framleiddir eru utan Nafta, og með
því móti auka framleiðslu innan að-
ildarríkjanna. En áhrifin gætu allt
eins orðið þveröfug: Ef það kallar
á kostnaðarsamar breytingar á
birgðakeðjum fyrirtækja að upp-
fylla skilyrðin fyrir tollfrelsi – og
ef það reynist dýrara en að borga
tollinn – þá gætu fyrirtækin ákveð-
ið að hreinlega fórna tollaafslætt-
inum alfarið. Og ef fyrirtækin
þurfa hvort eð er að borga tolla, þá
gæti það hentað þeim ágætlega að
flytja inn enn meira af íhlutum frá
löndum utan Nafta. Það blasir ekki
við hvor valkosturinn verður ofan
á. Hvað bílaframleiðendurna sjálfa
snertir þá virðast þeir telja það
ósennilegt að þetta ákvæði valdi
aukinni fjárfestingu í bílafram-
leiðslu í Bandaríkjunum.
Heilt á litið eru efnislegu breyt-
ingarnar lítið meira en fínstillingar
á reglum Nafta. Kannski er það
hið besta mál. Richard Hass skrif-
aði á Twitter: „USMCA er NAFTA
plús TPP plús smávægilegar
breytingar. Hvað um það ... ef
@realDonaldTrump og þingið eru
núna fáanleg til að vera fylgjandi
frjálsum viðskiptum, þá er verið að
stefna í rétta átt.“
Fanturinn sigraði
En það ljótasta af öllu eru þau
áhrif sem breytingarnar á Nafta
munu hafa á pólitíska siði og venj-
ur í viðskiptaviðræðum ríkja. Nýi
samningurinn þýðir að Trump var
leyft að komast upp með það að
vera fantur og krefjast tvíhliða
samninga: Mexíkó lét undan þrýst-
ingnum og skildi Kanada eftir úti í
kuldanum – og gerði Kanada um
leið að skotmarki fyrir einhliða
hækkun tolla – þar til ráðamenn í
Ottawa ákváðu að ganga líka til
samninga. Kemur þetta í kjölfar
þess að Bandaríkin þvinguðu Suð-
ur-Kóreu til að breyta verslunar-
samningum á milli landanna. Þetta
er auðvitað bara upphitun fyrir
deilurnar við Kína, og eins og Paul
Blustein orðar það þá eru „fanta-
brögð Trumps miklu meiri ógn [en
Kína] við hið reglumiðaða kerfi“.
Það hefði verið miklu betra fyrir
heimsbyggðina, og öll þau lönd
sem samningurinn snertir, ef þau
hefðu látið Trump sýna spilin og
neitað að semja á meðan hann
hefði í hótunum. Með því hefði af-
staða Trumps ekki fært honum
neinar pólitískar fjaðrir til að
skreyta sig með, en þess í stað
urðu málalyktir þannig að það mun
óhjákvæmilega hvetja hann til að
halda uppteknum hætti.
Eins og málin standa, væri ekki í
það minnsta hægt að draga úr
þeim táknræna sigri sem hann
fékk með því að breyta nafninu á
Nafta? Ef við fáum að hliðra stöf-
unum örlítið þá er eitthvað við
skammstöfunina U-SCAM
sem hrífur.
Nafta er dautt – Nafta lengi lifi
Eftir Martin Sandbu
Eitt það versta við hinn
nýja USMCA-samning er
sú staðreynd að Trump
var leyft að komast upp
með fantaskap í viðræðum
ríkjanna sem að samning-
num standa.
AFP
Afar köldu hefur andað milli Donald Trump forseta Bandaríkjanna og Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada.
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Miklu meira, en bara ódýrt
Fötur/Balar/tunnur/
stampar, mikið úrval
Vinnuvettlingar Pu-Flex
frá 295
R
Strákústar
frá 695
frá 395
uslatínur
Laufhrífur
frá 1.495
Lauf/ruslastampur
Laufsuga/blásari
8.985
skóflur
frá 1.995
Ruslapokar
10/25/50 stk.
Nokkrar stærðir