Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018FÓLK
SPROTAR
Þrír ráðgjafar sem sérhæfa sig í stefnumótun fyrir fyr-
irtæki og opinbera aðila hafa verið ráðnir til Capacent.
Héðinn Unnsteinsson mun starfa sem ráðgjafi á
sviði opinberrar stefnumótunar. Hann er
stefnumótunarsérfræðingur með meistaragráðu í al-
þjóðlegri stefnumótun og stefnugreiningu frá Háskól-
anum í Bath. Héðinn var stefnumótunarsérfræðingur í
forsætisráðuneytinu 2010-2018 og formaður Stefnu-
ráðs Stjórnarráðsins.
Ingunn Guðmundsdóttir mun sinna stefnumótun og
innleiðingu stefnu og mun koma að áframhaldandi
verkefnum á sviði jafnréttisvísis Capacent. Hún er
með BA-gráðu í stjórnmálafræði og var áður við-
skiptastjóri hjá Brandenburg og verkefnisstjóri hjá
Plain Vanilla.
Ásgeir Runólfsson mun koma að stefnumót-
unarverkefnum fyrir fyrirtæki jafnt sem opinbera aðila.
Hann hefur sérþekkingu á opinberum fjármálum og
víðtæka reynslu af íslensku atvinnulífi. Hann hefur m.a.
komið að stefnumótun stjórnvalda í húsnæðismálum
og að kostnaðargreiningum.
Þrjú ráðin á svið stefnumótunar og fjármála
VISTASKIPTI
„Í grunninn er hægt að lýsa reglu-
tækni (e. regtech) sem tækni sem
ætlað er að auðvelda fyrirtækjum að
kljást við þær kröfur og skyldur sem
stjórnvöld leggja þeim á herðar.
Reglutækni er lengst á veg komin í
fjármálageir-
anum en á erindi
við rekstur af öll-
um toga,“ segir
Kevin How. „Þá
er reglutækni
ekki bundin við
það eitt að nota
sjálfvirka ferla til
að fullnægja kröf-
um um skýrslu-
gerð og skráningu heldur getur t.d.
líka falist í því að nota gervigreind til
að vakta betur starfsemina og koma
auga á grunsamlegt athæfi.“
Kevin er forstöðumaður á fjár-
málasviði breska ráðgjafarfyrirtæk-
isins Alvarez & Marsal og verður
aðalframsögumaður á málþingi sem
Reiknstofa bankanna efnir til í dag á
Hilton Reykjavik Nordica. Yfirskrift
málþingsins er „RegTech“ – Lausn-
in við sífellt flóknara regluverki fjár-
málakerfisins.
Reglutækni hefur smám saman
verið að taka á sig mynd sem undir-
flokkur fjármálatækni. „Það er ekki
lengra síðan en 2015 að við förum að
sjá sprotafyrirtæki byrja beinlínis
að kenna sig við reglutækni. At-
vinnulífið allt, og þá ekki síst fjár-
málageirinn, hefur þurft að glíma við
vaxandi reglubyrði og þá kröfu eftir-
litsaðila að þeir fái mun meira af
gögnum í hendurnar til að geta rækt
hlutverk sitt. Hafa tæknifyrirtæki
freistað þess að þróa lausnir sem
gera það auðveldara að fylgja fyrir-
mælum laganna og auka skilvirkni
alls starfsfólks þegar kemur að því
að fullnægja formkröfum.“
Verði ekki hver í sínu horni
Að mati Kevins á reglutækni
brýnt erindi við smáa markaði eins
og þann íslenska því með smæðinni
skapist svigrúm til tilraunastarfsemi
og sveigjanleiki til að laga reglu-
verkið að þeim möguleikum sem
tæknin býður upp á. „Vegna smæðar
sinnar gæti verið skynsamlegt fyrir
íslensku bankana að taka saman
höndum um að þróa reglutækni sem
þeir njóta góðs af, frekar en að
reyna að finna upp hjólið hver í sínu
horni með ærnum tilkostnaði.
Smæðin þýðir líka að bankarnir
glíma ekki við þau risastóru og oft á
tíðum silalegu hugbúnaðarkerfi sem
bankar í öðrum löndum eru háðir og
geta gert það erfiðara að innleiða
nýstárlegar lausnir hratt og örugg-
lega.“
Kevin undirstrikar að stjórnvöld
verði að spila með og búa þannig um
hnútana að ekki sé of flókið að láta
reyna á nýjar lausnir. „Það kann að
skjóta skökku við en á sama tíma og
stefnan er almennt sú að setja æ
strangari reglur og auka eftirlitið æ
meira þá verður að vera hægt að
stunda nýsköpun innan kerfisins og
gera tilraunir sem ganga kannski
ekki alltaf upp í fyrstu atlögu.“
Morgunblaðið/Golli
Með reglutækni gætu skapast ýmis sóknarfæri fyrir lítinn og lipran fjár-
málamarkað eins og þann íslenska. Best væri að allir ynnu saman.
Bankarnir ættu að starfa
saman að þróun reglutækni
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Breskur sérfræðingur legg-
ur til að íslensk fjármála-
fyrirtæki snúi bökum sam-
an á tæknisviðinu.
Stjórnvöld þurfa að skapa
regluverk sem veitir svig-
rúm fyrir tilraunastarfsemi.
Kevin How
Til í mörgum
stærðum og ge
Nuddpottar
Fullkomnun í líkamlegri vellíðan
rðum
Vagnhöfða 11 | 110 Reykjavík | www.ofnasmidja.is | sími 577 5177
RÁÐSTEFNA
Morgunblaðið/Eggert
Létt var yfir fólki þrátt fyrir dramatíska frásögn Chris Moon.
Húmor er mikilvægur til þess að takast á við áskoranir, að sögn Chris Moon.
Magnús E. Kristjánsson,
framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs Árvakurs, hélt erindi.